1. umferð hafin

Jæja, héðan úr 30+ stiga  svækju í Kemer, Antalyu, er svosem allt gott að frétta. Bragi hefur jafnað sig aðeins og mætir galvaskur gegn sterkum GM. Stefán hefur einnig hrist af sér slæmsku.

Aðstæður hér eru til mikillar fyrirmyndar. Hótelsvæðið er ótrúlega flott, herbergin mjög fín (amk hjá TRingum, sem eru í "VIP álmunni!") og skákstaðurinn er flottur. Ég man eiginlega ekki eftir svona snilld lengi. Hér er greinilega mikill metnaður lagður í, að gera allt sem best.


Nú, að viðureign TRinga:


Hannes er með hvítt gegn náunga með 2320. Upp kom Jaenisch/Latvian bræðingur og hef ég ekki trú á öðru en að Hannes taki þetta. En þetta er samt ekkert ljóst, svartur fær counter fyrir peð, sem mér sýndist hann vera að fórna áðan.

Nataf teflir afbrigði, sem ég held að heiti Kalashnikov, en það er Svesnikov, án þess að leika Rf6 strax, heldur 2...Rc6, 4...e5, 5...d6, þ.e. sama og Votava lék gegn mér í síðustu Deildó. Hann hefur teflt þetta mjög hratt....en hinn hugsað. Þetta er semsagt á eldhúsborðinu ennþá.

Þrölli fékk Petroff á móti sér og notaði afbrigðið, sem hefur verið í tísku, en Gelfand hefur væóleitað í skákunum á síðasta heimsmeistaramóti. Þrölli tekur hann samt, auðvitað.

Stefán  er að tefla 1...Rc6, Nimzowitsch bragðið, sem hann beitti fyrst gegn mér á Skákþingi Íslands. Allt í járnum ennþá.

Addi tefldi Réti og mun smám saman kyrkja andstæðing sinn, spái ég.

Jón Viktor er að tefla drekann með svörtu. Allt í hárnum

___

 Bragi teflir Najdorf gegn GManum, en Armeninn svaraði með Be3, að sjálfsögðu, en í stað Rb3, í andsvari við e5, lék hann Rf5 og síðan Rg3. Merkilegt.

Húnó er með hvítt og teflir Drottingarpeðsbyrjun. 

Daði teflir Kóngsindverja gegn Vaganian. Hann teflir varíant, sem er að komast úr tísku fyrir annan, sem jafnar taflir örugglega. En Vaggi hefur teflt svona í 40 ár og kann þetta vísast. En Daði hlýtur að vera vel undirbúinn úr því hann fer í þetta svona.


Robbi tók skoska leikinn á sinn GM. Staðan í járnum.

Ítalskur leikur hjá Stjána Eðvarðs, sem hefur lofað að taka skjaldbökudansinn fræga, nái hann punkti í dag.

Rúnar Berg er að tefla "eitthvað gambítsystem", eins og hann segir gjarnan sjálfur, gegn Sikileyjarvörn.


En jæja, umferðin farin af stað. Og allt í ókídókíinu só far.

Over and át frá Tyrklandi. Áfram Ísland.


Kemer, Antalya: EM félagsliða 1. dagur

Jæja, kominn í netsamband. Loksins.


Þetta var eitt ömurlegasta ferðalag, sem við strákarnir höfum farið í og erum við þó flestir mjög reyndir í svona löguðu.


En við TR ingar látum ekki slá okkur svo auðveldlega út af laginu.


Kl.3.45 að morgni sendi ég leigara heim til Stefáns Kristjánssonar og ferðin var hafin. Já, ég er semsagt "captain" í hinu sigursæla TRliði. Þaðan var haldið áfram að pikka upp strákana og síðan mættu menn galvaskir út á völl um 5 leytið.

Þetta gekk allt vel, uns komið var til Frankfurt. Þar beið okkar löng bið á flugvellinum, en Frankfurt er ekki besti flugvöllur í heimi fyrir slíkt. Menn voru orðnir þreyttir, bæði við TRingar og Hellismenn.

Eins og jafnan áður gleymist það í þessum ferðum, að þessi tvö lið munu berjast á banaspjótum daginn eftir heimkomuna, en hér er öll dýrin í skóginum vinir.

Ferðin til Antalyu var hræðileg. Flugvélin var troðin, og aðstæður slæmar, enda lággjaldafélag í dýrari kantinum sem flaug okkur, Morozevich, Svíinum, Peter Heine og einstaka öðrum.

VIð höfðum hitt Þröst í Frankfurt, en Hannes og Nataf mættu okkur í Antalyu.


Frá Antalyu var farið með skjaldbökubílstjóra til Kemer og tók ferðin langan, langan tíma og voru menn alveg að missa sig í þröngum bussinum.  Síðan voru Bragi og Stebbi orðnir lasnir, en aðrir bara aumir og þreyttir.


En ok, við komum á staðinn kl. 2.30 í nótt. Menn hittust svo yfir kaffisopa og tóku stöðuna, fundu Nataf og svo framvegis. Um 4 leytið skreið ég í bólið. Gjörsamlega búinn.


Nú kl. 8 hringdi síminn og vakti mig skv. stillingu. Fór ég skoðunarferð um þetta frábæra hótel, sem er heimur út af fyrir sig. Hitti svo Húninn í morgunmat, en hann er captain Hellisbúa og skiluðum við inn liðsmönnum dagsins, svona eins konar leikskýrsla.


Ég hvíli mig hiklaust í hverri umferð enda eru aðstæður hér hinar bestu og ég nenni ekki að tefla. 


En a.m.k: ég er búinn að redda nafnspjöldunum fyrir strákana og nú er liðsfundur kl. 1 (10 að ísl. tíma), þar sem staðan er tekin.

 

Við TRingar fáum litháíska sveit og er krafa liðsstjóra að sigur vinnist 6-0. EKkert annað kemur til greina.


Hellismenn fá Armenanna sem eru með rosalega þétt lið, þar sem allir liðsmenn þeirra eru með um 2600 og yfir í skákstigum talið.

Markmið Húnsins liðstjóra er að verða ekki eggjaður, þ.e. að Hellismenn "grísi inn amk einu jafntefli, en annars get ég ekki hugsað um þetta fyrr en ég fæ úrslitin frá Arsenal leiknum."

 

Jæja, umferðin byrjar 15.00 í dag að staðartíma, eða 12 á hádegi heima á Fróni.

 

Áfram Ísland

 

Kv

 

Il Capitano 


Hógværð stjarnanna

Ég skal taka að mér að kenna kvenkyns stjörnum á aldrinum 20-30 ára. Ég er alkunnur fyrir hógværð.

Ég verð ekki lengi að redda þessu.


mbl.is Clooney segir að kenna þurfi frægu fólki hógværð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband