Sprengingin mikla frá Kasmír

Ætli mér verði ekki stefnt fyrir þennan titil?
mbl.is Tugir særðust í sprengingu í Kasmír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldhúsverkin

!cid_069FB5A0-6A55-4722-9C6A-3B42CD593AF5Hvernig er best að losna við eldhúsverkin og þrifin og eldamennskuna?

Já, von að menn spyrji, en kona þessi fór í óskabrunninn....og

President McCain

Eru demókratar virkilega að klúðra þessu?

Jæja, kemur okkur svosem ekkert rosalega við.
mbl.is Forskot Obama að hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendiráðsstarfsmennirnir

voru kannski ekki klæddir og komnir á ról. Menn koma bara til dyranna eins og þeir eru klæddir.
mbl.is Sendiráðsstarfsmenn komu ekki til dyra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náttúrufræðileg spurning

Var að velta fyrir mér:

Hænur gagga
Endur ?
Gæsir ?
Naut hneggja
Kindur jarma

Gagga endur og gæsir, eða hvað kallast þau hljóð sem þau gefa frá sér?

Ef menn vita ekki svarið má sjá það hér.


"Rannsókn: Þeir vinsamlegu verða ofan á"

Nú þarf ég bara að finna vinsamlegri konu.
mbl.is Rannsókn: Þeir vinsamlegu verða ofan á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Essemessin

komu til baka. Og með þeim flæktust nokkur tonn af Emmess og Emmessess ísmolum. Emmess fór þegar að rannsaka essemmess og emmessess málin, en fengu bara emmess af þessu öllu saman.
mbl.is Essemmessin komu til baka og ollu bilun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindadómstóll Evrópu og Jónína Ben

Spurning hvort ekki mætti byrja á því að taka dómarana í detox og stólpípu. Ekki veitir af, grunar mig.


En nú spyr ég eins og asni: segjum svo að Jónína vinni málið þarna úti, hvaða áhrif hefur það á málið hér á landi. Hafa stjórnvöld eða dómstólar skyldum að gegna við "Mannó"? Þarf að fara eftir úrskurðum þessa erlenda dómstóls eða er hann bara til punts? 


mbl.is Sendu spurningalista til íslenska ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gef nú bara skít í þetta

1097_imageX1XÞetta er víst afstyrmið sem hefur verið að drita á afturrúðuna á bílnum mínum.

Ég lýsi hérmeð eftir þessum fugli og heiti verðlaunum ef skepan næst.


Stýrivextir og Ísland

"Hækkun á hlutabréfavísitölum vestanhafs hélt áfram í dag þrátt fyrir sveiflur, í kjölfar ákvörðunar bankastjórn Seðlabanka Bandaríkjanna um að lækka stýrivexti bankans um 0,75% í 2,25%. "

 

Jæja, hvað ætli stýrivextirnir séu á Íslandi? Hvað eru þeir í ESB?

Spurning hvort við ættum ekki alveg eins að ganga í USA eins og ESB, ef málið snýst bara um stýrivexti og vöruverð. Mér finnst nú 2,25% ágætis prósentutala í þessu sambandi.


mbl.is Hækkun í kjölfar lækkunar stýrivaxta í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband