Kjarnorkuvopnaáætlun Írana

Jæja, allt fram streymir endalaust.


Það nýjasta í þessu máli er, að nú eiga ísraelskar herþotur að hafa varpað sprengjum á geymslustað kjarnorkubúnaðar, sem Norður-Kóreumenn eiga að hafa fengið Sýrlendinga til að geyma fyrir sig, annað hvort til að felann fyrir Bandaríkjamönnum eða til að selja Írönum. Norður-Kóreumenn hafa kjarnorkugetu (og hafa víst smíðað nokkrar sprengjur), en vantar peninga og mat. Íranir hafa ekki enn náð að þróa kjarnorkuvopn, en eiga nóg af peningum og mat.


En í öllu falli treysti ég ráðamönnum í Íran og Sýrlandi ekki hæðishót. Þeim fyrrnefndu enn síður. Og þar hef ég ríkari ástæður en margir aðrir. Til dæmis er gamall vinur minn víst á topp-tíu "hitlista" Írana og hefur verið þar, með hléum, frá því 1979. Hann var yfirmaður lífvarðasveita Íranskeisara og stofnaði hryðjuverkasamtök við byltinguna og stóð fyrir ýmsum ofbeldisverkum, t.d. rændi hann írönskum eldflaugabát, sprengdi í loft upp hús Khomeinis í París, o.fl.


Hann reyndi síðan að fremja sjálfsmorð með því að snúa aftur til Írans, en sendisveinar klerkanna höfðu margsinnis reynt að drepann. En Íranir fyrirgáfu honum, "glataða syninum", og hann varð lögfræðingur í Teheran. Þar hafði hann m.a. það "hlutverk", að skaffa æðstu klerkunum mellur og eiturlyf. Sagði hann hreint út, að stundum hafi æðstaráðið haldið fundi í slíku "ástandi", með gleðikonur bíðandi í sófum og flestir í annarlegu ástandi.


Hvað ef ástandið er svona ennþá, en þetta gerðist fyrir c.a. 10 árum, en hann þurfti að flýja land eftir smá "árekstur" við Khomeini fjölskylduna, eftir að hann rak mál flugmanna í íranska hernum, en fjölskyldan hafði hrifsað til sín eftirlaunasjóði þeirra undir einhverju yfirskini. Hann flúði þá land og komst naumlega til 'Astralíu, þar sem hann var hrakinn úr landi, með íranska drápshunda á hælunum. Hann komst til Ísraels, sem var eina ríkið sem vildi hafann: "Enda eru þeir þar allir á drápslista Írana hvort sem er", sagði hann mér glottandi.


Maður þessi er, eða var þá, einn af foringjum írönsku útlagastjórnarinnar og sagði hann mér margar furðusögur af leiðtogum Írans, á meðan ég prófarkalas fyrir hann drög að ævisögu, sem hann hafði þá í smíðum.


En af frásögnum hans að dæma hef ég enga ástæðu til að ætla annað, en að Íranir muni láta vaða, komist þeir yfir kjarnorkusprengju. Þeir voru, fyrir um tíu árum síðan, tilbúnir að hrinda heimsstyrjöld af stað til að eyða Ísrael. Og með núverandi forseta eru þeir e.t.v. í engu betra hugarástandi, enda er trúarofstæki klerkanna jafnvel meira nú, en það var fyrir tíu árum rúmum.


Þessa menn þarf að stöðva.


mbl.is Kouchner segir heiminn verði að búa sig undir átök við Írana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóðaboðsmótið hefst á morgun

skak-logo1Jæja, Alþjóðaboðsmótið 2007 hefst á morgun, mánudag. Sjá frekari upplýsingar á sérstakri síðu á heimasvæði Taflfélags Reykjavíkur.

 

 

 

Í kvöld var dregið um töfluröð og í 1. umferð mætast (Í A-flokki)

Matthías Pétursson - Domantis Klimciauskas
Esben Lund - Jón Viktor Gunnarsson
Daði Ómarsson - Bragi (Bragat) Þorfinnsson
Ingvar Þ. Jóhannesson - Andrzej Misiuga
Kestutis Kaunas - Guðmundur Kjartansson


Rassakáf á fótboltaleikjum

FagnadmarkiJa, eða amk þegar menn fagna marki, sbr. frétt Moggans og meðfylgjandi mynd.Wink

 


mbl.is Meistararnir töpuðu fyrir Blikum - KR enn á botninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Solid hjá Adda bé

Og Addi er einnig Atskákmeistari Íslands og Reykjavíkur.

 

En T.R. ingar voru í fjórum af fimm efstu sætunum á hraðskákmótinu. Hinir fræknu liðsmenn T.R. munu vonandi koma fílefldir til leiks á þeim mótum, sem framundan eru; hraðskákkeppni við Akureyringa á manudagskvöldið, Boðsmótið sem byrjar eftir helgi og síðan Evrópumót félagsliða (sbr. Meistaradeild Evrópu í skák). Á síðasta ári lenti T.R. sveitin öllum að óvörum í 5-12 sæti, ásamt sveitum sem voru skipaðar nær eintómum stórmeisturum. Og nú er að halda baráttunni áfram.


sjá www.taflfelag.is

Addibe
mbl.is Arnar E. Gunnarsson varð hraðskákmeistari Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1. dagur í Sköfu

Jæja, þá þurfti maður að grípa til sköfunnar í morgun, í fyrsta skipti á þessum "vetri". Ja, veturinn er amk kominn á föðurættarslóðum mínum fyrir austan. Og í morgun þurfti ég að skafa af bílnum.


Sumarið var mjög gott, heilt yfir litið, þó haustrigningarnar hafi e.t.v. komið full snemma og staðið of lengi yfir. Hér hefur semsagt rignt meira eða minna í margar vikur og nú upp á síðkastið hefur verið skítakuldi á milli.


Sköfutíðin er því formlega hafin í Reykjavík og nágrenni. Fussumsvei. Kuldafhnykur í húsum vorum. Og maður þarf að setja hita á ofninn á nóttunni.


Maður hummar "Frost á fróni" yfir morgunkaffinu, en bítur á jaxlinn og rennir upp í háls á kuldaúlpunni.


Al-Kaída hótar Símanum

Al-Kaída hefur nú hótað að hætta viðskiptum við Símann, eftir að hafa séð hina smekklausu auglýsingu Símans, þá er hefur staðið um styr hér á landi að undanförnu.


Jafnframt hefur Al-Kaída hótað að sprengja upp höfuðstöðvar Símans og senda Jón Gnarr í endurhæfingu.


Eða ekki...!


mbl.is Al-Qaeda hótar sænskum fyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arsenal á toppnum

Sannfærandi, heilt yfir litið, sigur á Spurs, en bæði lið hefðu getað skorað fleiri mörk. Og mark Spurs var grátlega ódýrt.


Og Liverpool græddi stig, þegar Reina varði víti frá Kanu. Roar.


Og Man Utd stal sigri í arfaslökum leik, skilst mér, gegn Everton.


En mínir menn eru í góðri stöðu á toppnum. EIns og maður sagði, fyrir mót: Arsenal mun spila betur án Henrys! Nú eru 11 leikmenn í liðinu, en ekki bara 1 stjarna og 10 aðstoðarmenn.


mbl.is Arsenal í toppsætið eftir 1:3 sigur á Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spretthlaup á Mýrdalssandi

Jæja, þá er Múlakvísl byrjuð á spretthlaupinu þetta árið. Æ, ég veit nú ekki, en mér finnst alltaf gaman að sjá þennan nánast þurra árfarveg breytast í fljót.
mbl.is Lítið hlaup í Múlakvísl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagskvöld

Æ, eitt af þessum leiðinlegu föstudagskvöldum, þegar maður situr einn á skrifstofunni og nennir ekki heim. Smá hausverkum, en maður hristir þetta af sér.


Þetta hefur verið ömurleg vika, litið heildrænt yfir aðrar vikur á árinu í réttu samhengi. Rigning og rok, og maður er ekki viss hvaða árstíð sé í gangi. Og maður hefur einhvern veginn ekki komist í gang með neitt.


Já ég held að ég sé bara orðinn gamall. Ég hef engar aðrar skýringar. Maður er hættur að meika langar setur hér á ltlu, kósi skrifstofunni minni í Ármúlanum.


En jæja, maður verður bara að halda áfram, taka eitt skref í einu og láta hverjum degi nægja sína þjáningu.


Það er meira en nóg. Ég myndi varla afbera að bera þjáningu heillrar vikur á einum degi.


En meira bullið. 

 

 


Stjörnuspáin

Stjörnuspá

HrúturHrútur: Þú ert að tengja á skrýtna vegu. Þér tekst að nota lífsfærnina í viðskiptum, viðskiptavitið í ástum og tilfinninganæmnina í íþróttum. Allt er að ganga upp.
Ég skil nú upp né niður í þessu. Eins gott að ég trúi ekki á stjörnuspár! En ég vona þó, að síðasta setningin muni koma til framkvæmda fljótlega...þó ekkert bendi til þess þessa dagana.Wink

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband