Færsluflokkur: Bloggar

Lækkar olíuverðið á Íslandi?

Eða hvað ætli olíufélögin græði margar milljónir á því að lækka "á morgun eða hinn"? En þau hækka auðvitað samstundis þegar verð hækkar ytra - eins og allir vita. Þetta er allt að því glæpsamlegt.

Svindlað

Þetta er ekkert nýtt. Hefur verið í gangi í Búdapest í fjölda ára. Svindl og svínari á báðar hendur. Ekkert nýtt við þetta.

Heimskir Ameríkanar?

Maður hefur heyrt margar sögur af heimsku eða amk fáfræði Kana sem virðast voða lítið vita hvað er að gerast fyrir utan þeirra eigin "county" (nema hjá fræga fólkinu). Og auðvitað er varla til vitiborið líf utan Bandaríkjanna og Kanada, það segir sig...

Skessan þenur sig

McCain er ábyggilega ánægður með þetta, því svona sorakjaftar gera lítið annað en að fæla fólk frá Obama.

Skandinavíu sundrað

Ja, tungumálin hafa verið að fara hvert í sína áttina, þó danska fjarlægst einna mest. Skynsamlegast væri auðvitað að snúa aftur til upprunans, áður en norrænir menn fengu sinn babelsturn og tungurnar rugluðust. Því er auðvitað það eina skynsamlega í...

Svik Rússa: herinn enn í Georgíu

Jæja, þeir sem hafa hamast mest hér á blogginu um heilindi Rússa og óheilindi og gyðingasamsæri Georgíumanna hljóta að sitja hljóðir um þessar mundir. Rússar létu hluta íbúa S-Ossetíu og Abkhazíu fá rússnesk vegabréf fyrir ekki svo löngu síðan. Og núna...

Góð þjónusta

Jæja, var að fá bílinn úr viðgerð. Startarinn algjörlega farinn. Ég verð að fá að commenta á góða þjónustu og gott verð hjá Rafstillingu . Ég þekki strákana þarna ekki neitt, en var bent á að Kiddi í Rafstillingu myndi redda mér. Hann stóð fyrir sínu og...

Kjaraskerðing

Jæja, nú á að auka kjaraskerðingu almennings, ef hann slysast til að þurfa að versla í þessari okurholu. Ég "neyddist" til þess nýlega...merkilegt að fyrirtækið skuli leggja svona miklu meira á sömu vöru en keppinauturinn nokkrum húsum utar. En ég mun...

Prins Póló

Ísland mun keppa við Pólland í 8 liða úrslitum ÓL. Prins Pólóið verður tekið upp til hátíðarbrigða. En nú er að hefna. En skrítið fyrir íslenska landsliðið að keppa við erlent landslið sem nýtur stuðnings ca 20% íbúa Íslands. Afram...

Guðni hvalreki?

Jæja, ég hélt nú að hér væri Össur að tala um Guðna Ágústsson. Hann er eini "Guðninn" sem þarf ekki föðurnafn með. En jæja,Mogginn ræður þessu. En ef Guðni er hvalreki, hvað er þá Össur? Rostungsreki? Var ekki einn slíkur að "reka á land"...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband