Guðjón rekinn

Jæja, kemur ekki á óvart. Ég hef verið að "spá" þessu, hér, hér og hér, ásamt nokkrum eldri færslum. Það var þó ekki af spámannlegum vexti einum og sér, heldur hafði ég semsagt heimildamenn í innsta hring Skagaliðsins. Ég hafði þannig frétt, í júní ef ég man rétt, að bræðurnir yrðu væntanlegir arftakar ef Guðjón færi. Það hafði ég líka úr "innsta hring" (nenni ekki að leita að linknum).


En þetta á svosem ekki að koma á óvart. En Guðjón var cocky í grein sem birtist í Mbl. í morgun. Hann er varla mjög cocky núna, heldur situr vísast heima við eldhúsborðið á nærunum og spilar Football Manager á lappanum.


mbl.is Guðjón hættur með ÍA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björk og Sigurrós halda tónleika á Hyde Park

til stuðnings Bubba, til að bæta honum upp verðbréfatapið!

Tónleikarnir verða í boði eftirtalinna fyrirtækja:

-- Shine - skallabóns
-- Cosa Nostra - sólgleraugnafyrirtækisins
-- Gillette - skallarakblaða

 

Annars var þetta ágætt hjá Bubba. Margt alvarlegra að í samfélaginu en álverin.

 


mbl.is Bubbi liggur undir ámælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minningargrein

Æ, nú er Háaleitisútibúið farið.

Þar opnaði ég fyrsta bankareikninginn, fékk ávísanahefti og kort. Þá hét bankinn Samvinnubankinn, en rann saman við gamla bankann á sínum tíma.

Bankinn var þá starfræktur í litlum hluta fyrrverandi útibús, en tók síðan yfir húsnæði garnverslunarinnar og braut niður millivegginn. Það var stór dagur í bankasögu Smáíbúðahverfisfólks.

En mér finnst miður að sjá á eftir Háaleitisútibúi Landsbankans. Hvernig á fólk í Smáíbúðahverfi að nenna að fara til Hamraborgar ef það á erindi í "bankann sinn"? Það er kannski gott að búa í Kópavogi (lesist með bassaröddu), en til hvers eiga Reykvíkingar að sækja þangað bankaviðskipti?

Ég yrði ekki hissa þó Kringluútibú Kaupþings muni njóta góðs af þessu eða Glitnir í Miðbæ.


mbl.is Landsbankinn sameinar útibú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Old news

Ég bloggaði um þetta fyrir mörgum vikum, þ.e. að þetta stæði til. Enda þekki ég mann, sem þekkir mann, sem þekkir mann sem er innanlæra í innsta hring Skagamanna.

En síðast bjargaði Skaginn sér, enda fékk liðið þá að spila sóknarbolta undir stjórn tvibbanna, en ekki kýla fram, hlaupa og tækla eins og á tíð Ólafs Þórðar. Nú gæti það sama gerst, því með tilkomu þeirra gætu framherjar Skagans fengið að fara reglulega fram yfir miðju og miðjumenn fengju heimild til að spila boltanum á milli sín og varnarmennirnir fengju að gefa boltann á miðjumennina í stað þess að kýla fram og hrópa: "Hlaupa strákar".


mbl.is Taka Arnar og Bjarki við þjálfun Skagamanna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræsnin

Ég var ánægður með ummæli Hippó læknis í þessu máli. Hann segir nákvæmlega það sem ég vildi hafa sagt. Mér finnst hatrið hér vera orðið yfirgengilegt, þar sem menn/þjóðir eru ekki settir/settar við sama borð.

Maður var ekki hissa á að sjá vel þekkta haturskóna ryðjast fram með offorsi við þessa frétt. Sömu menn steinþegja eða telja málið réttlátt þegar fórnarlömbin eru ísraelsk.

Annars er maður orðinn svo vanur svona viðhorfum að maður er hættur að nenna að láta þau bögga sig.


mbl.is Skutu palestínskan fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klinkið!

Þetta minnir á, þegar pizzasendillinn var sendur í sjoppu með ódýrustu pizzuna. Frí "heimsending" sko, en sjoppueigandinn borgaði með 5.000 kalli. Hann vantaði bara skiptimynt, en hafði engan áhuga á pizzunni, ekki beinlínis.

Þetta var tiltölulega snemma, svo sendillinn hafði ekki næga skiptimynt og varð að fara í bankann. En til að "hefna" sín á þessu sjoppumuppeti skipti hann 5.000 kallinum í klink og gaf það til baka. Sjoppukallinn fékk þá tíkalla í kassann!

Sjoppukallinn kvartaði við verslunarstjórann á pizzastaðnum og fékk pizzagæinn hressilega skömm í hattinn!

Svona gerast við kaupin hjá Gvendi á eyrinni.


mbl.is Borgaði rafmagnsreikninginn með einseyringum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Goodbye Guðjón

Mér sýnist allt stefna í að Skaginn falli og að þjálfarinn falli áður. En ég fatta þetta ekki. Skaginn er með góðan mannskap og þjálfara sem á amk að vera góður og væri góður ef hann myndi leyfa leikmönnunum að fara framyfir miðju.

Ég spái því að Inga Jóna Þórðardóttir taki við Skaganum og haldi liðinu uppi!

Æjá, eða Óli Þórðar og að 5 mótherjar slasist alvarlega  í leikjum gegn Skaganum fram til hausts.


mbl.is Blikar kafsigldu Skagamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grimmileg aftaka

Æ, ef Íranir vilja taka fólk þetta af lífi af hverju geta þeir ekki skotið það bara eða sprautað. Hér er verið að viðhalda 8. aldar systemi, eins og í svo mörgu öðru.

Jörðin snýst...heimurinn þróast...víðast hvar.


mbl.is Níu manns bíða þess að vera grýtt til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðjón rekinn frá ÍA?

Ja, skv. mínum heimildum verður Guðjón Þórðarson rekinn ef Skagaliðið tapar í kvöld, a.m.k. að öllu óbreyttu.

Og ekki aukast líkurnar hjá Skaganum, ef 17 ára óreyndur strákur spilar í markinu gegn frískum Blikum með Rajkomar, Marel og Jóhann Berg (eða hvað hann heitir aftur) í fremstu víglínu.+

En samt veit maður aldrei...Guðjón á vini víða og eflaust hefur Skaginn varla efni á því að reka Guðjón, ef hann fær virkilega milljón á mánuði!!

En  Skaginn hefur heldur ekki efni á að hafann áfram.

En allt gengur á afturfótunum hjá Guðjóni. Mágur hans Geir Hilmar Haarde hefur nú ákveðið að hætta að fylgja ráðleggingum Guðjóns í efnahagsmálum, en þær fólust í; liggja aftur og verjast, hefja síðan gagnsókn ef mótherjinn gefur færi á sér.


mbl.is Madsen fingurbrotinn og leikur ekki með ÍA næstu vikurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt ísbjarnadellumálið

Þetta er orðið þreytt.is. Nú þarf bara að setja ísbjarnaeftirlitsmenn eftir norðurströndinni, fullvopnaða með byssum og frystum selshræjum.

Og láta þyrluna í friði. Það má vísast nota hana í eitthvað betra.


mbl.is Ísbirnir á Hornströndum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband