Fimmtudagur, 13. desember 2007
Cappello landsliðsþjálfari Englendinga
Ok, Englendingar munu á komandi misserum ná betri árangri með landsliðið, það er pottþétt.
En leiðinlegan fótbolta munu þeir spila...og var ekki ábætandi. Úff, þetta verður leiðinlegasta landslið heims...sorry, næst leiðinlegasta, á eftir Íslendingum.

![]() |
Ráðning Capellos staðfest með fyrirvara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 13. desember 2007
Svangur þjófur
En merkilegt að JustEat skuli ekki hafa fattað þetta með Auðun Blöndal?
En hvorn ætli þjófurinn hafi átt við, sjónvarpsmanninn eða afann?

Sveik út skyndibita fyrir 126 þúsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 13. desember 2007
Skráaskiptadómsmálin
Mér skildist að DC ++ málið hafi átt að koma fyrir dóm í vikunni, eða eikkað svoleiðis. Veit einhver hvernig það dæmi fór?
Og torrent.is málið átti að vera í dómsal í gær, 12. des., þar sem átti að reyna að hnekkja lokun síðunnar. Veit einhver eitthvað?
Og torrent.is málið átti að vera í dómsal í gær, 12. des., þar sem átti að reyna að hnekkja lokun síðunnar. Veit einhver eitthvað?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 13. desember 2007
Réttilega að staðið!
Og hún má svosem í leiðinni krefjast afsökunarbeiðni fyrir fleiri, sem hafa lent í svipuðu.
![]() |
Mun krefjast afsökunarbeiðni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 13. desember 2007
Snjóboltakastið kært!
Þessi kona er nú ekki með öllum mjalla. Greinilegt að Ástralir eru óvanir snjó og snjóboltum.
Þetta hefði nú verið kallað "ástarbolti" hér í den, en að kalla svona "illvíga árás" er auðvitað tóm della.
Hitt er svo annað mál, að stundum er óþægilegt að fá í sig snjóbolta, en að kæra menn fyrir svona er auðvitað út úr öllu korti.

Sakaður um snjóboltaárás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 13. desember 2007
Réttur til málþófs?
Jæja, þingskaparmálið heldur áfram á þingi. Nú vilja allir flokkar, nema VG, hagræða í þingsköpum og gera þau nútímalegri. VG er einn flokka á móti, enda hafa málþæfingarmenn gjarnan komið úr þeim flokki, eða forverum hans.
Málþóf á þingi getur verið hrútleiðinlegt, ekki síst þegar málþófi er beitt á slæmum tímum, t.d. þegar stutt er eftir af þingi og svoleiðis, svo nauðsynleg mál verða eftir og ná ekki að klárast. Og til hvers að beita málþófi? Jú, til að tefja mál frá því að vera samþykkt, ekki til að stöðva þau.
Málþóf er semsagt framið til að hindra hin lýðræðislega kjörna meiri hluta frá því að koma málum í gegn um þingið. Réttur meiri hlutans til athafna er þarmeð takmarkaður, aðeins til að hávær minni hluti nái að gaspra og vekja athygli á sérskoðunum sínum.
Ég er á móti tilgangslausu málþófi, sem hamlar lýðræði og skerðir virðingu Alþingis. Þó minni hluta menn hafi vissulega málfrelsi, skv. lögum og stjórnarskrá, getur hann þá bara komið skoðunum sínum á framfæri á viðeigandi stöðum, t.d. með útgáfu dreifibréfs eða einhverju, í stað þess að trufla starfsemi þingsins og gera þingmenn gráhærða fyrir aldur fram.
Ég held að VG sé hér að gera stór mistök, pólítískt séð. Fyrir utan þann hefðbundna frasa, að VG sé "alltaf á móti öllu", þá sé ég ekki betur en að flestir landsmenn séu þreyttir á málþófi VG-manna á þingi og vilji takmarka ræðutímann, enda hljóta þingmenn að vera það sjóaðir, að þeir geti komið máli sínu til skila á skemmri tíma.
Réttur til málþófs? Nei takk.

Rætt um fjárlög til rúmlega 3 |