Útreið kratanna

Jæja, maður hefur nú séð það verra!


Þetta er auðvitað ekki búið, en mér líður núna eins og þegar Liverpool eða KR eru tveimur mörkum undir og aðeins nokkrar mínútur eftir.
mbl.is Danska ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt kosningaspá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta vantar sárlega á Íslandi

En þetta gæti verið komið eftir nokkur hundruð ár þegar einhver mannfræðingurinn kemst að því, með hjálp svona apparats, að allir "innfæddir" Íslendingar væru komnir undan t.d. Hermanni Jónassyni eða Ómari Ragnarssyni.
mbl.is Danskir feður kaupa erfðaefnisgreiningu til að staðfesta faðerni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spiderman

Þetta er auðvitað ótrúlegt afrek hjá barninu og hugsanlega hefur hann talið sér allt fært þegar hann var klæddur í búning Köngulóarmannsins.


En staðreyndin er, að búningur er að öllu jöfnu ekki nóg. Ég verð ekki endilega lögreglumaður, þó ég fari í löggubúning (nema ég sé útskrifaður úr lögguskólanum) og menn verða ekki endilega góðir fótboltamenn, þó þeir klæðist Spurs búningnum (og ef þeir voru góðir fyrir, hafa þeir þá tilhneigingu að versna við að ganga í raðir Spurs!).


Og menn verða ekki endilega góðir stjórnmálamenn, þó þeir eigi sæti á Alþingi.


Þetta snýst nefnilega um það sem er INNI í manneskjunni, ekki því sem er hið ytra. Fyrir mér breytir engu hvort fólk hefur t*** eða p***, ef það er hæft í sínu hlutverki, starfi, etc.


Það er hinn innri maður sem skiptir máli; hæfileikar, geta, menntun, skapgerð og þess háttar sem skiptir máli, en hvorki útlit, fatnaður né látalæti.


En í tilfelli 5 ára Köngulóarmannsins í Brasilíu skaðaði það ekki að fara í réttan búning, en þegar á hólminn var komið var það skapgerð (karakter) drengsins og það, sem innra bjó í honum, sem gerði það að verkum, að hann réðst á garðinn þar sem hann var hæstur og vann hetjudáð.


Litla hetjan á hrós skilið fyrir þetta, ekki spurning.
mbl.is Kóngulóardrengur bjargaði ungbarni úr brennandi húsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamas og Musharraf

Jæja, þetta lið vildu íslenskir sósíalistar helst ganga í eina sæng með, eða a.m.k. taka upp "eðlileg" samskipti við. Þá er ég að tala um Hamas.


Spurning hvort Ögmundur vilji nú ekki gera mann út af örkinni hans Steingríms og hefja "eðlileg" samskipti við Musharraf, já, eða Castró á Kúbunni, þar sem mannréttindi og frelsi eru einna mest fótum troðin í heiminum?


Alltaf gott að eiga góða bandamenn!
mbl.is Tugir félaga í Fatah handteknir á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Hamas-liðar að missa völdin á Gasa?

Nei, varla, meðan þeir eru einráðir um vopnaburð (ásamt bandamönnunum í Islamic Jihad). En stuðningur við þetta óaldarlið fer minnkandi og kemur ekki á óvart.


Í gær var ég að lesa, að Hamas liðar væri tilbúnir (að því að talið er í samvinnu við Hizballah) að hrifsa völdin á Vesturbakkanum ef Ísraelsher færi þaðan, t.d. í tengslum við "friðarsamninga". Hamas ræður nú yfir vel þjálfuðum her á Gasa, þjálfuðum í Íran, Sýrlandi og víðar (amk foringjarnir), já og hjá Hizballah.Ekki líst mér á þann gjörning. Hamas liðar á Gasa segjast tilbúnir, en eru þeir það í raun, þegar framferði þeirra er farið að vekja almenna andúð, jafnvel meðal fólksins á Gasa, sem mætti til að heiðra látinn foringja sinn, sem hefði tekið að erfðum amk stærsta hluta Gasa, hefði stríðið ekki brotist út 1948.



En merkilegt að hér á Íslandi njóti Hamas stuðnings, m.a. á alþingi. Og síðan var Sveinn Rúnar að fara til Gasa um daginn til að heiðra Hamas gengið með nærveru sinni....úff, eins gott að honum var ekki hleypt inn. Hann hefði getað lent beint í átökunum og maður veit aldrei hvað getur gerst í svona kringumstæðum.

En svona ganga kaupin á eyrinni.


mbl.is Stuðningur við Hamas fer dvínandi á Gasasvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurunnir smokkar

Recycled Condoms


Jæja, spurningin er, hvort menn vilji nota þetta aftur? Í fyrsta lagi er það ógeðslegt, í öðru lagi heilsuspillandi og í þriðja lagi ótrúlegt, að nokkur skuli nenna að endurvinna smokka.

En hafi einhverir áhuga á þessu efni, getur maður svosem bent á eftirfarandi slóðir! 

http://www.news.com.au/heraldsun/story/0,21985,22752112-663,00.html
http://www.china.org.cn/english/China/231678.htm
http://www.chinadaily.com.cn/china/2007-11/13/content_6251535_2.htm
http://www.news.com.au/dailytelegraph/story/0,22049,22751975-5013605,00.html


mbl.is Endurunnir smokkar sagðir heilbrigðisógn í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðaglaðir Íslendingar

Þetta kemur ekki á óvart. Þrátt fyrir hátt matarverð og okur á ýmsum sviðum, virðist fólk eiga til nægan pening (eða ljúfa útibússtjóra) til að vera á stöðugu flakki.


Ég hef aldrei farið í sumarfrí á ævi minni og sé ekki eftir því. Ég fatta ekki snilldina í því að liggja flatmaga og þunnur á sólarströnd.

En frí til borga eins og Prag, Parísar, Lundúna - eða til landa eins og Ísraels/Jórdaníu, S-Afríku, Kína og svoleiðis, það er mun meira skiljanlegt. Hvað þá Suður-Ameríku, sem er auðvitað argasta snilld!


mbl.is Ferðagleðin aldrei meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband