Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Veikasti varnarhlekkur Baugskeðjunnar
Frammistaða Tryggva er ekki sérlega trúverðug. Hann virðist vera hinn veiki hlekkur í varnarkeðju Baugs Grúpp.
1. Þegar menn grípa til DV-aðferðanna, þegar þeir eru komnir með bakið upp að veggnum, er greinilega eitthvað spúki við málstaðinn: "Samsæri, blablabla". Þetta er svona eins og Borgarnesræða Imbu, enda báðar ræður kostaðar af sama aðila, beint eða óbeint. Og fótgönguliðar æpa "Samsæri" í blöðum, bloggi eða annars staðar. Maður fer að halda, að þetta sé einmitt samsæri. En ekki samsæri gegn Baugi, heldur á vegum Baugs. Og ég sem alltaf trúað, að Baugsmenn hafi bara verið að stunda business as usual, eins og gerist meðal stórra fyrirtækja, og verið á móti þessum skelfilega þreytandi málaferlum.
2. Aha, hefurðu tölvupóst sem er óhentugur fyrir mig? Aha, auðvelt að falsa tölvupóst. En voru þá ekki tölvupóstar Jónínu og Styrmis bara fölsun Fréttablaðsins?
Í morgun trúi ég, í fyrsta skipti, að Baugur hafi eitthvað mjög óhreint mjöl að fela. Eða a.m.k. Tryggvi Jónsson.
![]() |
Segir að um samsæri sé að ræða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Umhverfisverndarvitleysingar enn og aftur
Þýskur hermaður, í lok seinna stríðs, gaf sig fram við stjórnstöð Bandamanna og sagðist vera sekur um stríðsglæpi. Bandamenn voru hissa á þessu, því jafnan þurfti að hafa nokkuð fyrir því að finna svoleiðis menn. En jæja. Hann var settur í steininn og yfirheyrður að nokkrum tíma liðnum.
Þá kom í ljós, að maður þessi var óbreyttur hermaður, sem hafði sjálfur ekki framið nein voðaverk, heldur barist við aðra vopnaða menn. Þegar hann var spurður, hvers vegna hann hafi játað þetta á sig sagði hann eitthvað á þessa leið:
Hefðu menn eins og ég ekki barist fyrir Föðurlandið, hefðu öfgamennirnir ekki getað framið stríðsglæpi sína gegn óbreyttum borgurum.
Þetta er eflaust ekki nákvæm saga, heldur byggð á minni. En hún hefur boðskap. Jafnvel þótt "óbreyttir hermenn" séu að "gera skyldu sína", er það í þeirra skjóli, að glæpamenn komast upp með voðaverk sín -- eða hvaða lögbrot sem er.
Ég held að staðreyndin sé, að úr stórum hópi fólks, sem er að fylgja göfugum hugsjónum og sannfæringu sinni um, hvað sé föðurlandinu hagstæðast, koma alltaf ákveðnir öfgamenn, sem ganga lengra.
Umhverfisverndarfólk, sem talar gegn álversstækkun í Straumsvík, ber þó vitaskuld enga ábyrgð á verkum svona vitleysinga, eins og þessara Frelsissamtaka jarðar, en það verður að muna, að í skjóli þeirra dafna öfgarnar.
![]() |
Segjast hafa skemmt vinnuvélar í mótmælaskyni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Sjálfsmorðssprengjumaður stöðvaður
Jæja, enn einn sjálfsmorðssprengjumaðurinn var stöðvaður, skv. fréttum frá því í gær. Málavextir voru þeir, að Shin Bet, innanríkislögreglu Ísraels, barst njósn af því, að sprengjumaður hefði komist inn í Ísrael með varning sinn. Maðurinn var síðan fundinn.
Mér finnst alltaf jafn skrítið að sjá, að Shin Bet (eða Mossad) skuli hafa heimildarmenn jafnvel í innstu hringjum palestínskra hryðjuverkahópa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Ja, nú hefði Byrgið komið að notum!
![]() |
Britney Spears farin í meðferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Pólítískur vandi
Kyprianou sagði að ESB hefði komið á eftirlitskerfi sem ætti að tryggja að slík blöndun ætti sér ekki stað, en vandinn við að aflétta banninu væri pólitískur fremur en vísindalegur.
Hafa ber í huga, í þessu samhengi, að allur vandi ESB er pólítískur. Þetta samband er samansafn margra aðila, sem allir vilja vernda sína hagsmuni og sérstakar áherslur. Ekki svo ólíkt Samfylkingunni? Þar er vandinn líka fyrst og fremst pólítískur.
![]() |
Umhverfisráðherra vill að vísindaleg sjónarmið og rök ráði hjá ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Varla svo óvænt afstaða
![]() |
Hamas vonar að afstaða Bandaríkjanna mýkist gagnvart myndun samsteypustjórnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Meintur hryðjuverkamaður gómaður á Íslandi
![]() |
Í gæsluvarðhaldi vegna gruns um smygls á 4 kílóum af kókaíni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Öll dýrin í Bónus eiga að vera vinir
Spurning hvort Grísinn og Lilli klifurmús hafi ekki komist að samkomulagi. En svo var ekki í þessu myndbandi, þar sem milljónir músa réðust á bændabýli í Ástralíu. Og við kvörtum yfir einni?
![]() |
Kartöflumús í Bónus? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Benitez að hætta hjá Liverpool?
![]() |
Benítez sagður hafa sektað 15 leikmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Coleen
Jahérnahér. Til hvers í ósköpunum er verið að gefa út ævisögu stúlku þessarar, sem er aðeins um tvítugt og hefur ekkert afrekað um ævina, aðeins verið í sambandi við skapvondan fótboltastrák?
Og já, verslunarferðir róuðu hana niður. Einmitt, hún hefur þá verið á barmi taugaáfalls, svona eins og Britney, ef tekið er mið af því, að hún nær heldur heilum verslunarhverfum gangandi með taumlausi eyðslu.
Það hefði verið einfaldara og ódýrara fyrir Rooney, að díla bara við mellurnar og gera sumar þeirra "fulltime".
![]() |
Unnusta Rooney tjáir sig um vændiskonumálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)