Jude Law á Íslandi!

Sbr. frétt á Vísi.

En ég segi bara: "Só vatt"?

En skrítið að Mogginn, sem hefur verið upptekinn af fræga fólkinu og slúðri um það, skuli ekki hafa birt þetta?law


Andstyggileg meðferð á börnum

Þetta er nú alveg ótrúlegt. Hvernig yfirvöld gátu brugðist...þetta fer að minna á svipuð mál hér á Íslandi. En þetta, að eyðileggja svona líf barnanna sinna, er með hreinum ólíkindum. Og, að börnin skuli ekki hafa náð að brjótast út einhvern veginn.

En í hnotskurn: Kellingin snarbiluð og yfirvöld brugðust. Sveiattan!


mbl.is Einangraði þrjár dætur sínar frá umheiminum í sjö ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dóni! Þú ert sjálfur dóni!

Persónulega finnst mér þetta óþarfi hjá Steingrími, en hins vegar er þetta orðið stór hluti af talmáli Íslendinga og skil ekki alveg þessa viðkvæmni Guðjóns, því ég vissi ekki að hann væri með eitthvað betra siðferði en aðrir...gæti verið, en ég veit ekki til þess.
mbl.is Kvartað yfir blótsyrðum í þingsal Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig vinna má þingkosningar?

T.d. gæti Framsókn sent Jón Sigurðsson út í geim og leyft geimgeislum að leika um hann, osfrv. Hann gæti þá komið heim berrassaður í framan og jafnvel farið að tala mannamál við fólk. Kannski þyrfti svo að senda GUðna með, í von um að finna nokkur fræ, sem Kínverjarnir hafi misst í gólfið.

Nú, Samfó gæti sent ISG þarna út í von um að hún skáni aðeins.

Svona mætti lengi halda áfram, en meginþeman er, að breytinga er þörf á sumum flokkum og forystuliði þeirra. Og stökkbreyting getur varla verið verri en venjuleg breyting?


mbl.is „Geimkartöflur“ nýjasta æðið í Sjanghæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýringin á fylgistapi Framsóknar!?

Framsóknarmenn á Kanarí og skildu Bjarna Harðar eftir til að passa flokkinn?
mbl.is Fjölsóttur framsóknarfundur á Klörubar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakönnun Fréttablaðsins

samfylkingarblad_nordausturJæja, minna en helmingur meintra kjósenda Samfó segist treysta Ingibjörgu Sólrúnu best stjórnmálamanna. Og flestir segjast treysta henni minnst. Kemur ekki á óvart svosem. Hún er ótrúverðugur stjórnmálaforingi, sem virðist þó hafa komist svona langt fyrst og fremst vegna kynferðis síns, þar eð margir hafa í gegnum tíðina kosið hana "af því að hún er kona". Og þeim fer nú fækkandi, sem kjósa hana eða styðja vegna (meintra) stjórnmálahæfileika.

Sjálfur treysti ég henni ekki. Ég hef tvisvar sent henni fræðitengd erindi. Í fyrra skipið var hún borgarstjóri. Hún svaraði því erindi ekki á þeim fjórum árum (held ég), sem hún átti eftir í stóli borgarstjóra. Hitt erindið sendi ég þegar hún var komin í landsmálin, og leitaði sagnfræðilegra gagna, sem hún hafði vitnað í, en fannst ekki á Landsbókasafni. Því erindi var heldur ekki svarað.

Ég veit ekki af hverju hún ákvað að hunsa mig í bæði þessi skipti. En mér er eiginlega sama. Síðan er fyndið að sjá, þegar kratarnir hafa hátt í þinginu og kvarta yfir því að ráðherrar svari illa eða ekki erindum þingmanna. Mig minnir, að ISG hafi einhvern tíma látið svoleiðis, þó ég þori ekki að fullyrða það alveg. En ef svo var, hef ég bara eitt að segja við konu þessa: Hræsnari.

 


mbl.is Flestir treysta Geir af stjórnmálaleiðtogunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helgin

Þetta var skrítin helgi. Laugardagur til lukku átti ekki allskostar við, og þó. Ég vaknaði eldsnemma og var kominn upp á skrifstofu um sex leytið að morgni. Mér líkar að mæta snemma, áður en aðrir koma, svo maður fái nú vinnufrið. Það var þó lítið um vinnu, heldur var ég að sinna laugardagsverkunum, t.d. þrífa, tæma ruslafötur, vaska upp og svoleiðis. Slíkt þarf víst líka að gera.

Ég notaði þó tíma til að vinna aðeins í bókinni, sem ég er að skrifa í hjáverkum. Fjallar hún um kommúnistahreyfinguna á Íslandi 1918-1927. Nota ég þar fjölda heimilda, sem aldrei hafa áður verið notaðar og því er þar margt skemmtilegt að finna, m.a. held ég fáir hafi áður vitað, að aðalfulltrúi Íslendinga á heimsþingi Kominterns 1921, Ólafur Friðriksson ritstjóri, var handtekinn við komuna til Rússlands. Mun hann vísast hafa verið fyrsti erlendi bolsévíkinn (en svo kallaði hann sig á þeim tíma), sem var handtekinn í Ráðstjórnarríkjunum, en ekki sá síðasti.

Ég var líka aðeins með hugann við skákina. "Fallbyssurnar" (stigahæstu skákmennirnir) tefldu saman í þriðju umferð Meistaramóts Hellis á föstudagskvöldið. Reyndar höfðu tvær skákir á toppnum verið tefldar fyrirfram á fimmtudagskvöldið, þar sem Sigurbjörn Björnsson, skákmeistari Rvk 2007, sigraði Hrannar Baldursson í Cozio-afbrigðinu í Spænskum leik. Það afbrigði er að verða vinsælt hér á landi, ekki síst fyrir tilstilli Björns Þorfinnssonar, (Húnsins), sem hefur náð ágætis árangri með því afbrigði. Hann beitt því einnig gegn mér þetta sama kvöld, en tapaði í æsispennandi skák. Síðan gerðist það á föstudagskvöldið, að stigahæsti maður mótsins, Bragi Bjössabróðir, tapaði gegn Ingvari Þór (X-bitanum hér á blogginu) Jóhannessyni í merkilegri skák, þar sem Ingvar endurtók leiki stórmeistarans Fressinets gegn Ingvari á Rvk open 2006 og vann örugglega. Þar má segja, að Ingvar hafi lært af reynslunni. Bragi tók þessu karlmannlega, og þegar ég benti á þetta, meðan á skák þeirra stóð, á Skákhorninu (skak.hornid.com) kom Bragi inn til andsvars og sagði. "Ég heiti Bragi Þorfinnsson. Ég var tekinn". Skemmtilega orðað. Önnur óvænt úrslit urðu, þegar Davíð Ólafsson, þriðji stigahæsti maður mótsins (á eftir þeim Þorfinnssonum), tapaði illa fyrir Jóhanni Ingvasyni úr Keflavík. Þau úrslit komu mér ekki á óvart, en ég hafði rölt upp i Hellisheimili og séð stöðuna. Þá var komin upp kunnugleg staða, sem ég hef oft teflt áður. Dabbi teflir alltaf sín vafasömu afbrigði aftur og aftur, og hafði hér lent í gömlu bragði, sem ég hafði oft beitt á yngri árum. Tap hans kom mér því ekki á óvart, þannig séð, þó fyrirfram hefði ég talið Davíð sigurstranglegri. Ég ætlaði að vera duglegur á laugardeginum og stúdera eitthvað fyrir skákina gegn Sigurbirni á mánudagskvöldið (í kvöld), en einhverra hluta vegna varð lítið um efndir.

Síðan kom enski boltinn og megum við Arsenal-menn ágætlega við una. Bæði Liverpool og Tottenham töpuðu. Ég fagnaði því á umræðuhorni skákmanna (Gjallarhorninu) og fékk yfir mig gusu frá eldheitum Púlurum, sem voru sárir. Síðan tapaði West Ham, Íslendingaliðið, fyrir Watford. Nú verður erfitt fyrir Egg-ert að halda félaginu upp í efstu deild. Þessi úrslit hafa vísast eyðilagt helginga fyrir Ingvar X-bit. Arsenal sigraði síðan leik sinn á sunnudaginn, með dálítilli heppni reyndar.

En jæja, sunnudagurinn var ágætur svosem. Enn nennti ég ekki að stúdera fyrir Sigurbjörn, en hafði í mörgu að snúast. Börnin hans Munda bróður komu í heimsókn, 4 stykki samtals (ég seldi honum minn tveggja barna kvóta!), og þau hjónin með. Þessu litlu krútt eru yndisleg og var sá yngsti, Arnar Máni, ekkert á því að fara aftur og vildi vera áfram hjá Snorra frænda. Flashback frá því sá næst yngsti (Ívar) var á sama aldri. Ég skal fúslega viðurkenna, að ég hef verulega "soft spot" fyrir þessum börnum. Þau eru svo saklaus og yndisleg, eitthvað sem ég er ekki. Þessir litlu ungar eru, ásamt foreldrum mínum og systkinum, einu persónurnar í heiminum, sem ég myndi glaður deyja fyrir, væri þess þörf. Ég gæti ekki þótt meira vænt um þau, væru þau mín eigin. Jafnframt eru hin sömu þau einu, sem gætu fengið mig til að beita ofbeldi. Ég veit ekki hvað ég myndi gera, ef einhver utanaðkomandi myndi gerast ósæmilegur í þeirra nærveru. Mér þætti líklegt, að þá færi viðkomandi á sjúkrahús, en ég á Hraunið.

En jæja, hluti sunnudags fór í að setja upp leiksýningu á óskáktengdu umræðuhorni okkar skákmanna. Þar tókum við Gunzó (http://gunnarb.blog.is) hefðbundna rimmu um kosti og galla Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Við tökum svona leikrit stöku sinnum, þegar efni standa til, en fyrst og fremst í stríðni. Ég held, með fullri virðingu fyrir öðrum skákmönnum, að við tveir séum stríðnustu skákmenn Íslands. Sumir fatta þó ekki, að þegar hann ræðst á Sjálfstæðisflokkinn á horninu er það m.a. til að egna mig (og etv aðra "Sjalla") til andsvars, og öfugt. Hið sama gildir þegar ég skrifa um Samfó, og því héldu menn að við værum komnir í alvarlegt hár saman! En auðvitað er nokkur alvara að baki, eins og jafnan er með stríðni.

En ég sá fyrir klakkandi Gunzó, og hann hefur vísast grunað, að ég væri glottandi á móti. En við lékum þetta vel, held ég, enda reyndi ég amk að hljóma afar sannfærandi og notaði ýmsar röksemdir. En þetta er góð æfing, því það er mjög erfitt að rífast um pólítík við Gunzó, þar eð hann svarar ekki beinlínis spurningum eða aðfinnslum, heldur kemur fram með aðrar á móti. Því kemur jafnan aldrei nein niðurstaða úr þessu, heldur aðeins skemmtileg útrás fyrir polítískan óveruleika. En jæja, gaman að þessu.

En síðan var helgin búin og mánudagur til mæðu tekur við. C'est la vie!


Bloggfærslur 12. febrúar 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband