Föstudagur, 5. september 2008
Kínamúrinn hrynur
Þetta mál er nú hreint með ólíkindum. Þetta var slæm sending frá risanum í austri.
En geta erlendir borgarar bara labbað hérna inn, stofnað fyrirtæki, hneppt fólk í þrældóm, rekið fyrirtækið í þrot og síðan stungið bara af?
![]() |
Kínverjarnir farnir úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. september 2008
Kaupþing og Khadafi
eru orðnir viðskiptafélagar.
Jahérna.
Kaupþing mun vísast græða á þessu, þó ekki sé nema með því að koma á tengslum við olíumillana í Líbýu.
![]() |
Kaupþing og stjórnvöld í Líbýu fjárfesta í olíufélagi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. september 2008
Umburðarlyndið
Æjá, og þetta lið vilja Múllah Ögmundur og vinir hans brosa til með kærleika og vinarhótum.
Svei.
![]() |
Hóta hryðjuverkum í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. september 2008
Ha?
Ok, gott að greina frá því að leikur FH og Fram hafi verið færður fram um einn dag, frá upphaflegu leikplani, og hefjist kl. 21.00 á Laugardalsvelli.
En það hefði e.t.v. verið betri að hafa einhverjar dagsetningar með fréttinni? Hvaða dag munu þessi lið spila?
Það gagnar lítið að vita klukkan hvað liðin spila, ef menn vita ekki hvaða dag?
![]() |
Fram og FH spila seint |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 5. september 2008
Nálgunarbann
![]() |
Beðið eftir nálgunarbanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. september 2008
Hættuleg íþrótt
Það hefur löngum sannast að golf er ofbeldisíþrótt. Þetta er gott dæmi.
Spurning að fara að setja lög þess efnis, að leikmenn þurfti að geyma kylfur sínar í klúbbhúsinu og fái þær ekki afhentar nema meðan á leik stendur
![]() |
Réðust á mann með golfkylfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 4. september 2008
Það er svona að trúa auglýsingunum
![]() |
Ronnie beint í faðm ástkonunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. september 2008
Bömmer. Ég segi upp líka.
Fimmtudagur, 4. september 2008
Á að handtaka Osama bin Laden?
Æ, ég hef nú eiginlega þá skoðun, að Bandaríkjamenn vilji ekki handtaka bin Laden. Þeir hafa haft fjölmörg tækifæri til þess.
Ég meina, ég gæti látið handtaka bin Laden á nokkrum vikum hefði ég full völd yfir her og öðru batteríi Bandaríkjanna. Það vantar bara pólítískan vilja til aðgerða.
Mig grunar að það henti Bandaríkjamönnum betur að hafa "grýluna" þarna úti, s.s. til að réttlæta það að halda áfram báráttunni gegn hryðjuverkum með meðfylgjandi brotum á eðlilegum mannréttindum fólks, bæði heima og erlendis.
Ef bin Laden yrði handtekinn gæti Pandóruboxið opnast og alls konar óþverri komið upp. Og það gæti jafnframt haft þær afleiðingar, að hinn íslamski heimur myndi springa og staða heimsmála versna jafnvel enn frekar.
En hvað veit ég? Ég hef, ólíkt bin Laden, setið í bandarísku fangelsi vegna grunsemda um hryðjuverkastarfsemi.
![]() |
McCain segist vita hvernig handsama megi bin Laden |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 4. september 2008
Grúsk: Reykjavík um og eftir aldamótin 1900, I.hluti
Var að fletta gömlum "fælum" í tölvunni og rakst á nokkra kafla sem áttu að vera í M.A. ritgerðinni og síðar doktorsritgerðinni sem hvarf í innbrotinu fræga með öllum afritum. Ég fékk þá hugmynd að lauma þessu hér á bloggið í litlum bútum.
Vil jafnframt benda á smá sögukafla, sem ég tók saman um stofnun Taflfélags Reykjavíkur 1900, á heimasíðu Taflfélagsins.
-----------
Eins og hegðun lýsir innri manni, birtist skapgerð þjóðar í háborg hennar. Reykjavík reis eins og fuglinn Fönix úr öskustó sveitanna og þandi vængi sína stöðugt lengra inn í landið. Vöxtur bæjarins var hægur til að byrja með, en loks þegar angar sveitakolbrabbans losuðu tök sín af þjóðarsálinni, hófust stórfelldir fólksflutningar á mölina. Íslenski torfbærinn, sem verið hafði menningartákn frumþjóðar,[1] var nú á undanhaldi fyrir steinsteypu og innfluttu timbri. Íslendingar höfðu fengið sína eigin háborg stjórnsýslu og viðskipta, menntunar og menningar. Hún var Aþena sumra en Sódóma annarra, elskuð og hötuð, heimili hundruða en fjarlægur draumur margra, sem þjakaðir voru af átthagafjötrum og vistarbandi. Skapgerð þjóðarinnar var ekki lengur opinberuð frá hálfhrundum moldarkofum, heldur virðulegum miðbæ Reykjavíkur. Hinn öri vöxtur Reykjavíkur, sem að sögn Laxness var erfðamenningarlaust nýlenduþorp,[2] hafði þau áhrif, að heimsmenningin hóf smám saman að festa dýpri rætur í reykvískri mold. Veitinga-, gisti- og kaffihús höfðu sprottið upp með reglulegu millibili, og skemmtanalíf erfðamenningarlausra Reykvíkinga varð sífellt fjölbreyttara. Síðan var Leikfélag Reykjavíkur stofnað 1897, kvikmyndahús hófu starfsemi sína og fleira mætti telja til.[3] Íslensku sveitalubbarnir voru nú smám saman að taka á sig nýju klæðin heimsborgarans.
Grúsk | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)