Glæsilegt

3Glæsilega gert strákar. Ég er mjög stoltur af þessum sigri.

Áfram Arsenal.
mbl.is Arsenal lagði Chelsea og er aftur efst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfisvæn jólagjöf?

Ég vil nú biðja vini og vandamenn, að gefa mér ekki þá jólagjöf, sem hér er mælt með!


mbl.is Umhverfissamtök mæla með g-streng í jólapakkann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IBM

IBM hét einu sinni International Business Machines Corporation (IBM). En nú eru semsagt að verða breytinga, þó skammstöfunin fái að haldast:


Indian Business Machines Corporation (IBM),

 

Jahérna hér. Tunnan valt, aumingja Kíki.


mbl.is Einn fimmti starfsfólks IBM er nú á Indlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafntefli

0-0,1-1 ?

Hér eigast við liðin í 2. og 5. sæti í ensku PL. En stórleikur dagsins byrjar kl. 16.00, þegar liðin í 1. og 3. sæti eigast við, Arsenal og Chelsea.
mbl.is Man.Utd á toppnum eftir sigur á Anfield
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjart er yfir Betlehem?

Það er ógleymanlegt að koma til Betlehem á jólum. Ég laumaðist þangað einu sinni með Óla Jó, þrátt fyrir að þá hafi verið vígalegt víða og borgin lokuð. En menn komast víða, ef viljinn er fyrir hendi.

Þetta var semsagt ógleymanlegt. Við fórum síðan áfram til Beit Jala, sem er bær fyrir utan Betlehem og drukkum þar kaffi á Mount Everest, á hálftómu hóteli.

En það versta við Betlehem er, að múslimar hafa náð að hrekja kristna meirihlutann í burtu, svo nú eru kristnir menn aðeins um 20% íbúanna, í stað þess að vera þar c.a. 75% eða meira.


mbl.is Margir á leið til Betlehem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var of lengi í Rússlandi

Það er nokkuð ljóst að kona þessi hefur dvalist of lengi í Rússlandi.

En ef maður ber saman framgöngu í einræðisríkinu Rússlandi og "lýðræðisríkinu" Bandaríkjunum má greina, að í fasistaríkinu hafi framkoman verið skárri, amk eru engar fréttir af samkonar ofbeldi og Erla Arnardóttir lenti í þegar hún kom til Bandaríkjanna, eða verra.


Rússland getur því miður ekki talist land frelsis og heimili hinna hugrökku, engu frekar en USA, en maður fer að velta fyrir sér, á hvorum staðnum skrifræðið og kúgunin sé meiri.


Ok, ég er pissfúll út í USA, viðurkenni það alveg.
mbl.is Blaðakonu meinað um að snúa aftur til Rússlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rautt

Jæja, Jói Kalli spilar samasem ekkert, en þegar hann kemur inná fær hann annað hvort gult eða rautt.


Kjölfestan á miðjunni í landsliðinu sko!
mbl.is Jóhannes Karl rekinn af velli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband