Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Ég meina, hver er ekki
"lítt hrifinn af stefnu Evrópusambandsins", svona almennt séð. Þá tel ég ekki kratana með, þeim finnst gjarnan útlenska lúsin betri en sú íslenska.
![]() |
Bílaframleiðendur lítt hrifnir af stefnu ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Lille ven
![]() |
Segir barnsfæðingar af völdum kynferðismisnotkunar í Byrginu orðnar tíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Litlu verður Vöggur feginn
![]() |
Nyhedsavisen mest lesna fríblaðið á Fjóni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Traustur vinur
Nú streyma framsóknarráðherrarnir fram með allskonar vinsæl mál, rétt fyrir kosningar. En ég verð þó að benda á, að þetta mál hefur ekkert með kosningar að gera, heldur tilkomið vegna baráttu móður, sem benti á óréttlæti þessa í fréttum nýlega, og með skrifum til ráðuneytis. En gott hjá Magnúsi að bregðast svo skjótt við.
Ég verð að segja, að mér líkar vel við Magnús í ráðuneytinu. Hann virðist traustur í embætti, og hefur staðið sig vel, að því að ég fæ best séð, m.a. í Byrgismálinu og öðrum erfiðum málum.
Ég gef hins vegar frat í þá iðjóta sem heimta að hann segi af sér fyrir eitthvað sem fyrri ráðherrar áttu að hafa gert, eða ekki gert.
Magnús er, að því að ég best veit, traustur vinur. Já, traustur vinur getur gert kraftaverk.
![]() |
Fyrri fæðingarorlofsgreiðslur ekki lengur lagðar til grundvallar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Rasismi blessaður á Spáni...af dómstólum
En jæja, Aragones Spánverjaþjálfari var nú að sleppa undan því að borga sekt vegna að mínum dómi rasískra ummæla haustið 2004, þegar hann lýsti Thierry Henry sem "svörtum skít" (Black shit á enskunni).
Mér finnst þetta miður. Í kjölfarið á ummælum hans og varnarræðu voru enskir leikmenn, sem spiluðu gegn Spáni á Spáni, áreittir kynþáttalega og lagðir í einelti. Ég kenni fíflinu Aragones um þetta og spænskum fótboltayfirvöldum, sem hafa ekki tekið í mál að Aragones hætti, þó hann hafi viljað segja upp. Burtu með svona vitleysingja úr fótboltanum.
SPÖRKUM RASISMA ÚR FÓTBOLTANUM
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Þetta er svipað og...
...talsmaður vantru.net myndi skyndilega ganga í Hvítasunnusöfnuðinn. Ég meina, það er ekkert frjálslynt við Kristin H. Gunnarsson að mínu mati. Það er reyndar lítið frjálslynt við Frjálslynda flokkinn, svo kannski er þetta ekki svo vitlaus samastaður fyrir "Sleggjuna".
![]() |
Kristinn til frjálslyndra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Vestmannaeyjar fárveikar!! Alvarlegt ástand?
"Sótti barn til Eyja sem þurfti að komast á sjúkrahús"
Ég skil ekki alveg, hvers vegna Eyjarnar þurftu að komast á sjúkrahús, eins og segir hér í titli fréttar um veikt barn í Vestmannaeyjum. Mér finnst skrítið þótt einn barn veikist þar illa, að flytja allar Eyjarnar á sjúkrahús.
Og þar að auki eru Eyjar fleirtala, svo "þurftu" hefði verið réttara, þ.e. "Eyjarnar þurftu að komast á sjúkrahús".
En málið fær farsælan enda í greininni, þar sem kemur í ljós, að það barnið, sem þurfti að fara á spítala, en ekki Eyjarnar, sem það þurftu.
![]() |
Sótti barn til Eyja sem þurfti að komast á sjúkrahús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Er Röskva tímaskekkja?
Ef ég man rétt, er Röskva framboð félagshyggjumanna, þ.e. óháðra og þeirra sem telja sig í flokki með VG, Samfó og Framsókn.
