Grænir og vænir?

Við framsóknarmenn styðjum auðvitað Blika, úr því við sjálfstæðismenn getum ekki stutt bláa þetta skiptið.

En ég gerist framsóknarmaður og Bliki í tvo tíma í kvöld.

ÁFRAM UBK


mbl.is KR-ingar í úrslit bikarkeppninnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sem, Kam, Jafet

Sem var særður
Kam hærður

en Jafet kærður.

En gamli Nói keyrði bara sinn kassabíl og hló að öllu saman, uns hann varð tærður.


mbl.is Fjármálaeftirlitið kærði Jafet til lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkfall ljósmæðra

Ég er greinilega ekki eins harður maður og ég hélt. Ég ber mikla virðingu fyrir ljósmæðrum og störfum þeirra. Þetta er ein mikilvægasta starfstétt landsins.

Hún er ekki fjölmenn, eiginlega skilst mér að það vanti alltaf ljósmæður til starfa.

En til þess að manna stöður þyrfti þetta starf að vera borgað almennilega - skilst að kaupið sé svosem ekkert sérstakt.

Vinsamlegast gerið allt til að forðast verkfall ljósmæðra. Takk fyrir.


mbl.is Stefnir í verkfall ljósmæðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bannað að virkja

Merkilegt hversu Fortíðarlandið er afturhaldssamt. Kannski samtökin hafi þegar eignast umboðið fyrir breska olíulampa?
mbl.is Hvalárvirkjun ekki svarið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíuverð enn og aftur

Jæja, ætli olíufélögin lækki, hækki eða geri ekkert?

Þetta fer að verða ein alræmdasta spennusaga ársins 2008. Hvernig bregðast ísl. félögin við hækkunum eða lækkunum á heimsmarkaðsverði?


mbl.is Olíuverð lækkar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milljarðar á milljarða ofan

Aldeilis að Spurs verslar. Hver dýri leikmaðurinn af öðrum og fleiri í sigtinu.

Ætli þetta verði nýtt Leeds?


mbl.is Corluka til Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíuverð hækkar víst hressilega í dag

hjá íslensku olíufélögunum, amk.

Helsta spurningin er, hversu mikið?

En vonandi bíða félögin aðeins...þeim liggur amk ekki eins mikið á að lækka, þegar lækkanir verða erlendis.


mbl.is Olíuverð á uppleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar fá íslenska sumarveðrið

Glæsilegt.

Nú þarf bara að senda þeim Samfylkinguna og þá verður þetta allt í gúddí hér á Íslandi.


mbl.is Bretar kvarta sáran yfir sumrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirlýsing

Ég tek hérmeð aftur allt það djók eða aðfinnslur sem ég hef sagt hér á blogginu um ríkisstjórnir Íslands, Bandaríkjanna, Rússlands, og annarra ríkja.

Ég meinti auðvitað ekkert með þessu. Það segir sig sjálft.

En varðandi Rússland, þá hafa þeir nú verið vanir að handtaka menn. Til dæmis á kommúnistaárunum, en fjöldi útlendinga hvarf þar líka eftir handtökur eða drapst.

En hverjir vita hvaða Íslendingur var handtekinn í Rússlandi meða Lenín og co lék þar lausum hala?

Ég veit... Wink


mbl.is Lögregla skaut eiganda vefseturs til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamalt rasssæri að taka sig upp?

Ja, hver veit.

Fæ ekki betur séð en að allt stefni í einn bekkjarsetuveturinn enn.

En vonum hið besta.

Amk fær hann ubermargar millur fyrir að sitja á rassinum.


mbl.is Eiður Smári kom ekkert við sögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband