Allar Pöndurnar í skóginum...

...eiga að borða bambusinn saman og í friðsemd.

 


mbl.is Sögulegur fundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arineldar bannaðir á Íslandi?

Ja, það liggur beinast við.
mbl.is Notalegur arineldur: Á við óbeinar reykingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innbyrðis mótsögn?

Úff, annað hvort eru menn ungir eða framsóknarmenn. Merkilegt að hægt sé að tala um fleirtölu í þessu sambandi.

En kannski væri ég talinn "ungur" ef ég væri framsóknarmaður?


mbl.is Ungir framsóknarmenn kalla eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snorri slapp

Selurinn Snorri sást í Google Earth synda í áttina til Íslands og verður vísast kominn í Breiðafjörð í næstu eða þarnæstu viku.


Þar að segja ef Glúmur og Glefsir sitja ekki fyrir honum.


mbl.is Selveiðum að ljúka við Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skírlífisbelti?

Amm, svona gæti selst vel í Kringlunni.


mbl.is Lás á buxurnar til að draga úr vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilisstörfin létta geðið

Það útskýrir margt, til dæmis af hverju sumir sem eru giftir afbragðs húsmæðrum eru svona geðvondir...


mbl.is Heimilisstörfin bæta geðheilsuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kórakeppni Íslands og Færeyja

Jæja, þá er komið að kórakeppni Íslands og Færeyja. Hverjir ætli verði betri í Kórnum?
mbl.is Valur mætir færeysku meisturunum í Kórnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt

Maður hefur varla jafnað sig eftir fréttirnar frá umferðarslysunum síðustu daga þegar nýjar fréttir berast um hið sama.

Staðsetningin kemur manni svo sem lítið á óvart, enda er þessi kafli frá Hveragerði til Selfoss að mínum dómi ein stór slysagildra. Þarna fer mikil umferð á hverjum degi og vegurinn er alls ekki nógu góður til að bera hinn mikla fjölda bifreiða.


Þegar búið verður að redda Reykjanesbrautinni ætti að mínum dómi að klára leiðina að Selfossi, þ.e. ljúka spottanum frá Reykjavík til Hellisheiðar og taka Selfoss-Hveragerðis í leiðinni. Þetta er mun áríðandi verkefni en að bora göng á milli smáþorpa úti á landi, með fullri virðingu fyrir þeim og íbúum þeirra.

En ég spái því reyndar að miðpunktur vegaframkvæmda á næstu árum verið á norð-austurlandi, enda er hreppspólítíkusinn Kristján Möller samgönguráðherra. Úff...margt er á okkur Íslendinga lagt og Marshall-aðstoðin virðist ekki koma að neinu gagni.


mbl.is Suðurlandsvegur enn lokaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Baldvin halar inn atkvæði

Jæja, loksins erum við Íslendingar að fá eitthvað fyrir okkar snúð. Loksins er Eystrasaltsævintýri Jóns Baldvins að bera ávöxt.
mbl.is Eistar hjálpa til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko gamla manninn

Ég er nú ekkert sérlega hrifinn af Berlusconi og af ýmsum ástæðum, ma. þeirri sem hleypur um grasvelli í rauð-svartröndóttum búningi!


En allt er skárra en vinstra-ruglið, jafnvel Berlusconi. Hann er þó ekki alvitlaus, eins og sjá má á Vísi


Kannski eru hægri sinnaðar konur fallegri en vinstri sinnaðar?Wink


mbl.is Berlusconi með forskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband