Mánudagur, 24. september 2007
Franska ríkið á hausnum
Jæja, þetta er önnur fréttin um þetta mál, eða þriðja. Hér um daginn var talað um, að sjóðasukkið í Frakklandi hefði sett ríkiskassann á hausinn, þ.e. endalausar niðurgreiðslur og allskonar fyrirgreiðslur til einstaklinga eða fyrirtækja.
Greinilegt að framsóknarmenn hafa stjórnað of lengi í Frakklandi.
![]() |
Franska ríkið í miklum fjárhagserfiðleikum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 23. september 2007
Slagur uppi og niðri
Jæja, úrslitin í enska boltanum í dag voru nokkuð merkileg. Í botnliðaslagnum gerðu Bolton og Spurs jafntefli. Bolton virðist ekkert geta nú um þessar mundir, eftir að Big-Sam fór og Sammy little ákvað að reyna að láta liðið spila fótbolta, en ekki bara kýlingar og tæklingar. 1-1 semsagt, en þetta hljóta að vera vonbrigði hjá BOlton að ná ekki að sigra Tottenham, sem mín vegna má falla...þó ég efist um að svo verði.
1-0 fyrir Man Utd gegn Chelsea, þegar ég gáði síðast. Tevez skoraði undir lok fyrri hálfleik. Gott á þetta leiðinda Chelsea lið.
Og Pompey sigraði Blackburn rúbbíliðið á útivelli með marki frá fyrrv. Arsenal manninum Kanu. Newcastle vann West Ham, og Aston Villa vann Everton í innbyrðis slag "miðjuliðanna".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 23. september 2007
Óléttusögur
Jæja, þrjár óléttu/barneignafréttir frá stjörnunum í röð á mbl.is undir Fólkið. Salma Hayek orðin mamma, "Charlotte" í Sex in the City verður ólétt í myndinni og Aguilera ólétt af strák.
En ég sakna fréttar um óléttur milljóna kvenna út um allan heim. Þær fréttir eru ekkert síður merkilegar en þessar.
Verður persóna eitthvað betri og merkilegri, sem slík, við það eitt að eiga fullt af peningum?
![]() |
Gengur með strák |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 23. september 2007
Dagar hjá múnkum
eru greinilega orðnir fjölbreyttir. En mér finnst kominn tími til, að Myanmar-búar steypi þessari bullstjórn herforingjanna og komi á lýðræði -- sé það raunhæft í landinu, en um það veit ég ekki, en vona.
Þessi kúgunarstjórn hersins þarf að víkja. Punktur.
![]() |
Nunnur bætast í hóp mótmælenda á Myanmar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 22. september 2007
Auðvelt
hjá Arsenal. Nú er vissulega gaman að vera Arsenal-maður eftir vonbrigði síðasta árs.
En nú er bara að halda áfram á sömu braut og taka þetta!
![]() |
Stórsigur Arsenal - markalaust hjá Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 22. september 2007
Leiðinlegt
Þetta er eitt af leiðinlegustu mótum, sem ég hef orðið vitni að. Þessir miklu meistarar þora varla að tefla skák af ótta við að tapa. Og því verða þarna fjölmörg baráttulaus jafntefli.
Ömurlegt. Ég nenni a.m.k. ekki að fylgjast með þessu rugli áfram.
En
![]() |
Anand heldur forustunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 22. september 2007
Enn ein ekki-fréttin af ofvöxnu gelgjunni
![]() |
Britney Spears ákærð fyrir umferðarlagabrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 21. september 2007
Styrkjasystemið
Jæja, þá eru Frakkar að fatta þetta. Hvað græða menn á ríkisstyrkjasysteminu?
Gjaldþrota ríkiskassa. Þetta lærðu Íslendingar fyrir löngu. En því miður hefur ekki tekist að venja okkur af þessu algjörlega!
![]() |
Forsætisráðherra Frakklands segir ríkið á barmi gjaldþrots |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 21. september 2007
R-listaklósettið hreinsað
Jæja, hreinsunarstörf ganga vel í borginni. Borgaryfirvöld geta bráðum farið að einbeita sér að stjórnun borgarinnar, en hingað til hefur það verið helsta hlutverk þeirra, að hreinsa upp sóðaskapinn sem R-listinn skildi við sig, ekki síst í Orkuveitunni, sem var einskonar egóflippleikvöllur R-listamannanna.
Og sóðaskapurinn berst víða -- nú hefur tilgangslaus nefnd, sem stofnuð var til að gleðja Alfreð Þorsteinsson og veita honum smá bitling í þakklætisskyni fyrir að spandéra fjármunum borgarbúa í allskonar húllumhæ, verið aflögð. Kominn tími til.
En mikið vildi ég, að R-listagengið kæmist til valda í Kaupþingi. Þá fengi maður vísast borgað fyrir að fara yfirum á debetreikningnum.
![]() |
Risarækjueldi hefur engum tekjum skilað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 21. september 2007
Luciano Cortes?
Jæja, nú er Nonni farinn út í heim að meika það. Manni varð eftir heima, eins og í raunveruleikanum. Og, eins og "alvöru Nonni" forðum, hefur Garðar Thor "meikaðað". Á skömmum tíma hefur hann slegið í gegn í Englandi og víðar, enda syngur hann alveg ofboðslega fallega strákurinn. Og ég sem hef engan áhuga á svona músík, viðurkenni það glaður.
Það besta við, að Garðar Thor skuli "meikaðað" er, að hann er góður fulltrúi Íslands og íslenskrar tónlistar. Hann er einfaldlega "nice guy", góður strákur sem fer í kirkju einu sinni í viku, er ekki í neinu veseni og ólifnaði, er stilltur og prúður, kem vel fyrir og fram.
En hann þarf að fitna all hressilega, ætli hann að komast i fötin hans Pavarottis.
![]() |
"Það kemur enginn í hans stað" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)