Málæðið stöðvað

Nótt hinna löngu hnífa...eða ræðna... er gengin yfir. Og málæðið er runnið sitt skeið á enda.


Og þingmenn komast nú afslappaðir í jólafrí...og sumarfrí næsta sumar, án þess að eiga von á löngum næturfundum með viðeigandi málþófi.

Batnandi þingi er best að starfa.
mbl.is Þingskapafrumvarp orðið að lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðalaldur í starfi

Þetta útgáfubatterí virðist hafa þá stefnu að skipta um ritstjóra á blöðum og tímaritum sínum á nokkurra mánaða fresti.

Eins og enginn þeirra standi sig í starfi?


En merkilegt að Kaupás skuli hafa náð að fella Ísafold og koma því fyrir róða...amk ef marka má yfirlýsingar Ísafoldarmanna og eigenda þeirra. Mig grunar þó að Kaupásmálið hafi bara verið alibi fyrir það, að blaðið er ekki að meika það og eigendurnir vilja loka því. Og gott að klína því bara á Kaupás.
mbl.is Sigurjón til Mannlífs og Jón Reynir til DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórleikir á sunnudag

Jæja, tveir ofurstórleikir á sunnudaginn, þám Arsenal - Chelsea. Ég sagði það í sl. viku að Cesc yrði örugglega með gegn Chelsea, annað kæmi ekki til greina. Ég er enn sömu skoðunar.

Vonandi að mínir menn nái að stilla upp sterku liði og hafna Chelsea á Emirates.

Og síðan er Liverpool - Man Utd. Púlarar í formi og Man Utd líka, og þeir síðarnefndu fá e.t.v. Hargreaves aftur.


Ljóst hvað maður verður að gera á sunnudaginn.


Áfram Arsenal!


mbl.is Fabregas hugsanlega með gegn Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru nú ljótu hálfvitarnir!

Takk.

En þetta hljómsveitarnafn er auðvitað það allra besta á markaðnum.
mbl.is Ljótu hálfvitarnir gefa þjóðinni jólalag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málæðisþreyta

Gott orð. Já, slík þreyta hefur safnast upp með árunum, sérstaklega sökum málæðisofsa ákveðinna þingmanna sem nær undantekningarlaust koma úr einum og sama flokknum.
mbl.is Ekki lýðræðisþreyta heldur málæðisþreyta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frí í skólanum?

Vá, þetta var alltaf svo gaman í den, þegar óveður gekk yfir. Þá fékk maður oft frí í skólanum.

En ætli skólahaldi sé ekki aflýst í dag, eða?
mbl.is Foreldrar beðnir um að halda börnum heima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjálað veður

Ég sit hér á skrifstofunni kl. 06.40 og hlusta á storminn gnauða fyrir utan gluggann. Ljósastaurar hristast og skjálfa, og jafnvel 1,3 tonna bíllinn minn var rétt áðan í svipaðri aðstöðu.

Og ég hafði skilið gluggann eftir opinn í gær, þegar ég fór heim. En allt í góðu.


Persónulega vil ég frekar fá rok og rigningu en frost á Fróni, jafnvel í öfgakenndri útgáfu. En ég held þó, að margir séu ekki sama sinnis, sérstaklega þeir sem verða fyrir tjóni vegna þessa.


En "gaman" samt að fá smá öfgar í veðrinu stöku sinnum, rétt til að  minna okkur á, að við búum á Íslandi. 
mbl.is Stormviðvörun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband