Pása

BeeJæja, sá tími kemur fyrir alla að menn þurfa á pásu að halda.

Svo er komið hjá mér akkúrat núna.

Ég kveð í bili, en kíki aftur þegar betur stendur á.


Slátrun

Mínir menn í Arsenal gerðu góða ferð til Blackburn og unnu þar auðveldan sigur, 4-0. Ágætt að ná svona úrslitum á útivelli og gegn jafn sterku liði og Blackburn er.

Greinilegt að Denilson er að standa sig vel í DMC. Þegar stóru fallbyssurnar fara, kemur bara einhver kjúklingur í staðinn og ný stjarna er fædd. Þannig virðist þetta vera hjá Arsenal.

Og verður vonandi áfram.

En Man Utd vélin hikstar. En fjögur eyðslufélög eigast við í dag, eða áttust. Milljarðasveit Liverpool lagði milljarðasveit Man Utd. Síðar í dag eigast við ofurmilljarðamæringalið Man City og Chelski.

En kannski er bara betra að ala upp eigin leikmenn en eyða 20 milljón pundum eða meira í leikmenn hvað eftir annað. Það er líka skemmtilegra. 


mbl.is Adebayor með þrennu í 4:0 sigri Arsenal á Blackburn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegið að stöðu kvenna í Íran

Þetta er nú varla frétt. Það hefur verið jafnt og þétt vegið að stöðu kvenna í Íran í margar aldir. En nú virðist eiga að vega ENN FREKAR að stöðu íranskra kvenna.

Þeir, sem að þessu standa eru sömu aðilarnir og halda úti nokkrum samtökum, sem virðast njóta ótrúlegrar hylli meðal ákveðinna Íslendinga, þeirra sömu og kenna sig við femínisma og kvenréttindi. Wink


mbl.is Vegið að stöðu kvenna í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlendingar á Íslandi

Ég sat einn í heita pottinum í Hreyfingu í gærkvöldi þegar maður um fimmtugt bættist í hópinn. Við sátum þegjandi smá stund uns maðurinn ávarpaði mig á ensku og fór að spyrja hvernig mér þætti veðrið. Ég svaraði því til, að það væri svosem ágætt. Veðrið væri verra víða annars staðar.

Talið barst svo að ýmsum þáttum, alltaf á ensku.

Maðurinn kvaddi síðan, en kynnti sig um leið og sagðist heita Friðrik. Ég svaraði um hæl.

Hann horfði undarlega á mig og sagði:


"Fyrirgefðu. Ég hélt þú værir útlendingur".

Ég hlýt að vera svona útlendingalegur.

Eru virkilega það margir útlendingar við störf hér, að menn gera því skóna að menn séu frekar útlendingar en Íslendingar. Eða eru þeir, sem eru með kolsvarta og djúpa skeggrót og hæfilegan bringuháraskóg umsvifalaust taldir útlendingar?


mbl.is Útlendingum fækkar á vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögmál lífsins

Það er eins líklegt að VG-liðar tali mest og að sólin komi upp á hverjum morgni. Gallinn er, að innihald ræðuhalda flestra þeirra a.m.k. er því miður ekki í réttu hlutfalli við magnið!
mbl.is Steingrímur talaði lengst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En mikið er ég feginn því

að Moggamenn urðu ekki stafsetningarvillupúkanum að bráð í þessari fyrirsögn, eins og sumum öðrum.

Hefðu þeir t.d. týnt einu s-i hefði þessi fréttaflutningur endað fyrir dómstólum.


mbl.is Skynvillt sælgæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flúið undan Ike

Hér er greinilega verið að fylgja í fótspor Tinu Turner, sem er þekktust þeirra sem flúið hafa undan Ike.
mbl.is Óttast gríðarlegt tjón í Texas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siggi gamli kominn aftur!

http://sigurdursig.blog.is/blog/sigurdursig/

Jæja, nú verða saumaklúbbskerlingarnar alveg brjálaðar!


Ólsen, Ólsen

Ólsen-Ólsen eru gott dæmi um hvað gerðist þegar það hætti að mega aga til börn og unglinga, og kenna þeim hvað væri æskileg framganga og hvað ekki.

Spilltar dekurdósir, sem ætla að lenda í sama pytti og hinar celebrity-gelgjurnar Britney Spears, Lindsay Lohan og svoleiðis stúlkur.

Kannski er það ekki voða eftirsóknarvert að vera barnastjarna þarna vestanhafs. Flestar þeirra virðast ekki hafa náð að höndla frægð, frama og fjármuni þá, sem fylgja gjarnan slíku.

 


mbl.is Ólátabelgirnir Ólsensystur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn týndir á Bylgunni?

http://www.bylgjan.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=37648

Hvernig geta menn ekki fattað, að ég er að gagnrýna það, að ekki megi nefna að um útlendinga sé að ræða, án þess að allskonar vitleysingar hrópi "rasisti, rasisti".

Eru menn algjörlega fattlausir?

 -----


Ok, þeir föttuðu þetta þegar commentin voru skoðuð?

Snilld, að ég sé "bloggari sem kann ekki að blogga", segir gestur. En þessi framsetning, sem gesturinn skilur ekki, gerði það að verkum, að þessi umræða fór af stað.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband