Ráðist á Benazir Bhutto

Menn hljóta að spyrja sig fyrst: Kom ríkisstjórnin að þessu? Ég ætla rétt að vona ekki.

En Bhutto átti þó nóg af óvinum, ekki bara eigin, heldur líka ákveðnum ættbálkum, sem vísast telja sig eiga harma að hefna gagnvart Bhutto ættinni, en faðir hennar var nú ekki ljúfasti maður í heimi meðan hann ríkti  í Pakistan og steig á ýmsar tær á ferli sínum.

En þetta er samt alveg makalaust, en gott að Benazir komst lifandi úr þessu og ómeidd.


mbl.is Þrjátíu látnir í tilræðinu í Pakistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vestmannaey seld

Æ, ef gott verð fæst, af hverju má ekki bara selja þær allar? Það myndi amk losa okkur við Árna Johnsen og jarðgöngin.


mbl.is Vestmannaey seld til Argentínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að hætta að veita útlendingum fálkaorðuna?

Ja, við getum byrjað á því að setja í lög, að bannað sé að veita Kínverjum fálkaorðuna, af ótta við að blanda íslenska ríkinu í kínversk innanríkismál.


Já, eða útlendingum almennt, enda væri slíkt íhlutun í innanríkismál ríkja, þar sem umræddir hafa ríkisfang.


En þetta er meira bullið hjá Kínverjum. Þeir hafna sjálfstæði Taiwans, sem þeir segja að eigi að tilheyra Kína og vilja nú skv. ræðu Foringjans "innlima Taiwan, enda sé eyjan hluti af Kína.


En af hverju þá ekki að gefa Tíbet sjálfstæði, því Tíbet er ekki hluti af Kína og á ekki að vera.


Bull og vitleysa í Kínverjunum, yfirgangur og frekja.



mbl.is Kínverjar gagnrýna Bandaríkin harðlega fyrir að verðlauna Dalai Lama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Launsonur Margrétar prinsessu

Jæja,en þá hlýtur Hermann Jónasson að vera faðirinn,en ekki Townsend? Smile


mbl.is Segist launsonur Margrétar prinsessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband