Til hamingju Sigurbjörn

Með nýju frændsystkinin. Og jafnvel til hamingju með frænda, sem er nú að slá í gegn í USA; ein helsta kvikmyndastjarna ársins.

Gaman að vera Panda þessa dagana Wink


mbl.is Fyrstu pandahúnar ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tafir við göngin í kvöld

Frá kl. 22 til fjögur eða fimm í nótt.

Þetta segja þær nú alltaf stelpurnar, eða...?


mbl.is Tafir við Oddsskarðsgöng í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig fyrstu "kynni" geta verið misvísandi

sigurjon_althingi_471152Það var hér fyrir nokkrum árum að ég var sannfærður um, að Sigurjón Þórðarson væri lélegasti þingmaðurinn, sem hefði stigið í pontu Alþingis í fjölda ára. Jafnvel þegar sumir þingmenn Samfó væru teknir með.

Maður fékk hálfgert menningarsjokk þegar Sigurjón steig í pontu og man ég ekki betur en að JC eða eitthvað slíkt félag hafi kosið hann lélegasta ræðumanninn á Alþingi.

En Sigurjón tók sig á. Hann tók miklum framförum í ræðumennsku og málflutningur hans varð smám saman traustari. Ég kýs ekki frjálslynda en í síðustu kosningum þótti mér leitt að Sigurjón skyldi detta út. Síðan tók við þrautaganga hjá kappanum, vesen með loforð og svikin loforð, en hann stóð sig vel í þessari orrahríð. Maður varð að viðurkenna að fyrstu "kynni" voru misvísandi. Ég skal játa, að mér skjátlaðist um Sigurjón.

Ég les blogg Sigurjóns að jafnaði , nema þegar hann skrifar um sjávarútvegsmál. Ég hef hvorki vit né áhuga á því máli. Og ég tel sanngjarnt að ég viðurkenni það, að hann heldur áfram að vaxa í áliti og hefur áunnið sér virðingu mína.

Ætli ginsengið frá Sigga bróður hafi kannski gert honum svona gott...?

-----

bjoggiEn á hinn bóginn hefur Björgvin Guðni Sigurðsson viðskiptaráðherra valdið mér miklum vonbrigðum. Ég taldi að hann væri einn sá skásti í þessum ruglingslega pakka Samfylkingarinnar -- hann er jú sagnfræðimenntaður að ég held amk.

En nú kemur hann mér fyrir sjónir sem tækifærissinnaður götustrákur sem hefur fengið að leika sér með fræga fólkinu. Ég meina, í samanburði við Björgvin Guðna kemur jafnvel Ágúst rektorssonur ágætlega út. Og þá er mikið sagt.

En merkilegt að Samfó skuli hafa svona mikið fylgi þrátt fyrir óframbærilega frambjóðendur og foringja, og tækifærissinnaða stefnu sem tekur mið af vinsældum mála en ekki hugsjónum.


Atvinnuleysi framundan?

En nú verður spurningin, verða Íslendingar tilbúnir til að vinna skítverkin frekar en ekki neitt? Eða munu landar vorir frekar sitja á bótum en að vinna á lágmarkslaunum?

En síðan kemur spurningin um þessar þúsundir útlendinga sem vinna hér. Þeir vilja vísast frekar vera hér atvinnulausir en á heimaslóðum, eða það býst ég við.

Síðan er þriðja hjólið. Mig grunar að atvinnurekendur, sumir a.m.k., vilji frekar hafa útlendinga í vinnu en Íslendinga. Þeir eru e.t.v. ódýrari og gera minni kröfur, t.d. um atbúnað.

En a.m.k. er atvinnuleysi framundan. Ég er eiginleg hissa á að því hversu atvinnan hefur haldist miðað við ástandið.


mbl.is Þúsundir án atvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki verið lægri í mörg ár

Já, við fermingu var ég 1,78 og hálfur metri að hæð. Nú er ég bara 177,5.

Ég hef ekki verið lægri frá því um 1980.

Sá sem stal af mér þessum sentímetra er vinsamlegast beðinn að skila honum aftur.


mbl.is Dow Jones ekki lægri í tæp 2 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Lecter rekinn?

Merkilegt. Og hvar eru Guðjónsfeðgar. Enginn með; meiðsli eða bönn?

En Skaginn er hruninn. Spurning hvort Lecter verði ekki rekinn með det samme. En á hinn bóginn nýtur hann eflaust áfram trausts vina sinna þarna í stjórn ÍA; sömu vina og ku borga honum milljón á mánuði.

Hvert stig í deildinni hefur þá kostað milljón, bara til þjálfarans, síðan tímabilið byrjaði.

Einar Einarsson og Einar K. Einarsson og aðrir Skagamenn. Á að reka Lecter?


mbl.is ÍA - Grindavík, 1:2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í djeilið með svona lið, takk fyrir!

Svona vitleysinga á bara að loka inni á Hrauninu. Málið dautt. Ekki nóg með að þeir hafi reynt að fremja sjálfsmorðsárásir á saklausa vegfarendur, heldur óhlýðnuðust þeir lögreglu á versta hátt.

 

Félagi mannsins, sem einnig ók á ofsahraða, var ekki gerð sérstök refsing í málinu en hann lamaður frá hálsi eftir slyss sem varð vegna ofsaakstur þeirra tvímenninga. Hann var sviptur ökurétti í sex mánuði og gert að greiða sakarkostnað 595.434 krónur.

 

Sko, ef við gleymum stafsetningunni, mætti segja með vissu, að sex mánaða ökuleyfissvipting fyrir mann sem er lamaður neðan við háls breytir voðalega litlu til eða frá.


mbl.is Skilorðsbundinn dómur fyrir ofsaakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Crouch færist nær Portsmouth

Ja, hann þarf nú varla að færa sig mikið. Getur vísast teygt sig í suðurátt frá Liverpool og komist í kallfæri við Redknapp.

En spilaði ekki Crouch um stundarsakir með Pompey í gamla daga og skoraði slatta? Eða er ég að rugla eins og svo oft áður? Wink


mbl.is Crouch færist nær Portsmouth
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreytandi framhaldssögur

Þetta er eins og með Baugsmálið. Allt fram streymir endalaust...en litið gerist og útkoman samasem engin.

Auðvitað hefur maður samúð með foreldrunum, en hvaða erindi eiga þessar fréttir við okkur Íslendinga?

Hið sama mætti segja um Paris Hilton, Britney og endalaust slúður um fræga fólkið, jafnvel þegar það er ekki að gera neitt svosem, heldur bara vera til.

Æ, ég veit ekki. Þetta er orðið verulega morkið.


mbl.is Breskur dómari fjallar um mál Madeleine í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fatta þetta fyrr strákar!

Ég er semsagt kominn úr ábyrgð. Jahérna, nú fer hver að verða síðastur! :)
mbl.is Klukka karla tifar einnig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband