Laugardagur, 29. desember 2007
Hörmulegur atburður: skoskur fótboltamaður deyr í miðjum leik
Svona lagað hefur verið að gerast alltof oft nú upp á síðkastið. Hvað ætli valdi því að menn í fínu formi hníga svona niður og látast.
En samúðarkveðjur til Skota. Þetta er hörmulegt áfall fyrir Skota og skoskan fótbolta, sem hefur átt sitt besta ár mjög, mjög lengi.
![]() |
Skoskur knattspyrnumaður lést |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 29. desember 2007
Man Utd tapar gegn Landsbankanum
Ætli Björgúlfur hafi ekki sent leikmönnum Man Utd vínkassa fyrir jólin?
Ég græt þetta ekki. Man Utd fengu efsta sætið bara lánað í nokkra daga, uns hinn réttmæti eigandi snýr aftur.
En nú þurfa mínir menn bara að taka hið sterka lið Everton.
Áfram Arsenal
![]() |
West Ham sigraði Manchester United |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 29. desember 2007
Bankavín
Þetta er dónaskapur við trúfasta viðskiptavini. Þetta er shaky system.
Hvað er Grjóni bankastjóri eiginlega að pæla?
![]() |
Ráðherrar fengu vín frá Landsbankanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 29. desember 2007
Áramótafatnaðurinn
Sæng, koddi, teppi, --- innandyra.
Málið dautt.
![]() |
Kvenlegar og fágaðar um áramót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 29. desember 2007
Sumarfrí
En munurinn reyndar á þessu skipi og hinu síðasta var, að þetta skip hét FRAM og því eðlilega traustara og betur búið!

Hefði það heitið MS KR, hefði það sokkið með manni og mús, ekki spurning.
![]() |
Norskt skemmtiferðaskip rakst á ísjaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 29. desember 2007
Fýlupoki
Góður framkvæmdastjóri / þjálfari hefði fyrir löngu blandað sér alvarlega í toppbaráttuna í Englandi með því að hafa eytt jafn miklu og Benítez í leikmenn.
Það er kannski þetta, sem Benítez er fúll yfir. Hann er einfaldlega ekki nógu góður í enska boltanum, þó hann sé solid í CL.
![]() |
Hicks: Benítez fór í fýlu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 29. desember 2007
Auglýsingabrella hjá Bónus?
Nú er orðið "króna" allt í einu orðið neikvætt og merki um okur og pretti.
Ætli þetta hafi ekki bara verið skipulagt hjá Bónus?
![]() |
Hundeltur af krónu í kerfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 29. desember 2007
Ótrúlega sætt!
Flott að vinna Stjörnuna og hefna fyrir slysið um daginn. Og nú verður gaman að hitta fyrir ónefnda fylgismenn Stjörnunnar.
Jæja, Stjörnumenn stóðu þó í Safamýrarpiltunum.
Áfram FRAM
![]() |
Fram mætir Haukum í úrslitaleiknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 29. desember 2007
Frjáls, óháð völvuspá!
Var að lesa frjálsa og óháða völvuspá "Dhörmu".Hún kemur svosem ekki á óvart, frekar en Dharma í Dharma og Greg.
Fastir liðir í völvuspám er að tala um veður, og þá þykjast menn vera gríðarlega kyngimagnaðir þegar þeir tala um að veður verði rysjótt... á Íslandi. Gríðarlega mikil spámennska.
Jörð mun skjálfa. Húrra. Jarðskjálfti? Á Íslandi? Farðu út úr bænum!
Íslendingar munu gera það gott erlendis á árinu. Nei, er það virkilega? Kannski hinir sömu og hafa gert það gott hingað til? Mögulega?
En svo ég setji nú á mig töfrahattinn og spái fyrir um næsta árið þá segi ég eftirfarandi:
Það verður virkilega leiðinlegt veður um allt land á næsta ári, og það segi ég vegna þess að síðasta sumar var frábært og lögmál Murphys segir okkur að næstu ár munu vera "payback". Fyrir hvert eitt gott sumar koma 5 ömurleg. Veðrið á næsta ári mun sjúga feitan tíma.
Kosið verður á árinu. Um forseta. Já, ég segi það og skrifa og stend við. Ólafur Ragnar býður sig fram, og við munum sjá harkalega kosningabaráttu sem skilur embættið eftir í sárum um ókomna tíð. Ólafur sigrar með naumindum.
Efnahagsþrengingar ríða yfir landsmenn og loksins nær neyslufylleríið í skottið á landsmönnum sem lifað hafa um efni fram undanfarin ár. Og kominn tími til. Jólaverslun næstu jóla verður ekki nema brot af því sem hún var núna.
Ríkisstjórnin springur, enda ekki hægt annað með næturpenna eins og Össur innanborðs. Ingibjörgu er ekki treystandi fyrir húshorn og hún mun sæta lagi um leið og færi gefst til að labba út úr stjórnarráðinu og myndar stjórn með Framsókn, VG og Frjálslyndum. Ekki verður boðað til kosninga, enda taka Framsóknarmenn slíkt ekki í mál. Ingibjörg verður forsætisráðherra, en VG gerir tilkall til fjármálaráðuneytisins, þar sem Ögmundur verður húsbóndi.
Í kjölfar nýrrar ríkisstjórnar munu bankarnir og hin stærstu fyrirtækin í Kauphöllinni ákveða að færa höfuðstöðvar sínar til annars lands. Ríkissjóður verður af milljarðatugum í skatttekjur, og bilið mun Ögmundur vilja brúa með hækkun tekjuskatts á almenning. Samfylkingin verður þegjandi ambátt í ríkisstjórninni, enda búin að gera Sjálfstæðisflokkinn afhuga sér á meðan Ingibjörg situr sem formaður, og hún á engra kosta völ.
Atvinnuleysi eykst mikið í kjölfar nýrrar ríkisstjórnar og almenn upplausn mun ríkja í landinu og blikur á lofti, og margir munu flytja sig um set með fyrirtækjunum til nágrannalanda, og eftir verða þeir sem það geta ekki eða stendur það ekki til boða. Ísland verður að þróunarríki þar sem hinn menntaði og verðmætaskapandi hluti þjóðarinar hverfur á braut.
En fyrir utan þetta verður allt bara meiriháttar, KR verður Íslandsmeistari og við lendum í 4. sæti í Júróvisjón með hnyttnu lagi Barða.
Góðar stundir
Úff, þetta er ekki fögur lýsing. Og það versta er, að KR verður Íslandsmeistari! Nei takk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 29. desember 2007
Glæsilegt!
![]() |
Margrét Lára íþróttamaður ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)