Trabantssaga

Það var hér í den, að frændi minn átti Trabant, a.m.k. einn ef ekki tvo eða fleiri. Það var áður en hann keypti sér Skoda.


Hann er semsagt ættaður úr Skaftafellssýslu eins og sumir aðrir og fór oft á tíðum heima á fornar slóðir að heimsækja foreldra sína og ættaróðalið. En þær voru nokkuð erfiðar sumar brekkurnar, t.d. þær í Mýrdalnum og í næsta nágrenni.


Ég man þetta nú ekki nákvæmlega, en það veit ég, að í sumum brekkunum var það lenska, að Trabantinn dreif ekki upp brekkuna og þurfti hann að senda konuna og krakkann/krakkana út  og urðu þau að ganga upp, eða jafnvel ýta eðalvagninum upp brekkuna.


Ég man ekki hvort eðalSkodinn var eitthvað betri, en sennilega  þó. En a.m.k; þessi Trabantssaga gekk víða hér í den og hlógu menn mikið. Sumir vildu meina, að þessi frægasti kommúnistabíll sögunnar væri einmitt táknmynd fyrir kommúnismann. Hann hreinlega kæmist ekki upp brekkur og þyrfti menn að ýta honum upp með handafli...eða hreinlega ganga.


Þessi saga hefði verið í boði Ingvars Helgasonar, ef fyrirtæki það væri ekki fyrir löngu hætt að selja kommúnistabílana.


mbl.is Trabant á stórafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Anorexia Girls?

Þessi horrengludýrkun er orðin fráleit. Sama hverjir eiga í hlut, Spice Girls eða aðrir. Ég þoli ekki svona rugl.


Að konur þurfi að vera eins grannar og spýtukellingar til að geta meikað það í heimi fræga fólksins er bull, en segir sitt um að lögin skipti ekki öllu máli, heldur útlitið og hversu söngvarar og meðfylgjandi anorexíuleikarar geti dillað sér æsandi á hljómleikum eða í myndböndum.


Enda er ég hættur að horfa á tónlistarmyndbönd. Maður getur alveg eins farið bara og keypt sér Hustler.


mbl.is Kryddpía berst við aukakílóin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væl í Ferguson

Í fyrsta lagi græða Man Utd eiginlega alltaf á dómgæslunni á Old Trafford, t.d. þora dómarar ekki að dæma víti á þá þar, nema það sjáist úr flugvél. Í annan stað, voru það frekar Man Utd sem græddu á dómgæslunni á Emirates, t.d. var tekið amk eitt púra víti af Arsenal.

 

Og á Old Trafford eru aðkomumenn jafnan í "hættu", svo notað sé orðalag Fergusons. Og Man Utd syngja alltaf lög um Wenger, þegar Arsenal spilar þarna, að hann sé barnaperri eða eitthvað svoleiðis.  Ferguson ætti frekar að taka til heima hjá sér en að standa í þessu.  Áhorfendur eru í fullum rétti að svívirða Ferguson. Hann hefur nú ekki verið kurteis í samskiptum við Arsenal á síðustu 15-20 árum eða svo og sagt margt sem hann ætti að skammast sín yfir og biðjast afsökunar á.


Þetta er því grjótkast úr glerhúsi. Skammastu þín Fergie. Og svo ég segi þetta bara hreint út á góðri skít og vitna í Stefán Kristjánsson:

 

"Æ, éttu...þú veist"


mbl.is Man.Utd gerir skýrslu um ólæti á Emirates
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matarverðið

Það ku vera að bera í bakkafulla læki víðsvegar að nöldra um matarverðið á Íslandi. Maður skilur stundum ekki hvernig hægt er að bjóða neytendum ýmsa vöru á því ofboðslega okurverði, sem vissulega er gildandi hér á landi. Að vísu eru launin að jafnaði hærri hér en víða annars staðar, rafmagn og hiti ódýrari en víða annars staðar, osfrv.

En það breytir því ekki, að matarverðið er of hátt, og það þrátt fyrir að skattpeningar borgaranna eru notaðir til að niðurgreiða matvæli, a.m.k. sum matvæli. Ég skal viðurkenna, að ég er ekki sáttur við þá milljarða, sem greiddir eru í ríkisstyrki til bænda. En e.t.v. er þörf á styrkjum, því markaðurinn er smár, en þetta virðist þó vera í hærri kantinum.

Eftir nákvæmlega 2 vikur verð ég staddur í Serbíu, þriðja árið í röð á þessum sama árstíma. Þar er maturinn mjög ódýr og launin lág. Hótelgistingin er mjög ódýr, þrátt fyrir "full board" og rúmgott einstaklingsherbergi. Hvernig ætli hótelið meiki að bjóða upp á vínarsnitzel í kvöldmat, og meðlæti, og síðan kannski kjöt eða fisk í hádeginu og týpískan morgunmat, auk herbergis, fyrir 16 evrur á nótt?

Í fyrra fórum við Robbi stundum út að borða á fínasta veitingastaðinn í borginni. Glæsilegur staður, góður matur og mjög ódýr. Við gátum fengið frábæran mat (með öllu) fyrir svipað verð og samloku og kók hérna heima. Og það með þjónustu og alles.

En jæja, manni ofbýður matarverðið á Íslandi en getur lítið gert, vitaskuld. Spurning hvort maður fari ekki bara að lifa á prótínshake-um í desember til að spara (bæði pláss og pening) fyrir jólavertíðina?
mbl.is Maturinn dýrari á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband