Föstudagur, 31. ágúst 2007
Úreldar fréttir
Mogginn er degi á eftir. Fjórða umferð er búin, sjá heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur.
Vek athygli á stöðunni í mótinu, en T.R.ingarnir sex eru í sex efstu sætunum!
1 | ![]() | GM | Stefansson Hannes | ISL | 2568 | TR | 3,5 |
2 | ![]() | IM | Kristjansson Stefan | ISL | 2458 | TR | 2,5 |
3 | ![]() | IM | Gunnarsson Jon Viktor | ISL | 2427 | TR | 2,0 |
4 | ![]() | GM | Thorhallsson Throstur | ISL | 2461 | TR | 2,0 |
5 | ![]() | FM | Arngrimsson Dagur | ISL | 2316 | TR | 2,0 |
6 | ![]() | FM | Bergsson Snorri | ISL | 2301 | TR | 2,0 |
7 | ![]() | IM | Thorfinnsson Bragi | ISL | 2389 | Hellir | 2,0 |
8 | ![]() | Gretarsson Hjorvar Stein | ISL | 2168 | Hellir | 1,5 | |
9 | ![]() | FM | Johannesson Ingvar Thor | ISL | 2344 | Hellir | 1,5 |
10 | ![]() | FM | Kjartansson David | ISL | 2324 | Fjolnir | 1,5 |
11 | ![]() | WGM | Ptacnikova Lenka | ISL | 2239 | Hellir | 1,5 |
12 | ![]() | FM | Lagerman Robert | ISL | 2315 | Hellir | 1,0 |
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 31. ágúst 2007
Er þetta ekki bara ágætt?
Þarna koma saman "risarnir tveir", en ætli svona "big-band" dæmi gangi betur núna en það gerði þegr Vaka-Helgafell og M&M veldið sameinuðust?
Einhvern veginn held ég að svo verði núna. Og þeir Halldór GUðmundsson og Jóhann Páll & Son eiga eftir að gera margt gott í framtíðinni.
En nú verður e.t.v. aðstaða litlu félaganna verri en áður, eða kannski myndast nú meira rými fyrir "litlu" forlögin?
![]() |
Jóhann Páll útgefandi Forlagsins og Halldór Guðmundsson stjórnarformaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 31. ágúst 2007
Það er gott að búa í Grímsnesinu um helgar
![]() |
Sumarbústaður í Grímsnesinu brann til grunna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 31. ágúst 2007
Methagnaður banka
Jæja, og hvað ætli stór hluti sé "erlendis frá", eins og gjarnan er viðkvæðið, þegar methagnaður banka og sparisjóða er nefndur.
Eða kemur þessi hagnaður til fyrst og fremst af háum vöxtum og þjónustugjöldum?
![]() |
Hagnaður Sparisjóðs Kópavogs margfaldast milli ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 31. ágúst 2007
Snilld: búktalari notar áhorfanda sem "dúkku"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 31. ágúst 2007
Nú þarf bara að taka KR
Það ætti að duga til að hanga í deildinni....en botnbaráttan er orðið nokkuð hörð.
En mínir menn, þeir bláhvítu, hafa allir verið að koma til upp á síðkastið. Og í öllu falli er félagið með allt of gott lið til að falla.
KR að vísu líka, en það yrði gaman að mæta Jóhann i KRingi í stiganum ef KR myndi falla.
![]() |
Fram og Keflavík skildu jöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Skemmtileg vísa...og úrslit kvöldsins
Jæja, þá fékk maður guttann. Eins og fastir lesendur þessarar síðu vita, reyndi ég að þjálfa strákinn aðeins í vor og sumar.
Þetta var því agaleg staða, því ég vissi nákvæmlega hvað hann teflir, sérstaklega gegn 1.d4, sem við vorum aðallega að stúdera.
Ljóst var, að myndi ég leika 1. d4 væri ég að misnota aðstöðu mína. Samt ekkert sem bannar það, en jafnvel ég fæ stundum pot í samviskuna. Ég lék því 1.e4 og náði góðri stöðu, en strákurinn hélt sér fast og jafntefli var samið.
Varð þetta tilefni til, að skákstjórinn orti vísu um þessar furðulegu aðstæður, þjálfarinn og "neminn", eða Simen og Magnús, eins og Bivark kallaði þetta.
En jæja, þrjú jafntefli. Slæmu fréttirnar eru, að ég hef enn ekki unnið skák í mótinu. Þær góður eru, að ég hef heldur ekki tapað. En nú er það Ingvar Þór á morgun. Nú verður látið sverfa til stáls, eins og jafnan er í skákum okkar.
![]() |
Hannes Hlífar tók forustuna á Íslandsmótinu í skák |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Jæja, hvaða fjárfestar ætla nú að kaupa Toys R US?
![]() |
Toys R" Us innkallar liti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Jolie ekki tekin alvarlega
Jolie ekki tekin alvarlega? En það hefur held ég lítið að gera með atvinnu hennar. Ég gæti nefnt aðrar ástæður:
* Hún stakk undan Aniston. Margir erfitt með að taka hana alvarlega eftir það, nema sem leikkonu í "She Devil" endurgerð.
* Karlmenn hlusta e.t.v. lítið á hana. Þeir eru of önnum kafnir við að horfa.
* Konur hlusta e.t.v. lítið á hana. Þær eru of busy við að horfa og bera saman við eigin boddí.
* Einkalíf hennar hefur verið skrautlegt og framganga hennar ekki alltaf sæmandi.
* Enginn tekur hana alvarlega nema hún fari í niðþröngan latex-galla, eða í bíkíni.
+ ég fæ ekki séð, að hún hafi neitt sérstakt fram að færa, sem t.d. konan í næsta húsi geti ekki gert jafn vel, eða betur.
![]() |
Angelinu Jolie þykir hún ekki tekin alvarlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Skemmtilegt Íslandsmót
Það er ákveðin pína að tefla í Landsliðsflokki á Skákþingi Íslands, framar öðrum mótum. Það helgast fyrst og fremst af því, að maður er að tefla við vini og kunningja í hverri umferð.
Það hefur dálítið loðað við þetta mót, að mörg stutt jafntefli eigi sér stað (vinajafntefli), en ekki núna. Að vísu hef ég gert jafntefli í báðum skákum mínum í um 20 leikjum, en í bæði skiptin bauð staðan ekki upp á neitt annað, þegar upp hefur komið lokuð staða þar sem hvorugir komast neitt áfram, og í bæði skiptin var það ég sem þáði. Og þessar tvær skákir hafa verið tvær stystu skákir mótsins. Það hefur jafnan verið hart barist.
Menn hafa teflt misvel í mótinu. Hinn ungi og efnilegi Hjörvar Steinn Grétarsson hefur teflt mjög vel, en verið klaufi, þegar kemur að því að hala inn, en hann hefur haft unnið, eða gjörunnið, í báðum skákum sínum, en aðeins uppskorið hálfan vinning. Ég tefli við hann í dag og er það sérstök pína, því ég var þjálfari hans hluta af sumri og þekki því hvaða byrjanir hann teflir. Það er erfið og mjög sérstök staða.
Í dag verður hart barist á öllum vígstöðvum. Áhorfendur eru velkomnir í Faxafen 12, að horfa á skákirnir, eða geta líka fylgst með, en 8 skákir eru sýndar beint á netinu, eða Eyjólfi (a.k.a. Glámi) fjalla um skákirnar á Skákhorninu.
![]() |
Bragi Þorfinnsson efstur á Íslandsmótinu í skák |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)