Karrýárás á flugvélarfarþega

Indverskir hryðjuverkamenn á ferð. Ekki spurning!
mbl.is Efnaárás reyndist karrý
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Valur, sósíalisminn, mannréttindi o.fl.

Á bloggsíðu sinni greinir Jón Valur Jensson, í umræðu sinni um lífsverndarmál, frá athygliverðri grein í Þjóðviljanum gamla. Þar segir:

Trausti Ólafsson, gamall og gegn sósíalisti, skrifaði þannig í Þjóðviljann haustið 1974:

  • "Er ekki manneskjulegra að krefjast úrbóta þessu fólki til handa og það skilyrðislaust og án tafar, ráðast gegn vandanum sjálfum í stað þess að svíkja sjálfan sig og sósíalismann með vaðli um ímynduð mannréttindi?...

 

Nú þekki ég ekki umræddan Trausta Ólafsson og veit ekkert beinlínis um skoðanir hans annað en það sem Jón Valur segir hér. Jón Valur hefur vísast þekkt Trausta, sem vísast hefur verið félagi hans í Æskulýðsfylkingunni, félagasamtökum róttækra, ungra sósíalista.

En miðað við að sósíalistar nútímans eru gjarnir á að tala um mannréttindi í hinum ýmsu aðstæðum langar mig til að velta þeirri spurningu fram, hvers vegna sósíalistar vilja ræða þetta hugtak svona oft og iðulega nú til dags, miðað við hvernig skor sósíalískra ríkja hefur verið í mannréttindamálum.

Sjálfur tek ég voðalega lítið mark á umræðu sósíalista hér um mannréttindi og mannréttindabrot þetta og hitt, meðan þeir hafa enn ekki tekið beinagrindina úr skápnum og líkið úr lestinni. Þeir gagnrýna, og það með réttu, mannréttindabrot vondra einræðisherra, sem ekki eru sósíalistar, en gleyma yfirleitt að gera slíkt hið sama við sósíalíska einræðisherra og bandamenn þeirra. Þessi hræsni er mjög útbreidd...en af einhverjum ástæðum vilja sósíalistar ógjarnan ræða glæpi sósíalískra ríkja og vilja helst beina umræðunni að meintum eða raunverulegum glæpum einhverra annarra.

Hvenær kemur að því að íslenskir sósíalistar gangast við fortíðinni, þeirri að þeir voru handbendi grimmilegrar ógnarstjórnar í austri og sóttu á spena leppríkja Sovétríkjanna, þar sem mannréttindi voru brotin í stórum stíl og með yfirlögðu ráði? Þessi sæluríki íslenskra sósíalista voru lönd þar sem grundvallar mannréttindi fólks voru afar takmörkuð ef nokkur. En íslenskir sósíalistar setja slík mál bara undir teppið...en líkið í lestinni lyktar.

Er þessi skortur á viðurkenningu á mistökum og glæpum fortíðarinnar ekki "svik við sósíalismann", sem í framkvæmd a.m.k. gerir ekki ráð fyrir að mannréttindi fólks séu til staðar, heldur aðeins "ímynduð"? Hvar er þessi fræga "sjálfsgagnrýni" sem var a.m.k. á topp tíu í orðabók sósíalista?

En gott að Jón Valur skyldi nú hafa, að mér virðist af skrifum hans, hafa sagt skilið við þá hugmyndafræði, sem borin var áfram, í einni eða annarri mynd, af stærsta glæpafélögum sögunnar, kommúnistaflokkum Sovétríkjanna og Kína, og fylgjendum þeirra í öðrum löndum.


6 mánaða fangelsi, óskilorðsbundið

Lágmark. Svona brjálæðingar eiga ekki að ganga lausir.
mbl.is Ölvaður á 156 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ, gott

Ágætt að hvíla sig á blessaðri sólinni...
mbl.is Skýjað að mestu og væta á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ronaldo til KR?

Ja, datt svona í hug að Bjöggi gæti boðið honum samning. Gæti komist í leikæfingu með KR og síðan leikið með West Ham í framhaldinu?

Margt vitlausara? Wink


mbl.is Ronaldo samningslaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slítur Samfó stjórnarsamstarfinu?

"Segir Wade að nú sé ríkisstjórn Íslands í miklum vanda og orðrómur sé uppi um að Samfylkingin vilji ljúka stjórnarsamstarfinu og boða til nýrra kosninga. Skoðanakannanir bendi til þess að Sjálfstæðisflokkurinn muni gjalda afhroð ef kosið yrði nú og að Samfylkingin gæti náð nægu fylgi til þess að mynda samstarfsstjórn með einhverjum minni flokkanna."

 

Kæmi ekki á óvart. Samfó hefur bara það markmið að stjórna. Vantar stefnu og hugsjónir, málefni og hreinlega ábyrgðartilfinningu. Samfó hefur verið að leika stjórnarandstöðu í stjórninni og látið allt snúast um að auglýsa upp flokkinn og ráðherranna; svo mikið, að þeir hafa lítinn tíma haft til að stjórna fyrir PR-múfum.

En stjórnarslit myndu vísast gleðja Capecent og Félagsvísindadeild HÍ. Þá myndi verða hægt að gera margar, margar skoðanakannanir!

EN ef samfylking Kvennalistakellinga og gamallra komma (manna eins og Kallavallamatt byltingarmanns og tukthúslims, svo ekki sé talað um þá þekktu) slítur stjórninni og vill boða til kosninga til að fara í stjórn með umhverfiskommunum, gæti Geir Haarde hlegið að þeim með þriggja flokka stjórn með Framsókn og Frjálslyndum :) Það yrði ábyggilega skárra en þessi hörmung.

 


mbl.is Rót vandans einkavæðing íslensku bankanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30. jan. 1933

Það hefur lærst af reynslunni, að það er ekki hægt að fara í samsteypustjórnir með valdagráðugum, spilltum, hatursfullum, ofbeldishneigðum og veruleikafirrtum brjálæðingum.

 Til hvers ætti stjórnarandstaðan að hafa áhuga á að taka þátt í svoleiðis rugli með Mugatler?


mbl.is Hvetja til viðræðna í Simbabve
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„1,2 og Reykjavík farðu í rassgat"

Er sumt fólk gengið af göflunum?


mbl.is Málningu kastað á heimili byggingarfulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættan kemur að utan

Já, kemur ekki á óvart. Erlendir glæpa- og þjófahópar vaða hér uppi og löggan á í erfiðleikum með að stöðva þá.

Spurning að fara að grípa til harðari aðgerða, strákar?


mbl.is Aukin umsvif glæpahópa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskupinn

Amraury Bischoff er genginn til liðs við Arsenal. Merkilegt. Óþekktur leikmaður. Ég las um hann á Arsenal síðu nýlega. Þar var hlegið að þessu, enda hefði þessi leikmaður verið meira eða minna meiddur á síðustu árum.

En kannski er Wenger að kaupa þarna solid backup mann. Hver veit. Kallinn veit sínu viti.


mbl.is Arsenal fær miðjumann frá Bremen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband