Sunnudagur, 24. ágúst 2008
Silfrið: góður árangur þrátt fyrir allt
Ekkert væl núna. Ekkert svekkelsi.
Þetta var einfaldlega stórkostlegt.
Við komumst í úrslitaleikinn og ekkert væl.
Takk strákar. Við gerðum okkar, gerðum okkar, gerðum okkar, gerðum okkar besta.
En Frakkarnir voru bara ótrúlega góðir. Svona gerist bara.
![]() |
Fundum ekki lausnir í sókninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 24. ágúst 2008
Draumurinn búinn
En takk strákar fyrir að komast svona langt og gefa okkur svona mikið.
Áfram Ísland.
Takk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 24. ágúst 2008
Frakkarnir sigla fram úr
7-4. Við búnir að klúðra víti og fullt af færum.
Koma svo strákar. Taka þetta.
Áfram Ísland
![]() |
Ísland í 2. sæti á ÓL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 24. ágúst 2008
Nú pöntum við flugeldasýningu í Kína
En í stað þess að sprengja Kínverja, má sprengja nokkra Frakka.
Jæja, klukkan er 05:45 og minn er vaknaður. Kaffið rennur niður í könnunni, en ég er þegar kominn með nýmalað kaffi úr "kaffivélinni". Ég verð því vonandi vaknaður almennilega þegar leikur Íslendinga og Frakka byrjar.
En nú er spennan a verða óbærileg. Staðan er 6-6 í leik Króata og Spánverja. Ok Balic að eiga flotta sendingu, 7-6 fyrir Króata. 8-6 hraðaupphlaup. Gott. Áfram Króatía. Jarða þessu spænsku hrokagikki og Spánverjarnir eru jafnframt manni undir. Og Króatarnir vinna boltann, en missann út af.
Og ég horfi á þessa vitleysu, ussuss. Er jafnframt að hlusta á viðtal við einn af snillingum Google, Matt Cutts. Alltaf gott að rifja upp fræðin.
En spennan magnast. Nú væri snilld að fá góða flugeldasýningu í Kína. Áfram Ísland.
ÁFRAM ÍSLANDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDDD
![]() |
Flugeldasýning á sundunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 24. ágúst 2008
Mæta Frakkar sigurvissir til leiks?
Vonum það.
Þá gætu þeir ofmetnast eins og Þjóðverjar, Danir og aðrir þeir sem fara hafa niður í logum gegn Íslendingum (a.m.k. faktískt...nema með hjálp dómara).
Svo ekki sé talað um Spánverjana.
Áfram Ísland
![]() |
Telja fullvíst að Frakkar vinni Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Þjóðin býr sig undir leikinn
Jæja, nú fer að styttast í leikinn. Sumir hanga í bænum fram yfir miðnætti eða fram á nótt...aðrir fara að skríða í bælið til að vera vakandi þegar leikurinn hefst.
Áfram Ísland.
![]() |
Útsending undirbúin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Málin skýrast
Sumir okkar hér á blogginu hafa stundum rætt skringilega framsetningu efnis hér á mbl.is.
Nú taka málin að skýrast. Já, skýringin er fundin.
Færeyskir blaðamenn í starfskynningu á Mogganum.
![]() |
Ísland tekur Frakkar á bólið" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Fitubollufasismi?
Svo sem allt í lagi, þannig séð, að láta fitubollur borga aukalega í sjúkratryggingar.
En hvernig á að skilgreina "fitubollu" í landi þar sem helmingur íbúanna er með hamborgararass?
Hvað þá í Suðurríkjunum, þar sem offita er úbreiddust í heiminum?
En hvað kemur næst?
- reykingamenn borga aukalega í sjúkratryggingu
- drykkjumenn borga aukalega í sjúkratryggingu
- fólk með sjúkrasögu borgar aukalega ....
- fólk yfir 40 ára aldri borgar aukalega...
- fólk með ung börn borgar aukalega vegna veikindadaga barna og "smithættu"
- innflytjendur borgi aukalega, því þeir gætu borið með sér "sofandi" smit frá heimaslóðum
Þetta er svosem réttlætanlegt þegar í hlut á fólk sem vill ekki bæta sig...fitubollur sem vita af vandamálinu en hakka samt í sig þrjá Big Mac í hádeginu með 2 stórum skömmtum af frönskum.
Hef meiri samúð með hinum flokkunum...þar er oft erfiðara við að eiga, þó matarfíkn sé vissulega til og geti verið vandamál.
![]() |
Bollurnar borgi eða grenni sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Menningardagur?
Jæja, dæmið er byrjað.
En eins og venjulega mun ég ekki taka þátt. "Censor Culture Night" er málið.
Ég tek jafnan ekki þátt í svona fjöldahysteríu, fer jafnvel ekki í bæinn 17. júní.
Ég mun því frekar sitja heima og lesa um Buzz marketing, bloggið hans Matt Cutts eða eitthvað skemmtilegt.
![]() |
Góð stemning í bænum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. ágúst 2008
Loksins komst Ísland á forsíðu New York Times...fyrir eitthvað jákvætt
Árangur Íslendinga á forsíðu NYT! Jahérna.
En hvað ætli þetta merki í raun fyrir handboltann? Kannski árangur Íslendinga verði til þess að áhugi fólks á þessari íþrótt fari vaxandi í USA og viðar?
En strákarnir eru að auka hróður Íslands og bara allt gott um það að segja.
![]() |
Íslenskur handbolti á forsíðu New York Times |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)