Feitu búddarnir með stæla

Jæja, feiti Búdda í austri er með klærnar á lofti. Ójá, og börnin hans eru með sama DNA. Nú skal jafnvel berjast gegn lýðræði í Eve Online.


Jæja, enda er lýðræði hugmynd Vesturlanda og fæ ég ekki séð að margir fleiri en Vesturlandamenn af vesturlandauppruna telji þessa hugmynda góðra gjalda verða.
mbl.is Kínverjar vilja ekki lýðræði í Eve Online
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðslega dýrt

Þetta er auðvitað ömurlegt. Hvernig á unga fólkið að koma sér fyrir?

Og ekki þannig að leigan sé hagstæðari.

Þetta er orðin meiri vitleysan.


mbl.is Launin 680.000 til íbúðarkaupa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers að kalla pólska hermenn heim frá Írak?

Jú, það vantar fólk í vinnu á Íslandi.
mbl.is Pólverjar ætla að kalla hermenn sína heim frá Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausnin gæti verið...

...að hætta að skjóta eldflaugum á Ísrael. Þá gætu Ísraelsmenn orðið fúsari til að hleypa vörum inn í landið frá sínum enda.


En úr því Hamas getur smyglað tonnum af vopnum í hverjum mánuði inn til Gasa, hvernig stendur á því að þeir geta ekki smyglað inn lyfjum?


mbl.is Gazabúar þola ekki margar vikur enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Morkinn laugardagsmorgunn...einu sinni enn

Æ, enn einn laugardagsmorguninn og sá versti lengi. Ég er akkúrat núna morknari en jafnan.


Síðustu vikur hafa verið frekar erfiðar. Maður hefur verið að drukkna í alls konar verkefnum, bæði skemmtilegum og leiðinlegum.


Einu því skemmtilegasta lauk í gær, þegar fór fram síðasti tíminn hjá Hjörvari Steini, efnilegasta skákmanni Íslands. Ég hafði reynt að kenna honum eitthvað nær daglega síðustu tvær vikur. Ég efast um að hann hafi getað lært mikið af mér, enda er strákurinn alveg skelfilega góður orðinn; miklu betri en ég, það segir sig sjálft. Þar að auki var maður óvenju þreyttur og ekki jafn harður að tutka stráksa til í byrjununum og venjulega, en maður reyndi sitt besta.


Við fórum yfir ákveðnar byrjanir og reyndum að undirbúa þær sem best fyrir HM unglinga, sem hefst 19. nóvember. Hann sótti síðan einnig tíma hjá "Veggnum", þ.e. Helga Ólafssyni, sem skilur skák betur en flestir aðrir. Unglingarnir, sem fara á HM, voru á fullu að þjálfa. Í gær mætti ég kl. 11 að morgni í TR og kom unglingur síðan 11.15, beint úr tíma hjá Helga. Umræddur skákunglingur er hjá fjórum einkaþjálfurum þessa dagana og gerir ekki mikið annað. Frí í skólanum í gær vegna starfsdags, tek ég fram.


Unglingarnir eru a.m.k. áhugasamir og leggja sig alla fram til að ná árangri. Þeir fóru út í morgun og verða vonandi komnir til Kemer í kvöld, en HM  unglinga fer fram á sama stað og EM félagsliða, sem ég tók aðeins þátt í fyrir um mánuði síðan.


Nú, ýmislegt hefur gengið á upp á síðkastið. Feiti Búddha er enn við sama heygarðshornið og sömuleiðis félagar hans af ýmsum toga. Ég er að klára að setja saman vefsíðu fyrir merkilegan mann, sem er að miðla reynslu sinni. Margskonar smáatriðavinna í gangi, enda er síðan í loftinu á fimm tungumálum, en þar af skrifa ég síðuna á tveimur. Þetta er dálítið maus, en eins gott að maður hefur gott vefumsjónarkerfi, A8, til að vinna með.

Var síðan að renna yfir nýja bæklinginn hjá Munda bróður. Hann fer í prentsmiðjuna fljótlega og ekki seinna vænna og þar á ég við bæði bæklinginn og Munda, þ.e. Mundi fer með bæklinginn...osfrv. Maður er eiginlega of syfjaður og þreyttur til að hugsa eða skrifa rökrétt.


Ég var kominn á skrifstofuna fyrir sex í morgun. Ég hellti hálfsofandi upp á kaffi og var varla sestur þegar Securitas maðurinn hringdi að tékka á málum. Ég djókaði aðeins með, að ég væri bara heima að sofa, en gleymdi smástund að hann hafði auðvitað séð kóðann minn í kerfinu og féll ekki fyrir þessum brandara. En maður hresstist aðeins við að bulla svona í morguns árið.


Jæja, þá er að drífa eina undirsíðu af og snúa henni á ensku, pronto! Nú stendur pabbahelgi yfir hjá Munda bró og maður reynir að gægjast aðeins á börnin hans, bæði eldri og yngri. Það var hluti af pakkanum, þegar ég lánaði honum minn barnakvóta.


Og síðan er það bara vinna, vinna, vinna, uns ég dett niður ubermorkinn og þreyttur einhvern tíma í kvöld. En það eru bara nokkrir daga í Leifsstöð. Solid ferð framundan, með Stóratíma með eins og venjulega.

Solid...eða eins og skáldið sagði: "Smje".


Fasistinn þenur sig

Já, fasistar eru einræðissinnar; Chavez er einræðisherra í Venesúela og það í verri kantinum. Og hann kallar aðra fasista.

Mér finnst merkilegt, að þeir sem einna helst nota þetta hugtak eru jafnan frekar róttækir sósíalistar, þ.e. fylgismenn grófustu einræðishyggju 20. aldar.

Nær væri fyrir þessa aðila, Chavez, feita Búdda og skoðanabræður þeirra að líta í eigin barm áður en þeir fara að troða slíkum hugtökum upp á aðra.
mbl.is Chavez krefst afsökunarbeiðni frá Spánarkonungi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband