Um það snýst leikurinn kallinn

Skrítið, að maðurinn sé knattspyrnustjóri og viti ekki að leikurinn snýst um að skora mörk! Grin
mbl.is Benítez: Gerðum allt nema skora
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borið úr bakkafullum læknum

"Niðurföll hafa ekki undan og flæðir skítur og pappír upp úr og niður í
tjörnina þar sem venjulega eru börn að gefa öndunum."

 

Úff, það er slæmt að búa í Kópavogi núna.


mbl.is Kópavogslækur flæðir yfir bakka sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðileg niðurstaða

Auðvitað átti Man City að spila eins og menn og taka þetta, en ekki liggja í vörn eins og hænur.
mbl.is Markalaust hjá City og Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlskyns óveður!

Nu gleðjast femínistarnir, því "það" er gengið niður á óveðrinu.
mbl.is Óveður gengið niður við Faxaflóa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, er þetta bara það sama

og í Sjálfstæðisflokknum??

Nema hvað að Geir er official formaður, en Borgar stjórnar innra starfi flokksins í samráði við móður sína?

Eins og ég sagði áður, þá veit ég ekki hvort það sé gott eða slæmt, en mér sýnist þessi raunin vera á.
mbl.is Sonur Bhutto einungis formaður í orði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Indverska módelið

Já, Congress-flokkurinn á Indlandi hefur átt í erfiðleikum með að útnefna aðra leiðtoga en þá, sem koma úr Gandhi-fjölskyldunni.

PPP hefur nú viðhaldið þessari stefnu líka.

Mér sýnist Sjálfstæðisflokkurinn á góðri leið með að taka upp sama system, eða er það ekki?
mbl.is Sonur og eiginmaður Bhutto taka við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg rétt

Stórstjörnustælar eru gjörsamlega óþolandi, sbr. td hjá Vein Rúní, eins og kom ma fram í Mbl í dag. Óþolandi svona hrokagikkir, sem halda að þeir séu yfir aðra hafnir, bara af því að þeir kunna að sparka svínaskinni.

Svona menn eru bara einfaldlega MUPPET. Málið dautt.


En ég held að ég hafi aldrei verið jafn sammála Ferguson á ævi minni.


mbl.is Ferguson varar sína menn við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1 Anno Saddami

Jæja, þá er fyrsta árið liðið í hinu nýja tímatali margra súnníta í Írak, eitt ár liðið frá aftöku Saddams.

Á þessu ári hefur verið ófriðvænlegt í Írak, þó ástandið hafi reyndar skánað örlítið upp á síðkastið. En Saddam hvarf af landi lifenda og farið hefur fé betra, eins og sagt er. Þótt maður sé á móti aftökum per se, er maður fús til að gera einstaka undantekningar og set ég Saddam í þann hóp. Maðurinn átti ekki skilið að lifa, og svo get ég aðeins sagt um örfáa menn.

En ætli Írak verði nokkurn tíma friðvænlegt, nema e.t.v. annar harðstjóri, og ekki síður grimmur, komist þar til valda á komandi árum og hreinsi til?
mbl.is Ár liðið frá aftöku Saddams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert óvænt svosem

Bin Laden er greinilega í erfiðri aðstöðu eftir morðið á Bhutto. Al-Kaida hefur verið kennt um morðið og má í því ljósi telja ólíklegt, að hann njóti mikils stuðnings málsmetandi manna í heimi íslams. Hann grípur því til þess sama og Saddam og fleiri hafa gert, þegar þeir eru komnir út í horn, að byrja að tala um að eyða Ísrael. Þetta er ekkert nýtt svosem, þetta hafa leiðtogar flestra ef ekki allra Arabaríkja talað um einu sinni eða oftar.

Hitt er svo annað mál, að líklegt er að þessi upptaka hafi verið gerð áður en Bhutto var myrt. Það bendir síðan til, að hann hafi þá þegar verið kominn út í horn. Hann er í vörn og hugsanlega hefur það eina góða við Bin Laden, gott vit hans á fótbolta, sest í skapið á honum eftir slæm úrslit nýlega.


En Bin Laden hefur engin völd, og lítil áhrif, utan ákveðins hóps manna, hinna róttækustu íslamista. Það breytir því ekki svo miklu, hvað Bin Laden segir, nema hvað hætta er á að frekari hryðjuverk eigi sér stað. En sú hætta er hvort sem er alltaf fyrirliggjandi.

Því breytir þetta ávarp Bin Ladens í raun engu, nema hvað að hann er greinilega búinn að mála sig út í horn. En hvernig sem öðru líður, þá hefur hann gervihnattadiska í hellum sínum og notar þá m.a. til að horfa á leiki Arsenal í fótboltanum. Hann hlýtur því að vera glaður akkúrat núna, eftir sigur Skyttnanna á Everton í gær.
mbl.is Bin Laden boðar nýtt heilagt stríð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurtætari að verki

Við þurfum að fá svona hingað á klakann. Þetta gæti t.d. nýst vel til að tæta menjar um ýmis mistök fortíðar, t.d. stefnuyfirlýsingar ónefndra flokka.

 

Annars þyrfti míni-tætari að vera til á hverju heimili. LoL


mbl.is Slæmar minningar tættar í sundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Bloggfærslur 30. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband