Þriðjudagur, 2. september 2008
Brandari
Þau eru bæði að vekja athygli á sér; komast á síður slúðurblaðanna og svo framvegis.
Þetta PR múf mun þó varla skila miklu til langs tíma.
Michael Jackson er sækó og ýmislegt má segja um Pamelu og hinar sólríku suðursvalir hennar.
![]() |
Heitasta parið vestanhafs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 2. september 2008
Nýi Google vafrinn (screenshot innifalið)
OK, Mogginn fylgist með. Þetta má m.a. lesa um á Search Engine Watch og víðar, m.a. smáumfjöllun á íslenskri síðu. Hér er svo ein góð.
Að neðan er svo screenshot af Google vafranum nýja. Ég er amk spenntur eins og amk flestir þeir sem starfa við Google-tengd málefni.
![]() |
Google-vafri væntanlegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 2. september 2008
Smákrakki
![]() |
Grét er hann missti af fluginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 2. september 2008
Er Guð til?
Ja, Michael Moore hélt því fram að Guð væri til. Sönnunin væri, að hann hefði sent fellibyl til að eyðileggja flokksþing repúblikana og styrkja þannig demókrata í sessi, því athyglin yrði öll á Gústavi en ekki McCain og co.
En nú gerist það, að skv. skoðanakönnunum FYRIR flokksþing repúblikana, en EFTIR flokksþing demókrata, að McCain og Obama hafa sama fylgi, svo gott sem. Munar 1%.
Og Gústav ákvað að draga sig í hlé til að hjálpa repúblikönum, sem nú hefja sitt flokksþing þegar Gústi hefur ákveðið að slaka á. Eða var það skipun að OFAN, eins og Michael Moore hefði sagt?
![]() |
Flokksþing repúblikana hafið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 2. september 2008
Frakkar vakna
Löngu tímabært. Frakkar verða að fara að átta sig á því, að heimurinn snýst ekki um Frakkland eins og hann gerði á tíð "Ancien Regime". Mjög fáir skilja neitt í frönsku og jafnvel þeir sem hafa lært eitthvað í skóla eiga erfitt með að tala málið nema með búsetu þar í amk nokkra mánuði. Ég veit um fólk sem heitir því að fara aldrei aftur til Frakklands, því þarlendir annað hvort kunni ekkert í ensku eða vilji ekki tala ensku: "Ef þú vilt koma til Frakklands, skaltu tala frönsku við okkur" var m.a. sagt einu sinni.
Frakkar verða bara að átta sig á breyttri stöðu. Í Austur-Evrópu þar sem franska var víða "þriðja erlenda mál", á eftir rússnesku og þýsku, hefur enskan nú tekið við sem a.m.k. annað mál, ef ekki fyrsta, og franskan dottið niður.
Og frönskukennsla hefur minnkað.
Ég tók frönsku í síðasta bekk grunnskóla og tók síðan 7 áfanga í frönsku í MH. Var nú ekkert sérlega áhugasamu, en kláraði þó. Fór síðan nokkrum mánuðum síðar til Parísar á skákmót. Jújú, ég gat lesið frönsku blöðin, merkilegt nokk, en dáldið erfiðara reyndist að tala málið. Síðar bjó ég með franskri stelpu í nokkra mánuði á stúdentagörðunum...við töluðum alltaf saman á ensku.
Því gerðist það oft, þegar maður fór í búðir, að ég talaði á ensku, sem afgreiðslufólkið skildi (með herkjum amk) og svaraði mér á frönsku, sem ég skildi með herkjum. Sniðugt kerfi...en fáránlegt.
En vonandi stendur þetta allt til bóta.
![]() |
Aukin enskukennsla í frönskum skólum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. september 2008
Enn af Palin
Ef fjölmiðlar hefðu fengið þessa frétt fyrir c.a. 2 vikum hefðu fáir haft áhuga á fréttinni. T.d. hefði Mogginn ekki birta frétt um að 17 ára dóttir ríkisstjóra Alaska væri ófrísk.
Hún er, þrátt fyrir allt, ekki orðin varaforseti enn.
![]() |
17 ára dóttir Palin á von á barni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. september 2008
Grænir og vænir?
Við framsóknarmenn styðjum auðvitað Blika, úr því við sjálfstæðismenn getum ekki stutt bláa þetta skiptið.
En ég gerist framsóknarmaður og Bliki í tvo tíma í kvöld.
ÁFRAM UBK
![]() |
KR-ingar í úrslit bikarkeppninnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 1. september 2008
Sem, Kam, Jafet
Sem var særður
Kam hærður
en Jafet kærður.
En gamli Nói keyrði bara sinn kassabíl og hló að öllu saman, uns hann varð tærður.
![]() |
Fjármálaeftirlitið kærði Jafet til lögreglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 1. september 2008
Verkfall ljósmæðra
Ég er greinilega ekki eins harður maður og ég hélt. Ég ber mikla virðingu fyrir ljósmæðrum og störfum þeirra. Þetta er ein mikilvægasta starfstétt landsins.
Hún er ekki fjölmenn, eiginlega skilst mér að það vanti alltaf ljósmæður til starfa.
En til þess að manna stöður þyrfti þetta starf að vera borgað almennilega - skilst að kaupið sé svosem ekkert sérstakt.
Vinsamlegast gerið allt til að forðast verkfall ljósmæðra. Takk fyrir.
![]() |
Stefnir í verkfall ljósmæðra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 1. september 2008
Bannað að virkja
![]() |
Hvalárvirkjun ekki svarið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)