Færsluflokkur: Bloggar

Smyglskipið

Jæja, dóp í Norrænu. Líka laumufarþegi . En sem betur fer hefur ekki verið greint frá því að Svíar væru um borð í skipinu. Það hefði nú verið til að kóróna allt saman.

Einfaldar skýringar

Liðið ekki nógu gott. Þjálfarinn ruddi með mikilmennskubrjálæði. Ég er kominn á þá skoðun að maður þessi sé ekki með öllum mjalla.

Kemur Eimskip með börnin?

Jæja, Eimskip kom færandi hendi með þrjú börn á einu bretti. En þetta er auðvitað mikið áfall fyrir mig. Ég hélt að storkurinn kæmi með börnin.

Niðurstaðan í málinu

Ólafur og Ástþór eru hetjur. Lýsing fær neikvæða viðskiptavild. Ólafur og Mjólka fá aukna viðskiptavild og græða þegar upp er staðið. Ástþór græðir, það segir sig sjálft. En menn munu nú vafalaust treysta Lýsingu síður en annars...

Brandari

Þau eru bæði að vekja athygli á sér; komast á síður slúðurblaðanna og svo framvegis. Þetta PR múf mun þó varla skila miklu til langs tíma. Michael Jackson er sækó og ýmislegt má segja um Pamelu og hinar sólríku suðursvalir...

Smákrakki

Ég veit ekki hvort ég eigi að glotta eða gráta yfir þessu rugli. Strákurinn ætti að fullorðnast og það hið snarasta.

Er Guð til?

Ja, Michael Moore hélt því fram að Guð væri til. Sönnunin væri, að hann hefði sent fellibyl til að eyðileggja flokksþing repúblikana og styrkja þannig demókrata í sessi, því athyglin yrði öll á Gústavi en ekki McCain og co. En nú gerist það, að skv....

Frakkar vakna

Löngu tímabært. Frakkar verða að fara að átta sig á því, að heimurinn snýst ekki um Frakkland eins og hann gerði á tíð "Ancien Regime". Mjög fáir skilja neitt í frönsku og jafnvel þeir sem hafa lært eitthvað í skóla eiga erfitt með að tala málið nema með...

Enn af Palin

Ef fjölmiðlar hefðu fengið þessa frétt fyrir c.a. 2 vikum hefðu fáir haft áhuga á fréttinni. T.d. hefði Mogginn ekki birta frétt um að 17 ára dóttir ríkisstjóra Alaska væri ófrísk. Hún er, þrátt fyrir allt, ekki orðin varaforseti...

Grænir og vænir?

Við framsóknarmenn styðjum auðvitað Blika, úr því við sjálfstæðismenn getum ekki stutt bláa þetta skiptið. En ég gerist framsóknarmaður og Bliki í tvo tíma í kvöld. ÁFRAM UBK

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband