3. umferð á EM

Jæja, ég sit nú hérna fyrir utan skákstað. Af einhverjum ástæðum er ágætis tenging þar, amk meðan að fjölmiðlakallarnir eru að störfum.

Skrapp í sólbað áðan og hafði það bara gott. Æ, þetta er ágætt alveg.

Sól skín í heiði og fagur fjallahringur umlykur. Og frk. Sharevich er flott í bíkíníi.

En um úrslitin, sem komin eru, geta menn farið á www.taflfelag.is í boði Stefáns Freys Guðmundssonar.

Er ekki hægt að arrangera þessu þannig...

...að bæði liðin tapi.


Annars er jafntefli ásættanlegustu úrslitin, fyrir mig a.m.k.


mbl.is Vinnur Tottenham á Anfield í fyrsta sinn í 14 ár?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur í Antalya

Jæja, áfram heldur systemið.


Ótrúlegt letilíf á manni í þessu veðri. Maður flatmagaði á ströndinni í morgun og synti síðan út að "bauju" og til baka. Þokkalegt, takk fyrir; eins og Rúnar Berg myndi segja.


En kjúklingarnir þorðu ekki í sjóinn. Wink


Liðsmenn íslenska hópsins hittust í mat áðan, reyndar í tveimur hollum. Síðan fóru menn að stúdera fyrir daginn. TRingar fá Bauna á eftir, Bromann, Rodgaard og félaga, en Hellismenn fá sterka sveit frá Bosníu.


Húnninn bloggaði áðan á http://hellir.blog.is og nenni ég hreinlega ekki að segja neitt meira, en vísa á þá slóð með frekari upplýsingar.


Áfram Ísland.


Kemer, Antalya: 3. dagur

Jæja, þriðji dagurinn hér í Kemer er runninn upp. Og fallegur dagur, ef ég má bæta því við. Sólin skín í heiði og glampar fallega á fjallahringinn hér umhverfis, en hann ku vera hluti af Taurus fjallgarðinum. En umhverfið hér er einstaklega fagurt.


Jæja, gærdagurinn.


Yðar einlægur átti sinn erfiðasta dag hingað til. Af einhverjum ástæðum hafði það farist fyrir að tilkynna okkur TRingum, að greiða ætti hótelið fyrir kl. 20.00 í gær, að öðrum kosti yrði liðinu vikið úr mótinu. Þetta heyrði liðsstjóri fyrst fyrir 1. umferð í gær og brást fljótt við. Fór ég ófáar ferðirnar frá keppnisstað og upp í lobbí, sem er í hinum endanum á hótelsvæðinu, og eltist við leikmenn liðsins þegar þeir stóðu upp og fóru fram í vatnið, til að segja þeim fréttirnar og biðja þá að drífa sig strax eftir skák. Þegar leið á var maður orðinn verulega þreyttur á þessu öllu, og til að kóróna vitleysuna lét Hr. Myi Greni á sér kræla. Ég sem hélt ég væri laus við þann óvandaða karakter.

En þetta náðist. Síðasti keppandinn kláraði skákina 7:52 og settum við TRmet í spretthlaupum yfir hótelsvæðið og náðum á mótshaldaraborðið kl. 19:59. Málið leyst. Það var þreyttur captain sem settist að málsverði með strákunum í liðinu um hálf níu leytið. Kl.9 var maður kominn heim á herbergi og steinlá eins og ég væri að spila með KR í fótbolta.

Þegar maður rankaði loksins við úr rotinu var kl. orðin 11 og strákarnir komnir niður í útileikhús/kaffihús, þar sem við hittumst gjarnan á kvöldin, metum mótherja gærdagsins, förum yfir framvindu dagsins og rifjum upp spaugileg atvik úr fyrri ferðum. Og Kristján Eðvarðsson hefur lofað að taka skjaldbökudansinn. Ég meina, fyrir þá sjón er ferðin hingað orðin velnegld með fullnægjandi ástæðum, þ.e. vel þess virði að koma hingað þó ekki sé nema til að sjá þann viðburð.

En jæja, að umferðinni.


TRingar stóðu sig vel í gær gegn ofurstórmeistaraliði Bosníu. Ég hafði opinberlega þá stefnu að ná 2.5/5 á efstu borðunum og treysta á að Jón Viktor ynni á 6. borði. Mótherji hans hefur reyndar 2645 og er grjótharður. En undir niðri var ég þakklátur fyrir hvern punkt sem fékkst, fyrirfram amk.

Niðurstaðan var reyndar að ég er pissfúll með að fá bara tvo vinninga af sex. Fyrir umferðina hefði ég verið glaður með þetta, en eins og skákirnar tefldust, er ég það ekki.  En það er ekki nóg að fá góðar stöður, því stundum fer styrkleikamunurinn að segja til sín á slíkum stundum.

Hannes hirti peð af næst stigahæsta skákmanni heims, Vassily Ivanchuk, sem er ein sérlundaðasti skákmaður heims, og er þar af nógum að taka svosem. En hann er mikill snillingur, eins og sást, þegar hann nýtti sér minnstu ónákvæmni Hannesar til sigurs. Þreytt, en Hannes hefði ekki tapað þessu gegn mörgum öðrum. Ivan sjúki hefur verið í ótrúlegu formi allt þetta ár og það síðasta, og tapar nær aldrei skák en vinnur flestar.

Nataf gerði auðvelt jafntefli gegn Almasi (2691!): Þetta var fyrsta skákin til að klárast og var þungu fargi af mér létt, því við yrðum þó amk ekki "eggjaðir", þ.e. núllaðir út.

Þröstur vann peð og síðan annað af Movsesian (2680 c.a.), sem tefldi fyrir Helli á 1. borði í síðasta Íslandsmóti skákfélaga. Þröstur hafði reyndar tvípeð og mislitir biskupar voru, og hrókur á kjaft, þegar upp var staðið. Jafntefli var samið, en að sögn Þrastar missti hann af vinningsleið í tímahrakinu. Roar.

Stefán tók Ivan grimma Sokolov í bakaríið, og það ósmurt algjörlega. Ivan var tapsár að vanda, og þegar allt stefndi í sigur Stebba þegar hann náði 40 leikja markinu, var Ivan að ganga um gólf, talandi við sjálfan sig, eða stóð úti í horni, hristi hausinn og var talandi í eigin barm, og varla fögur orð. En glæsilegur sigur hjá Stebba.

Arnar náði um það bil að jafna taflið gegn Short og var ekkert að gerast í stöðunni og allt stefndi í jafntefli þegar Addi lék þremur slæmum leikjum í röð og það er meira en má gera gegn Short. Tap var reyndin.

Jón VIktor var síðastur að klára, eða rétt fyrir átta. Staðan var í járnum lengst af en smám saman tók að halla á okkar mann. Hann átti jafnteflisleið amk einu sinni í endataflinu, en erfitt að sjá alltaf bestu leikina þegar tíminn er naumur. Tap.


Sem sagt 4-2.


Þetta var samt ágætis úrslit, ekki síst þar eð TRingar voru enn þreyttir eftir þetta langa ferðalag. Menn fóru síðan flestir snemma í háttinn í gær og koma hressir til leiks í dag. Liðsstjóri mun fara fyrir hópferð á ströndina um 10 (7 að ísl. tíma) og síðan verður tekið á Baununum í dag. Þar er Íslandsvinurinn Þorbjörg Brómann á 1. borði. En Hannes hefur lofað að væóleita hann á skákborðinu í dag. En amk, allt minna en 5-1 sigur verður talið ósigur.


Hellismenn fóru létt með afarslaka sveit Tyrkja, sem veittu aðeins mótspyrnu á 1 og 2. borði. Bragi gerði jafntefli á 1. borði, eftir langa þjáningu en mótherji hans var með einhvern kvilla í hausnum og tefldi 60 leiki fræðilega steindautt jafntefli með mislitum biskupum. Jafnvel dómararnir hristu hausinn yfir þessari vitleysu, en þetta var síðasta skákin til að klárast.

Bjössi missteig sig illilega í byrjuninni, en náði að trikka hann og vinna. Daði vann fallegan fórnarsigur. Hinir unnu líka flott.


EN þar eð ég er að verða batteríslaus verð ég að láta þetta nægja í bili.


Áfram Ísland


Skytturnar á batavegi

Jæja, þetta er allt að reddast. En nú verður erfiðara en áður að velja liðið.

EN framundan eru tveir heimaleikir gegn botnliðunum. 6 stig er krafan. Áfram Arsenal.
mbl.is Margir á batavegi hjá Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband