Föstudagur, 14. september 2007
Hverjar eru líkurnar á...
...að Ljungberg meiðist í þessum leik? Hann hefur verið meira eða minna meiddur síðustu ár og fær solid 70.000 pund á viku fyrir að vera hjá sjúkraþjálfaranum. Ég spái að hann meiðist í þessum leik eða þeim næsta, og verði síðan frá í einn eða fleiri leiki í kjölfari'
Ágætis kaup svo sem hjá Svíanum. Og þar að auki er hann ekkert sérlega góður lengur. Meiðslin hafa sett sinn strik í reikninginn.
En svona er lífið!
![]() |
Ljungberg með West Ham á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 14. september 2007
Fjaðrafok í Femínistalandi
Ég má til með að vekja athygli á stórgóðri grein Andrésar Magnússonar um fasismann í Femínistalandi. Það er hreint með ólíkindum, að femínistar séu svo fanatískir í hatri sínu á vestrænum samfélagsháttum, eða Bandaríkjunum (hvort heldur er), þar sem konur njóta þó mestra réttinda, að þeir (þær) séu tilbúnir (tilbúnar) að beygja sig fyrir hinu pólítíska íslam, þar sem konur eru einna mest kúgaðar í heiminum.
Þessi öfga-íslam-dýrkun VG-liða og skyldra aðila er gjörsamlega óskiljanleg, nema hvað samhengið er "óvinur óvina okkar er vinur okkar." En VG-liðar taka hér með sér frekar furðulegan rekkjunaut.
En merkilegt að helstu málsvarar femínista hér á landi skuli, sem slíkir, boða stefnu VG (Femínistaflokks Íslands), jafnvel þegar um er að ræða stuðning við mestu kvennakúgara heimsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Vandræði
Já, ég var ósáttur við, að Wenger skyldi ekki hafa keypt varnarmann, hafsent, annan en efnilegan 17 ára strák frá Noregi.
Ekki síst þar sem TOure og Eboue fara í Afríkukeppnina í janúar. Og síðan var Djorou lánaður til Birmingham. Meira ruglið.
Og nú súpum við seyðið af þessu rugli, en í staðinn var keyptur enn einn miðjumaðurinn!
En við vinnum Spurs samt...
![]() |
Meiðsli í herbúðum Arsenal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Jodie að meika það
Ég held að við séum öll sammála þegar ég segi: Takk!
Spurning að æviráða hana í Íslandsvinaklúbbinn?
![]() |
Jodie Foster hrifin af Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Gifting og bann
Ja, þar eð Hemmi er nú giftur maður, ætti hann að vera orðinn vanur því að fara í "bann"
En annars á Hemmi að vita þetta, hringurinn getur verið sterkt "vopn" í návígjum. Hann hefði bara átt að taka hann af sér fyrir leik, og málið dautt.
En svona ganga kaupin á eyrinni.
![]() |
Í bann fyrir að vera giftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 12. september 2007
Áfram Ísland
Koma svo strákar. Einn af þeim, sem spá gjarnan vitlaust (spáði Spáni 5-0 sigri um daginn) var óánægður með val Ármanns Smára og taldi þetta rugl. Enda við manninn mælt að Ármann skoraði.
Ég mæli með að karlinn spái Íslendingum slæmu gengi hér eftir, fyrir hvern leik.
Áfram Ísland.
![]() |
Ísland sigraði Norður-Írland 2:1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. september 2007
Skítsama
![]() |
Áfram sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. september 2007
Reðursafnið og Siggi
Ég get ekki annað en brosað stundum, þegar ég hugsa til Reðursafnsins hans Sigga Hjartar, fyrrv. spænskukennara vors í MH. Hvernig í ósköpunum datt honum þetta í hug í upphafi?
En Siggi Hjartar er fáum öðrum líkur. Það lærðu nemendur hans í MH. Og einhvern veginn er maður ekki hissa, að úr því einhver fékk þessa hugmynd, að það skuli hafa verið Siggi.
Með fullri virðingu fyrir kennurum mínum í MH, þá voru Siggi og Einar Laxness þeir allra skemmtilegustu. En hvernig ætli MH komist af án þeirra....það get ég ekki ímyndað mér.
![]() |
Reðursafnið rætt hjá Conan O'Brien |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 11. september 2007
Heimurinn grætur
yfir því, að horfa upp á þessa hörmung mánuð eftir mánuð. Slökkva á henni bara, þá fer hún kannski að taka til hjá sér.
Ömurlegt að heimurinn skuli enn nenna að eltast við þessa ofvöxnu gelgju, sem hefur ekkert fram að færa.
![]() |
Spears sögð hafa grátið baksviðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 11. september 2007
Lélegt hjá FH
Eins og ég hef lengi sagt: hvers má ætlast til af liði sem spilar í Spurs-búningum?
En við hvað eru FH-ingar hræddir? Þessir leikmenn kæmust vísast ekki á bekkinn hjá FH. En nú held ég, að Fjölnir fái mikinn og góðan stuðning gegn fimleikafélaginu.
![]() |
Atli Viðar og Heimir verða ekki með Fjölni í úrslitaleiknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)