Zidane í Kópavogi?

Ja, hver annars hefði átt að skalla lögguna svona rosalega?4
mbl.is Réðust á lögreglu - fimm handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rútuferðir: Afganistan - Borgarfjörður - Reykjavík

Þetta gæti orðið mjög löng ferð. Spurning að taka frekar næsta flug?
mbl.is Íslenskur langferðabíll í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Muppets

Norsararnir mega frekar þakka stönginni fyrir að hafa fengið eitt stig. Þar fyrir utan, ef það er ekki nóg, geta þeir kennt 11+ lélegum leikmönnum um úrslitin og hrokafullum þjálfara.
mbl.is Tveimur kennt um jafnteflið gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sættir í sjónmáli

Ja, nú þykir mér týra.

Armenar taka á móti Tyrkjum á hinum póítíska vettvangi (og löndin voru víst að keppa í gærkvöldi í fótbolta, í undankeppni HM).

Ég sem hélt að Armenar fyrirlíti Tyrki vegna fjöldamorðanna miklu og allsherjarofsókna á Armenum, á yfirráðasvæði Tyrkja, um og við upphaf 20. aldar.

En ef þessar þjóðir geta rætt hvor annarri sáttahönd, er spurning hvenær Bergz og Panda sættast? Úff. Smile

En í þessu samhengi má nefna, að nokkrir "Armeningar" komu hingað á þessum tíma til að sníkja peninga. Held ég hafi bloggað um þetta fyrir nokkrum vikum eða mánuðum síðan.

En gaman að sjá forna fjendur sættast. En áður en það gerist held ég að Tyrkir þurfi að viðurkenna afbrot sín hið forna. Það ætti að vera í lagi, þar eð hundrað ár eru liðin. En að vísu hafa Tyrkir alltaf neitað sök og setja upp sakleysissvip uns þeir verða rauðir í framan.

En það gagnast ekkert. Gögnin gefa ekki tilefni til slikrar söguskoðunar.


mbl.is Tyrkir og Armenar vilja sættast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullöldin liðin?

Bæði landslið Íslendinga og Norðmenna mega mun sinn fífil fegurri. Áður fyrr áttu báðar þjóðir leikmenn í fremstu röð. Bæði landslið áttu stjörnur.

Nú eru bæði lið uppfull af meðalmönnum, með e.t.v. 1-2 "stjörnum". En stjörnur vinna ekki alltaf leiki, heldur liðið eða liðsheildin.

Þess vegna eru landslið beggja þjóða svona léleg...í víðara samhengi.


mbl.is Stöngin bjargaði Norðmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími til að skora

Já, tími til að skora. Ágætt að ná stigi í Noregi. En bömmer að ná ekki klára leikinn og setjann!

Hefði verið að gaman að taka Norsarana í Osló.

Áfram Ísland.


mbl.is Það var kominn tími á að skora
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er umhverfisráðherra ekki í röngum flokki?

Ég sé ekki betur en að hún eigi bara að hunskast heim í VG, þar sem fólk með sömu skoðanir dvelur og týnir fjallagrösin sín.
mbl.is Segir Bjallavirkjun ekki koma til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar að standa sig

Merkilega gott. 2-2 staðan.

Þrátt fyrir að norsararnir hafi fengið vafasama vítaspyrnu (skv. lýsingu Mbl).

Þetta er amk miklu betra en maður átti von á.

En Íslendingar eru að koma til.


mbl.is Frábær úrslit í Osló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blindur á öðru?

Voru það ekki NATO ríkin sem fóru fremst í því að viðurkenna sjálfstæði Kosóvo?

Sumir menn eru fljótir að gleyma.


mbl.is Cheney: NATO-ríkin verða að sameinast gegn ágangi Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja Kíki. Kíki hefur kvef. Sækið lækni. Þurrkaðu af fótunum!

Jahérna. Kíki býr þá í New Jersey. Hinn stórskemmtilegi páfagaukur Jonna í Ævintýrabókunum er því ekki svo mikill uppspuni eftir allt saman.

Kannski engin opinberun, en páfagaukar virðast sumir hverjir hafa þessa eiginleika.

En það er saga um norskan páfagauk sem sat oft úti í glugga á heimili eigenda sinna í Osló um 1942 og hrópaði: "Niður með Hitler, Niður með Hitler".

Ég man ekki hvort eigandinn var skotinn eða ekki, en hann var a.m.k. handtekinn og færður til yfirheyrslu.

Síðan var víst páfagaukur í húsi einu í Amsterdam um 1943, á efstu hæð fjölbýlishúss, næst geymsluloftinu. Hann sat oft frammi á stigagangi og hrópaði ókvæðisorð gegn Gyðingum og kommúnistum. Eigandi hans ku víst hafa fengið einhvern viðgjörning hjá erindreka hollenskra nasista, en hann bjó víst á neðstu hæðinni - veit þó ekki í hverju það fólst - en í öllu falli var manninum umbunað fyrir að kenna páfagauknum svo uppibyggilega tóna.

Það sem flokkurinn vissi ekki, að í (?leyni) herbergi í íbúð þessa manns og á háaloftinu földust Gyðingar á flótta. Engum datt í hug að maður sem hafi kennt gauksa slík orð gæti verið að fela Gyðinga.

En hverjir muna eftir páfagaukum úr Tinnabókunum!

Ég man í fljótu bragði eftir að páfagaukar með munnræpu hafi komið fyrir í 2 Tinnabókum. Ef einhver hefur nennt að lesa þetta hingað, má sá hinn sami koma með svar.


mbl.is Bara bull í blaðurskjóðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband