Áfangasigur

Jæja, þá er níðmeistari Íslands kominn langt ef ekki varanlegt í bann frá Skákhorninu, en hann er í banni á fjölmörgum umræðuvettvöngum hér innanlands, og með honum fóru nöldurmeistari Íslands og undirritaður, bullmeistari Íslands.

Þessi fórnarkostnaður, 60 daga bann, var vel þess virði. Nokkrar solid níðvísur til andsvars dónaskap þeirra félaga var vísast eitt af því sem kostaði rauða spjaldið, en ég er mjög sáttur. Umræðuhorni skákmanna er því bjargað, amk í bili.

Lauma með einu "leikbroti", rétt til að forða því að þetta týnist!

Hér er allt á tundri og tjá
tæpast við að horfa.
Því fátt er forljótara að sjá
en fésið á'onum Torfa.

En vér erum sáttir...þessir rugludallar og meistarar í dónaskap og leiðindum eru komnir á braut...fórnarkostnaðurinn ásættanlegur.


Heilabilaður og veruleikafirrtur forseti

Ok, maðurinn er ekki með öllum mjalla. Það besta sem hann gæti gert fyrir heiminn og þjóð sína væri að loka sig inni einhvers staðar, í fangelsi eða geðveikrahæli, kemur á sama stað niður, nánast.
mbl.is Mugabe fordæmir lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næmni fyrir smáatriðum

Ég var að lesa gömul blöð  á Þjóðarbókhlöðu fyrir nokkrum árum síðan, eins og svo oft áður og síðar, en í filmuherberginu var þá jafnan sami maðurinn og urðum við kunningjar af þessum löngu samvistum við blaðalesturinn.

Nú var svo að við fórum samtímis út einn daginn, en þá beið vinur þessa manns eftir honum á bíl og saman ætluðu þeir að bralla eitthvað. Sá maður var Arnaldur Indriðason. Ég kvaddi og þeir fóru.

Daginn eftir spurði þessi maður mig, hvernig þekkir þú Arnald Indriðason?

Ég sagðist ekki þekkja Arnald Indriðason neitt.

Þá kom úr dúrnum að Arnaldur hafði spurt mann þennan: "Er þetta ekki Snorri Bergs"?

Þá mundi hann eftir mér frá því um 1980 þegar ég var stundum "í Heiðargerðinu", heimili Indriða og fjölskyldu, eitthvað að bralla með "Púmma", litla bróður Arnaldar. Ótrúlegt að hann skyldi muna þetta, því var ekki eins og ég væri þarna daglegur gestur.

Uppfrá þessu hef ég borið extra-mikla virðingu fyrir Arnaldi. Menn sem hafa svona minni og skarpskyggni hljóta jafnframt að vera næmir fyrir smáatriðum þeim, sem gera spennubækur góðar, betri, bestar.

Skrifin eru í blóðinu. Það er alveg á hreinu.

Óska ég Arnaldi til hamingju með enn eina rósina í hnappagatið.

 


mbl.is Arnaldur hlaut Blóðdropann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hneykslunarkórinn byrjar

að blogga, og það réttilega að nokkru leyti. En

a) ok, we get it, fólk er hneykslað...enn ein hneykslunarröddin sem segir það sama og allar á undan bætir engu við og hjálpar stráknum akkúrat ekki neitt.

b) fjöldi hneykslara jókst gríðarlega þegar þessi frétt komst á "mest lesið". Fréttin hafði staðið hér lengi með aðeins örfáum "hneykslurum". Hvers vegna verða menn skyndilega hneykslaðir þegar frétt verður vinsæl?

c) Face it! Svona er lífið. Sumt fólk er andstyggilegt.

d) Hvað segir fólkið? Auga fyrir auga, lófi á eldavél fyrir lófa á eldavél?


mbl.is Móðir misþyrmdi fimm ára syni sínum skelfilega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara eitt hægt að segja um þessa útsendingu:

Willum er á pillum, vísast róandi. Það var amk hægt að glotta að 5-aura bröndurunum hans Loga, en WÞÞ er eins og opinn ísskápur í þessari lýsingu. En eins gott að Valtýr sé svoldið hyper...annars myndi hálf þjóðin sofna með det samme.
mbl.is Tyrkir unnu í dramatískum leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velta á blaðamönnum?

velta"Þrjátíu og þremur kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 13. júní til og með 19. júní 2008 var 33."

Maður hlýtur að spyrja sig hvort ekki sé þó nokkur velta á blm á mbl.is? LoL


mbl.is Einungis 33 kaupsamningum þinglýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegt við höfnina í sumar

Hvaða gervi ætli Pálmi fari nú í þarna við höfnina í Boló? Kannski hann prófi þetta nýja gervi, "hafnarvörður" og mæti þannig galvaskur til leiks í Spaugstofunni í haust?
mbl.is Pálmi Gestsson hafnarvörður í Bolungarvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var þetta ekki bara

Björn Bjarnason í hálendisferð? Wink
mbl.is Leit að hálendisbirni heldur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grái fiðringurinn

Jahérnahér. Nú er það orðið nýjasta tíska hjá fólki með gráa fiðringinn að fá útrás með því að smygla dópi.

Ætli næstu rassíur Fíknó verði ekki bara á Hrafnistu eða hjá Félagi miðaldra borgara.


mbl.is Miðaldra par með kókaín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins, loksins

Jæja, Wengerinn byrjaður að versla. Keypti Nasri um daginn og er nú orðaður við hina og þessa. Gott. Óþolandi að missa af dollunni, sem á heima á Emirates, til óheflaðra sveitalubba í norðri :)

Gott mál...Wenger að vakna, kominn tími til.


mbl.is Arsenal á eftir Arshavin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband