Gúrkutíð blaðamanna?

Greinilega lítið að gerast úr því þessi "frétt" er svona ofarlega á fréttalista mbl.is

En ef þetta er svona mikil frétt, af hverju er þá ekki frekar greint frá frammistöðu Íslendinga á Kaupþing open skákmótinu í Lúxemborg, þar sem nokkrir Íslendingar eru í toppbaráttu, og í dag tefla saman Björn forseti og Hannes Hlífar í beinni útsendingu.

Eru Moggamenn sofandi á verðinum eða mismuna þeir íþróttum eftir því hvað þeim finnst sjálfum gaman að leika sér að.

Hafa ber í huga að www.skak.is er hýst á Moggablogginu svo heimatökin ættu að vera með hægara móti.


mbl.is Skrautlegt skorkort hjá Heiðari í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pósthússtræti opið í dag

Stórfrétt auðvitað, en svona er Ísland í dag hjá sjálfstæðu fólki í kastljósinu.
mbl.is Frekar þungbúið veður í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Deginum bjargað

Æ, hve þetta var ljúft. Alltaf gaman þegar KR tapar. Smile
mbl.is Gunnar tryggði Fjölni sigur gegn KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRAM-arar á sigurbraut

2-0 og leikurinn að klárast. Eftir 2. umferðir eru Framarar með fullt hús og vísast með markatöluna 5-0.

Öðruvísi mér áður brá, þegar mínir menn sátu á botninum, eggjaðir upp fyrir haus.

En auðvitað er sumarið að byrja og margir leikir eftir. Fram á auðvitað eftir stórveldin Val, FH og ÍA; hin stórskemmtilegu lið Fjölnis og Keflavíkur, en líka nokkra minni spámenn eins og Þrótt, Grindavík og KR.

En í öllu falli gæti þetta orðið skemmtilegt sumar í Safamýrinni og vonandi helst falldraugurinn fjarri.

Markmið sumarins: Að vera fyrir ofan KR.

Viðbót: sé að Fjölnir hefur komist yfir 2-1 gegn KR. Glæsilegt.


mbl.is Framarar sigruðu HK 2:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

McCain

Æ, mér líst bara vel á kallinn. Held að hann muni verða góður forseti Bandaríkja Norður-Ameríku næstu árin.

Ég tók próf fyrir nokkrum mánuðum þar sem maður átti að tjá skoðanir sínar á ákv. málum og síðan var metið hvaða frambjóðanda maður ætti mest sameiginlegt með. Það kom mér ekkert mjög á óvart McCain þótti standa næst mínun skoðunum (bæði meðal reppa og dema).

Maður deilir ekki við dómarann. Áfram McCain.


mbl.is McCain kynnir markmið sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blíða

Ja, á veðursíðu mbl.is stendur að 10 stiga hiti sé í Reykjavík. Ég er reyndar ekki að kvarta, en hvar átti þessi 17 stiga hiti að vera? Varla í Reykjavík?

En gleðilegt sumar folks.


mbl.is Allt að 17 stiga hiti í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugsmálið enn á ný

Meiri langavitleysan. Ég er orðinn verulega þreyttur á þessu máli og vona að því ljúki sem fyrst.
mbl.is Síðari dagur málflutnings í Baugsmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullorðnir, Akureyrarleið og Írskir dagar

En hver á að passa upp á ölvaða úr hópi "fullorðinna", þ.e. eldri en 23. Spurning að taka frekar upp Galtalækjarmódelið en Akureyrarmódelið, úr því menn vilja takmarka drykkjuna.

En þá efast ég um að margir myndu koma á Írska daga á Skaganum.


mbl.is Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1 kíló farið í dag

Ég snyrti nefnilega bringuhárin í morgun. Wink
mbl.is Stefnir á nýtt met í þyngdarmissi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Standpína enn og aftur

Hvað gerist þegar standpínu Upptyppinga lýkur og gos hefst? Smile
mbl.is Jarðskjálftahrina við Upptyppinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband