Laugardagur, 8. desember 2007
Verður Rafa rekinn?
Ja, mér er spurn. Þetta lítur amk ekki vel út núna í deildinni. Liverpool er að missa Arsenal - Man Utd og Chelsea fram úr sér. Að vísu er munurinn ekki ýkja mikill, en þó!
Jæja, maður bíður spenntur....og hugsar hlýtt til Gunners, sem spila á morgun.
![]() |
Reading vann góðan sigur á Liverpool, 3:1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 8. desember 2007
Glæpamaður
En ég skil ekkert í Sveini Rúnari að hafa ekki stofnað vinasamtök Íslands og Zimbabwe? Já, og lýst yfir stuðningi við þennan rudda.
En hver veit nema SR stofni vinasamband við hvíta minnihlutann? Er hann ekki kúgaður?
![]() |
Fogh segir Mugabe glæpamann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 8. desember 2007
Íslenskir drykkjurútar?
OK, áfengisdrykkja hefur aukist töluvert hér á landi frá 1980, og mest allra ríkja í OECD.
En mig grunar að 1980 hafi Íslendingar drukkið minnst, enda var þá bjór bannaður og úrval léttvína lítið, svo drykkja fór aðallega fram á fylleríum og í bóhemisma...að því að ég best veit.
Drykkjusiðirnir hafa breyst. FLeiri drekka og oftar, en sennilega hlutfallslega minna í einu. Menn eru ekki á stöðugum brennivínsfylleríum.
Annars þekki ég engar tölur og tilheyri ekki þessum heimi sjálfur, en mig grunar að Íslendingar séu enn aftarlega á merinni í drykkju í löndum OECD, þó hlutfallið hafi aukist á 25 árum. Enda drekkum við aðeins 7,1 lítra á haus, miðað við 9,5 (ef ég man rétt) meðaltal OECD.
Og Írar drekka mest. Það kemur ekki á óvart!
![]() |
Áfengisdrykkja jókst mest á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 8. desember 2007
Barátta öryrkja
En það háir hins vegar öryrkjum, að Sigursteinn Másson er formaður ÖBÍ. Mig grunar, að hann hafi frekar verið öryrkjum til trafala en hitt.
![]() |
Öryrkjar vilja aðgerðir strax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)