Bætt þjónusta hjá Iceland Express

Hér eftir verður hætt að rukka fyrir salernisferðir. LoL
mbl.is Aukin þjónusta um borð í vélum Iceland Express
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver ætli skipti á henni?

Von að maður spyrji?
mbl.is Winehouse notar bleyjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttamannabúðir

Mikil vonbrigði. Ég hélt að þetta væri frétt af Skaganum :)
mbl.is Flóttamannabúðum komið upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvatningarverðlaun fyrir þróun gervigreindar

Jújú, allt í lagi að láta þennan mann fá þessi verðlaun, en sumir stjórnmálamenn eru nú mun færari í þróun og notkun "gervigreindar".
mbl.is Fær hvatningarverðlaunin fyrir þróun gervigreindar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju tekur Lindsay Lohan upp á næst?

Skammt stórra högga á milli í lífi Lindsay Lohans. Hvað ætli hún geri næst? Tilkynni um inngöngu í nunnuklaustur eða upptöku íslamstrúar og flutning til Saudi-Arabíu?

Hvað veit maður?


mbl.is Lohan vill kvænast Samönthu Ronson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar orðnir Sturl-aðir

En málið er, að það þarf frekar að fara all-in á Sauda og aðra olíuframleiðendur sem halda verðinu háu, vísast af ásettu ráði.

Hitt eru bara aukaverkanir.


mbl.is Atvinnubílstjórar mótmæla í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarfréttir

framsoknarfrettirJæja, nú fer Fréttastofa Framsóknarflokksins stórum. Skotmark: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Og Geir kemur Ingibjörgu til varnar, en FF hafði verið að bögga hana með því, að rifja upp fyrri yfirlýsingar í ljósi samtímans.

Ég verð reyndar að viðurkenna að ég skil FF afskaplega vel. Samfó hefur ekki verið þekkt fyrir að halda fast við skoðanir og skipt þar reglulega um.

Þó auðvitað megi deila um hvort FF fari hér yfir strikið er hitt svo annað mál, að Ingibjörg á ekki að vera hafin yfir gagnrýni. Hún þarf að taka því að vera minnt á skoðanakannanastefnu Samfó og stefnuflökt. Annað væri "hneyksli".


Partí hjá Páli Óskari

IMG_2991Æ, ég fer aldrei á svona, en varð að koma að myndinni af litla snússa, Arnari Mána, með Páli Óskari. Arnar er, eins og allir sjá, sonur Munda bróður.

Ég er ekki viss um að hvaða tilefni þessi mynd var tekin, en sjá má á svipnum á Arnari litla að þarna var "svaka partí hjá Páli Óskari" á ferðinni.


mbl.is Partí hjá Páli Óskari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hlýnun ekki ógn á Íslandi"

Nei, auðvitað ekki. Flestir eru ánægðir með að fá smá hlýja strauma yfir landið LoL

Hitt er svo annað mál að loftslagsbreytingar hafa ekki síður áhrif á Ísland og önnur lönd, t.d. gæti ferli Golfstraumsins breyst og hvar stæðum við þá? Og ef Grænlandsís bráðnar hækkar vatnsborðið og Frostaskjólið færi kannski í kaf....

Bíddu við, já, nú fer ég að skilja af hverju Íslendingar eru svona jákvæðir í garð loftslagsbreytinga Errm


mbl.is Hlýnun ekki ógn á Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Lecter" í vandræðum

LecterJæja, Guðjón "Lecter" er kominn í vandræði. Nú fer hann vísast í bann og fær jafnvel sekt í ofanálag.

En mikil mildi að Einar Kárason var hvergi nærri í gær.


mbl.is Ummæli Guðjóns til umfjöllunar hjá aganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband