Fimmtudagur, 27. mars 2008
Nonni og Manni
Já, þetta voru uppáhaldsþættir litlu systur á sínum tíma. Hún horfði á þá aftur og aftur, aftur og aftur.
Svosem gaman að þessu. VOndi kallinn lék svo í Lethal Weapon mynd í framhaldinu!
En hvernig var þetta aftur í jólalaginu um sveinana, sem komu til Manna...en ekki Nonna.
![]() |
Nonni, Manni og smaladrengur hittast á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Veggjakrotið
Þetta lið þarf að góma og stinga á Hraunið eftir að hafa borgað skaðabætur og þrifið upp eftir sig ósómann. Þá myndi það kannski sjá að sér.
![]() |
Máluðu yfir veggjakrot í miðborginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Óásættanlegur ágreiningur?
Já, hún hefur sennilega ekki fílað fimm-aura-húmorinn hans.
Sorglegt, því Robin Williams er varaformaður í Félagi fimmaurabrandarakalla --
![]() |
Robin Williams að skilja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Álitshnekkir Kínverja
Ég fíla bæði Kína og Kínverja. Þetta er jafnan ágætisfólk, sem á ótrúlega merkilega sögu að baki. En hin ný-kommúnísku stjórnvöld virðast ekki þola gagnrýni og andóf, eins og kommúnista er siður.
Framferði þeirra í Tíbet er mikill álitshnekkir og svartur blettur á stjórnvöld í Peking.
![]() |
Munkar trufla skoðunarferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 27. mars 2008
Celeb by association?
Fyrir hvað er þessi stelpa fræg? Jú, systir hennar var fræg fyrir söng, en er nú aðallega fræg fyrir geðveiki og fáránlega hegðun, en hefur ekkert "frægt" gert að viti í fleiri ára.
Ergo: Spears eldri er í dag fræg fyrir að vera fræg; og systirin er fræg fyrir að vera systir stelpu sem er fræg fyrir að vera fræg.
Meira ruglið.
![]() |
Spears ætlar að giftast barnsföðurnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 26. mars 2008
Agi gagnvart óeirðaseggjum
Já, einmitt, eins og á Torgi hins himneska ófriðar, en sá pakki var nú jafnvel skárri en þessi í Tíbet.
Hið mikla vinaland okkar, Kína, ætlar greinilega ekki að hverfa af braut kúgunarhugsjónar kommúnismans, þó hið rauða hagkerfi hafi í stórum dráttum verið afnumið.
En merkilegt að þetta ríki hafi verið að kaupa hlutabréf í Samfylkingunni.
![]() |
Skrílslæti, ekki mótmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 26. mars 2008
Slóvakar sigraðir
Glæsilegt strákar. Áfram Ísland.
Gaman að sjá, að "sigur" er aftur kominn í orðabók íslenska landsliðsins. En fyndið samt, að fyrsta markskot liðsins var á 55 mínútu þegar Emil Hafnfirðingur skaut af löngu færi úr aukaspyrnu.
Greinilegt að Ólafur landsliðsþjálfari hefur stúderað leikkerfi Rafa Benítez.
![]() |
Eiður og Gunnar tryggðu sigur gegn Slóvökum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 26. mars 2008
Var Dagur bé að plata?
![]() |
Geir segir Dag fara með rangt mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 26. mars 2008
Fjölgun í familíunni
Jæja, ég bíð rookie sérsveitarmenn velkomna í hópinn. Alltaf gaman að fá viðbót. Ég fór reyndar fram á það í haust, að fá 2 menn til viðbótar í skriðdrekasveitina. Við þurfum helst að vera 5, þannig að það séu 2 til vara, just in case, ef t.d. þyrfti að skakka leikinn á Torgi hins himneska Austurvallar.
En gallinn við þetta er auðvitað, að það þarf miklu fleiri og betri vopn. Ég meina, þegar maður sér bíómyndirnar sér maður að erlendar sérsveitir eru miklu betur útbúnar.
En ég tek þetta þá bara upp á næsta sveitarfundi...
Kv
Sneott Ox
Lean Mean, Fighting Machine
![]() |
Sérsveitarmönnum fjölgað um 6 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 26. mars 2008
BMW vinsælir
Amk vinsælli en BMV, þó alltaf sé gaman að sjá Íslendinga meika það í útlöndum.
![]() |
Nýtt lag BMV vinsælt í Kosovo, Litháen og Balí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |