Þriðjudagur, 3. júní 2008
Vantar tilraunadýr?
Spurning hvort Ómar bjóði sig fram, enda vanur því að vera í framboði:
Norðan fjalla Ómar er
afturhallatregur.
Prúðan skalla skáldið ber
en skelfing kallalegur.
Flosi.
![]() |
Ný meðferð við skalla virðist lofa góðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. júní 2008
Kanarnir að taka upp Sovétsystem
Land hinna frjálsu og hugrökku? Hvílíkur brandari!
Eins gott að ég er löngu hættur að hafa minnsta áhuga á að fara til Bandaríkjanna.
![]() |
Hertar reglur um ferðir til Bandaríkjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. júní 2008
Ísbjörninn felldur
Ég efa ekki að yfirvöld tóku þá ákvörðun sem talin var best. Ég skil ekki þessa hysteríu í fólki sem talar um "morðingja" og svoleiðis.
Þannig er það nú bara að yfirvöld hafa þá frumskyldu að vernda borgarana.
![]() |
Ísbjörninn felldur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. júní 2008
Hlýtur að vera misskilningur
![]() |
Ísbjörn við Þverárfjall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 3. júní 2008
Verkjalyf
Jæja, tap minna manna, þeirra bláu, í gær var aðeins bærilegra þegar Valsararnir tapa líka og það gegn neðsta liðinu.
Nú þarf bara að jafna um FH og þetta gæti orðið skemmtilegt síson.
![]() |
HK lagði Valsmenn 4:2 og fékk fyrstu stigin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 2. júní 2008
Skandall
Eru mínir menn þeir bláu alveg að missa það? Hvernig dettur þeim í hug að vera undir á móti KR. Ég krefst tafarlausra úrbóta. Koma svo bláir!
En Heimir er vísast glaður núna.
![]() |
Taphrinu KR lauk með sigri gegn Fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt 3.6.2008 kl. 08:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 2. júní 2008
Listahátíð
Æ, maður hefur lítinn áhuga á listahátíð...enda fann maður aldrei neitt áhugavert í þessum pakka þegar maður nennti að gá.
Fer þetta ekki að hætta fljótlega?
![]() |
Einn hápunktanna á Listahátíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. júní 2008
Sláttur, árstíðirnar og veðrið
Jæja, það er ekki seinna vænna að hefja sláttur, nú þegar haustið er komið með roki og rigningu. Ég sakna sumarsins, sem var bæði í styttra og kaldara lagi þetta árið. Og mikið lifandis skelfingar var tíminn fljótur að líða - sumarið kom eiginlega og fór án þess að maður tæki beinlínis eftir þvi.
Kannski maður verði bara að koma sér í frí nú síðar í haust og reyna að finna hlýrra loft einhvers staðar, því þetta leiðinda veður hér í Reykjavík er farið að vera verulega þreytandi.
Jæja, en ég tek rúðusköfuna fram, just in case. Maður veit aldrei...
![]() |
Sláttur hafinn í Eyjafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. júní 2008
Nýr ritstjóri Moggans
Jæja, kannski "z" fækki í ritstjórnargreinum og víðar í blaðinu. Og kannski að Ólafur ákveði að ráða prófarkalesara til blaðsins, sér í lagi til vef-Mogga.
Amk verður spennandi að sjá hvernig til tekst. Ólafi tókst að rífa Blaðið / 24 stundir upp. Mogginn gæti átt samskonar upprisu í vændum.
![]() |
Ritstjóraskipti á Morgunblaðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 2. júní 2008
Hvað myndi gerast ef STORMUR og SKJÁLFTI myndu ganga yfir Reykjavík á fullum styrk?
![]() |
Hæg rénun eftirskjálfta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |