Vinstristefnan gerir meira

Hún brýtur niður atvinnulífið.

En hvaða maður er þetta annars? Er þetta þingmaður? Jæja, gaman að þingmenn skríði fram úr felustöðum sínum.


mbl.is Vinstristefna að tala niður atvinnulífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ættu allir að flytja til Íslands?

Nei, takk. Spursarar og Liverpoolarar geta bara haldið sig á heimaslóðum, takk fyrir! Nóg af slíku fólki hérna á Íslandi.
mbl.is Ættu allir að flytja til Íslands?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólarferðum aflýst

Já, úff, eins gott. Ég myndi ekki vilja fara til sólarinnar. Hún er einfaldlega of heit...og einnig of langt í burtu. Ég hef ekki það langt frí.

En hins vegar myndi ég þiggja núna eins og smá vikupásu á góðum stað einhvers staðar til að hlaða batteríin.

Það er nefnilega munur á sólarlandaferðum og sólarferðum.


mbl.is Sólarferðum aflýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bestir í vítunum!

En jæja, þetta gleður amk Þóri Ben.
mbl.is Man. Utd Evrópumeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRAM í fararbroddi

Segir sig sjálft!
mbl.is Fyrsta skemmtiferðaskipið í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig gera má útlendinga að Íslendingum

Setja þá í sturtu í Laugardalslauginni, fá sér pylsu hjá Bæjarins beztu  og láta kaupa sér fatnað hjá Sævari Karli. Íslenskara getur það varla verið.


mbl.is Grænmeti þvegið úr íslensku vatni og selt sem íslenskt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blankir tónlistarmenn endurvekja eldgömul bönd til að redda skuldastöðunni eða liggur eitthvað annað að baki, mér er spurn, en ég hef ekki hugmynd um þetta eins og svo margt annað

Mig hefur lengi langað til að skrifa svona langan titil a la Ellý og Jón Valur. Og reyna að hafa titilinn lengri en textann. Tókst það ekki?


mbl.is Endurfundir í tísku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíutunnan kostar 130 dali

Eigum við svo marga dali hér á Íslandi?

En meira að segja 130 dollarar er allt of mikið.


mbl.is Verð á olíu yfir 130 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Papparassar"

Jahérna, enn eitt skemmtileg nýyrði hjá Mogganum. En hrikalega hlýtur það að vera þreytandi að hafa papparassa á eftir sér um allar trissur.

Þá er nú betra að vera hundeltur af sílíkonbrjóstum :)


mbl.is Papparassar elta Fritzl-börnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arnór meistari með FCK

Samkvæmt dönskum fjölmiðlum vill hann sérstaklega þakka helstu stuðningsaðilum liðsins, KFC í Kaupmannahöfn.

Já stuðningur KFC var ómetanlegur, því vegna þessa fyrirtækis hættu leikmenn að vilja borða kaloríuríkan kjúkling með frönskum og sósu. Gæðin ekkert sérstök og verðið hátt.

Þegar maður er svangur sko, breytir litlu hvort vörumerkið sé gott, ef maturinn er ekki nema lala.


mbl.is Arnór meistari með FCK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband