Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Verið að meikaða í Tékkó!
Ég ræddi aðeins í gær, bæði hér og á aðeins heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur, að hinn ungi og efnilegur Dagur Arngrímsson væri vel á veg með að tryggja sér sinn þriðja og síðasta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli, en áfanga nr. 2 kláraði hann á móti sem lauk fyrir nokkrum dögum.
Annar vinur minn, Róbert Harðarson Lagerman, er kominn á svipaðar slóðir. Hann situr nú að tafli í Tékkó, nánar tiltekið á skákhátíðinni í Pardubice, en hún er hluti af tékknesku mótaröðinni. Við Róbert tókum einmitt þátt í Prague open í janúar sl., sem einnig er hluti af þessari mótaröð.
Robbi er til vinstri hér á myndinni, með Hjörvari Steini, hinum unga og efnilega skákmanni.
Róbert hefur þegar náð tveimur áföngum til alþjóðlegs meistara og vantar því bara einn, ásamt því að hækka sig á stigum upp í 2400 til að verða útnefndur alþjóðlegur meistari.
Þetta er svoldið skrítið, að fylgjast með Robba tefla á móti úti héðan frá Íslandi, enda verið meðferðis í síðustu fjórum mótum, sem kappinn hefur tekið þátt í á erlendri grundu og líka verið með í sömu mótum innanlands t.d. Kaupþingsmótinu og Rvk Intl í apríl.
En nú er Robbi staddur í hitabylgju í Tékkó, þar sem yfir 40 stiga hiti er normið. Við vorum um daginn í 35 stiga hita í Mið Evrópu og þótti nóg um. En þetta er verra, ekki síst þar sem þetta stendur yfir dag eftir dag, og erfitt að tefla við svona aðstæður. (Til vinstri er mynd af Robba með goðsögninni Svetozar Gligoric)
En Róbert hefur staðið sig afskaplega vel og hefur teflt á "normi", þ.e. hann hefur frammistöðu upp á 2451 eló stig, en frammistaða upp á 2450 dugar til að ná alþjóðlegum áfanga, séu ákveðin skilyrði uppfyllt, en þau hefur Róbert eiginlega þegar uppfyllt, að mér sýnist.
En frammistaða hans er eftirfarandi, tekur af chess-results.com:
FM LAGERMAN ROBERT 2315 ISL Rp:2451 Pts. 3,0 | |||||||||
1 | 419 | SERGIN MARK | 2070 | GER | 2,5 | w 1 | Turnaj A | ||
2 | 67 | IM | ADLA DIEGO | 2472 | ARG | 3,5 | w ½ | Turnaj A | |
3 | 79 | FM | MARKGRAF ALEXANDER | 2452 | GER | 3,5 | s ½ | Turnaj A | |
4 | 75 | GM | MANIK MIKULAS | 2457 | SVK | 2,5 | s ½ | Turnaj A | |
5 | 86 | GM | KIM ALEXEY | 2445 | KOR | 3,0 | w ½ | Turnaj A | |
6 | 53 | GM | VASJUKOV EVGENI | 2486 | RUS | 3,0 | s | Turnaj A |
Þetta er góður árangur og framundan er skák gegn gamla manninum Vasjúkov, sem var upp á sitt besta um það bil sem ég fæddist, eða um 1970.
Vonandi heldur Robbi bara áfram að tefla svona vel og hala inn punkta gegn sér stigahærri leikmönnum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Rusl og ruslahaugar
Þetta er auðvitað ömurlegt. Og staðsetningin fáránleg. Hvað er fólk að hugsa, að dumpa rusli á víðavangi, sér í lagi á fögrum stöðum.
Vatnsendahæð er fallegur staður og það er auðvitað tóm steypa að skíta hann svona út.
En ég veit hins vegar um góðan stað fyrir svona rusl, en það er grænt svæði, sem er flestum til ama og til lítils gagns, jafnvel þeim sem þann stað elska.
Og hann stendur ekkert svo voða langt frá Sorpu úti á Granda.
Já, ég er auðvitað að tala um grasbalann í Frostaskjólinu.
![]() |
Nota Vatnsendahæð sem öskuhaug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25. júlí 2007
Til stuðnings Saving Iceland samtökunum
Hvaða læti eru þetta í fólki eiginlega? Ég er bara mjög "sáttur" við aðgerðir Saving Iceland, eða öllu heldur sáttur við þær afleiðingar, sem þær hafa haft í för með sér.
Það þýðir ekki, að ég sé stuðningsmaður þeirra. Nei, ég er "sáttur" við þetta vegna þess, að í ljós hefur komið, að aðgerðir þeirra hafa nær eingöngu notið stuðnings eða skilnings VG-liða. Og í kjölfarið hefur maður heyrt útundan sér, að ýmsir, sem kusu VG síðast vegna umhverfisatriðanna, munu ekki ætla að gera það aftur, því svona lögleysu og skrípaleik sé ekki hægt að samþykkja. Aðgerðir, sem stuðla að fylgistapi VG, hljóta því að eiga rétt á sér , þó ég hafi ímugust á þessum skrípaleik, sem þessi samtök hafa haft í frammi.
Og síðan kemur snilldin hjá Ögmundi Jónassyni, að vilja enn beintengja Ísland við hryðjuverkastjórnina í Hamas-istan, því þetta væru jú löglega kosin yfirvöld. En Hitler var líka löglega kjörinn til valda svo og margir af verstu einræðisherrum og glæpastjórnvöldum síðustu aldar. Til að mynda minnir mig að Mugabe hafi verið löglega kosinn um 1980, þegar Smith stjórn hvítra hrökklaðist frá, en síðan hefur hann ekki verið vandur að meðulunum og stundum beitt þegna sína ofríki til að tryggja völdin (og mætti gjarnan taka sterkara til orða!)
Með þetta í huga þykir mér líklegt, að Vinstri grænar séu á niðurleið og væri athyglivert að sjá Capacent - Samfó gera skoðanakönnun núna.
![]() |
Áskorun til Saving Iceland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Sykraðir eða sykurlausir gosdrykkir jafnslæmir?
Jújú, það vita flestir að diet drykkur eru í heildina ekki síður hættulegir en sykraðir, að öllu jöfnu.
En hvað ætli gerist hjá t.d. sykursjúku fólki sem drekkur 1 lítra af þessari sykurleðju, sem kallast COKE?
Þetta eru því alhæfingar um ákveðna þætti, eða heilt yfir litið að jafnaði, eða eitthvað. En fyrir sykursjúka er þetta tvennt ólíkt.
En auðvitað er hvorttveggja óhollt...bara mismikið fyrir ákveðna hópa.
![]() |
Sykurlausir gosdrykkir hafa sömu áhrif á heilsu fólks og sykraðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Þreytt.is
En samt, ég gæti ímyndað mér, að VG tapi nú einhverju fylgi á þessu, enda hópur þessi einna helst bendlaður við þann flokk og eiga einna mestan stuðning þar innanhúss.
Kannski eru þessi mótmæli ekki svo slæm!??
![]() |
Átta handteknir í Straumsvík og hlið opnuð á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Nýr alþjóðlegur meistari á leiðinni
Jæja, nú stefnir í, að við Íslendingar séum að fá nýjan alþjóðlegan meistara í skák. Þetta er allt að koma, en nú vantar bara herslumuninn að klára dæmið.
Sjá frétt á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Merkileg grein í Washington Post
um íslam og hvort það þurfi nauðsynlega að vera bókstafstrúar eða oftúlkandi íslamskra kennisetninga.
http://www.washingtonpost.com/wp-dyn/content/article/2007/07/20/AR2007072001808_pf.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Mugabe - frábær síða
Ok, nú hefur Mugabe tekist að rústa einu gjöfulasta ríki Afríku og það aðeins á nokkrum árum. En nóg um það.
Ég vil benda fólki á að kíkja á Mugabe-síðuna svokölluðu! Hún kemur á óvart. Þetta er algjör snilld.
Mæli sérstaklega með að kjósa um Mugabe og kjósa þannig, að hann "suck bigtime". Þá koma upp með skemmtileg skilaboð!
![]() |
Stefnt að þjóðnýtingu í Simbabve |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. júlí 2007
Galdrastrákurinn Potter
Ég fagna því hérmeð í dag, að hafa komist undan því að lesa einn einasta stafkrók í bókunum um Harry Potter. Jafnframt hef ég ekki séð einn einasta glugga úr myndunum um þennan strák.
Ég veit nú ekki hvort þetta sé nokkuð sérstakt afrek, en ég er samt stoltur að hafa komist hjá því að bendlast þessum heimi Mr. Potters.
Mikið er ég feginn að nú fer þessu að ljúka. Tískuæði koma og fara, og ég reyni eins og ég get að missa af þeim. Að þessu sinni tókst það og það all bærilega.
Ég hef jafnframt komist hjá því að kolefnisjafna, en reyni í staðinn að kolvetnisjafna. Ég átti heldur ekki fótanuddtæki.
Ég skal þó viðurkenna, að ég eignaðist Soda Stream sem unglingur!
![]() |
Potter selst á methraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 23. júlí 2007
Fokið í flest skjól
Jæja, þetta kemur svosem ekki á óvart. Margir Hamas menn, einkum á Vesturbakkanum, líta aðallega á félagslega hlið Hamas, þ.e. uppbyggingu trúarlífs og samhjálp, s.s. hvað snertir spítala og skóla.
En nú eru hinir sömu minntir á, að Hamas eru fyrst og fremst öfgafull og vopnuð hryðjuverkasamtök. Punktur.
![]() |
Liðsmaður Hamas gagnrýnir valdarán samtakanna á Gasa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)