En nú er það orðið þannig, að fylgjendur Samfó og Framsókn eru að týna tölunni. Væri ekki best á næsta ári að hafa þetta í tvennu lagi: "VG og óháðir" og "Leifarnar - framboð félagshyggjufólks úr litlu flokkunum."?
Þetta lítið er spurt...
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Kaupum það!
Og hefnum fyrir ósigurinn á HM og 14-2 á einu bretti. Áfram Ísland!
En samkvæmt þessu er West Ham verðmætasta fótboltafélag heims, því eignir móðurfélags þess er örugglega meira en 42 milljarðar.
Og hvað ætli Abramovich eigi marga milljarða? Þá er kannski Chelsea verðmætasta félag heims.
En mikið er Daninn ruglaður, að segja að þetta smáfélag í Baunalandi sé verðmætara en stórliðin. Og þar að auki er verðmæti t.d. Arsenal meira en 42 milljarðar. Frétti af tilboði í félagið upp á tæpa 60 milljarða. Og var ekki verið að kaupa Liverpool samtals fyrir tæpa 60 milljarða?
![]() |
F.C. København með mesta markaðsvirðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. febrúar 2007
Síðasta tækifæri Hamas?
Leiðtogar Hamas, Khaleed Mashaal og Ismail Haniyeh, og leiðtogi Fatah, Mahmoud Abbas, sitja nú í boði Abdullah, kóngs Saudi-Araba, í Mekka til að gera úrslitatilraun til myndunar þjóðstjórnar og sætta hinar stríðandi fylkingar í Gasa og á Vesturbakkanum. En á meðan skjóta Islamic Jihad samtökin eldflaugum á Ísrael, rétt til að leggja sitt af mörkum til að hindra, að friður komist á fyrir botni Miðjarðarhafs, en fjórar Kassam-flaugar lentu á Ísrael í gær.
Palestínumenn eru nú klofnir í herðar niður, og það í fleiri en tvær fylkingar. Annars vegar er Gasa-svæðið, sem de facto er sjálfstætt ríki Palestínumanna, þó Ísraelar hafi þar enn ítök, t.d. í krafti þess, að þeir stjórna rafmagnsflutningum þangað og af fleiri ástæðum. En Palestínumenn stjórna Gasa, eða svo mætti halda. Vandamálið er, hins vegar, að Sýrlendingar, Íranir og jafnvel Egyptar seilast þar til áhrifa. Gasa var öldum saman, eins og Landið helga í heild sinni, hluti af Sýrlandi, og því telja Sýrlendingar sig hafa þar hagsmuni að gæta. Og Egyptar stjórnuðu Gasa nær samfleytt frá 1948-1967. En Íranir stjórna Hizb'Allah hreyfingunni í Líbanon, sem hefur nú seilst til áhrifa á Gasa, þó aðallega með vopna- og peningasmygli, og þjálfun herskárra liðsmanna palestínskra öfgahópa.

Það er engin óskastaða fyrir Hamas. Þótt samtökin njóti víða stuðnings á Vesturbakkanum, ekki síst vegna þess, að þau reka þar víðtæka félagsþjónustu fyrir erlent gjafafé (eða gerðu það meðan fé barst frá útlöndum), hafa Fatah liðar yfirburðastöðu hvað snertir fjölda vopnaðra liðsmanna. Og það sem meira er, Hamas telur, og það ekki alveg út í bláinn, að Ísraelar hlaði undir Fatah, bæði með vopnum, fé og hernaðarlega mikilvægum upplýsingum, t.d. upplýsingum um dvalarstað foringja Hamas. Hamas þarf því að stíga varlega til jarðar þetta skiptið. Nú má þeim ekki mistakast, ætli samtökin að halda völdum, einir eða í þjóðstjórn með Fatah. Þessu til viðbótar hefur Abbas lýst því yfir, að náist ekki samkomulag í Mekku, muni hann boða til þingkosninga. Talið er líklegt, að í þeim myndi Hamas tapa fylgi, enda ku hinir almennu borgarar að jafnaði kenna Hamas um það ástand, sem nú ríkir. Heimildamaður úr röðum nánustu ráðgjafa Abbasar segja: "Þetta er síðasta tækifæri Hamas".
En Hamas eru ekki samtök einsömul. Dagblað í Kuwait greinir frá því, að Bashar Assad, forseti Sýrlands, hafi ákveðið taumhald á Hamas. Foringi Hamas, Mashaal, býr í skjóli hans í Damaskus, og frá Sýrlandi berast vopn og vistir til Hamas-liða, jafnan eftir allskonar krókaleiðum. Og Assad hefur nú aðvarað Mashaal, og lagt hart að honum að gera engar málamiðlanir við Fatah.
En á móti kemur að Saudi-Arabar leggja hart að báðum aðilum að slíðra sverðin. Og þeir "hafa mikið að bjóða", sagði einn embættismanna Palestínumanna. Þeir hafa nær ótakmarkað fé, sem nota má til uppbyggingar á Gasa og Vesturbakkanum, og þar að auki eru þeir á afar vinsamlegum nótum við Bandaríkjamenn og Evrópusambandið, og gætu þannig náð að setja þrýsting á Ísraela. Og það sem meira er, eins fáránlegt og það virðist, hafa ýmis samskipti átt sér stað milli þeirra og Ísraela, þrátt fyrir að formlega séð sé Gyðingum bannað að stíga fæti á saudi-arabíska jörð. Það formsatriði hefur þó stundum verið brotið. Það hefur ekki farið hátt, en spurst hefur út, að ef friðarsamningar takast milli Ísraels og Palestínumanna, þess eðlis að tveggja-ríkja lausnin verði endurvakin (en þeirri lausn höfnuðu Arabar 1948 og blésu til stríðs, sem enn stendur formlega séð) og að amk flest helstu deilumálin leysist, muni Saudar taka upp viðskiptasamband við Ísrael, og jafnvel stjórnmálasamband. Saudar hugsa m.a. til þess, að Ísraelum hefur tekist afar vel að rækta upp auðnir og eyðimerkur, bæði heima fyrir og t.d. í Jórdaníu og á Sínaí, en af slíku eiga Saudar nóg. Ísraelar gætu þá aðstoðað Sauda með nauðsynlegri tækniþekkingu, en fengið olíu í staðinn. Og báðir græða.
En til þess að koma á friði, þurfa fylkingar Palestínumanna að friðmælast og taka upp samstarf. Það gæti verið, því vegalagning Ísraela nærri Musterishæðinni, þar sem endurbyggja á brú sem er við það að hrynja, hefur sameinað Fatah og Hamas, og urðu nokkur mótmæli þar í gær. Hafa báðar fylkingar krafist, að frakvæmdirnar verði stöðvaðar, þótt í raun séu það Palestínumenn sem græða, verði brúin lagfærð, því hún mun bæta aðgengi að hæðinni, og sértaklega Al-Aqsa moskunni. En Palestínumenn gruna Ísraela um græsku, að þeir ætli að eyðileggja moskuna eða þaðan af verra. Ég held þó, að þar fari paranoia Palestínumanna offari.
En í veginum fyrir myndun þjóðstjórnar stendur enn, að Hamas neitar algjörlega að viðurkenna Ísraelsríki og hafa talsmenn samtakanna staðfastlega ítrekað þá stöðu sína. En það atriði er grundvallaratriði þess, að Vesturlönd, Rússland og Kína taki mark á ríkisstjórn Palestínumanna. Því verður að álykta, að þrátt fyrir góðan vilja af beggja hálfu til að leysa málin, muni allt stranda á því, að Hamas vill ekki frið í víðara samhengi, heldur áframhaldandi stríðsátök við Ísrael. Þar stendur hnífurinn í kúnni.
![]() |
Samkomulag um nýja Palestínustjórn væntanlega undirritað í þessari viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)