Vel gert hjá Atla Frey og hinum strákunum

Atli hefur fengið þrjá leikmenn með um 2405, gert tvö jafntefli og unnið eina, þessa í dag. Góður árangur hjá stráknum. Hann tefldi alveg skínandi vel í dag og hefur gert svo síðustu misserin.

Íslendingarnir eru almennt að standa sig ágætlega, sérstaklega þeir sem tefla að staðaldri. Unglingarnir eru að gera það gott og er það vel.

Koma svo strákar.
mbl.is Gott gengi Íslendinga á skákmótinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Real úr leik

Ekki nóg að kaupa allt sem hreyfist. Leikmennirnir þurfa að geta spilað saman.
mbl.is Roma og Chelsea í 8-liða úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paris Hilton leikkona?

Spurning hvort hún verði í fötum eða ekki, drukkin eða ekki.

En þetta verður ekki til að æsa mann upp í að horfa á þessa þætti.
mbl.is Paris Hilton í My Name Is Earl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögleg og ólögleg mismunun

Mismunun er mismunun, hvort sem hún er lögleg eða ólögleg. Fyrirgefið að ég skuli ekki fatta brandarann.
mbl.is Ekki um ólöglega mismunun að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrælahald

Ég á bók sem heitir "Slavery in the Arab World", þar sem forsagan er rakin. Þetta kemur mér ekki á óvart. Múhameð á að hafa kallað svertingja "rúsínuhöfuð" og eftirfarar hans töldu litaða menn eða náhvíta menn lítils virði.

Því kemur mér ekki á óvart þó norður-Súdanir skuli hneppa svertingja suðursins í ánauð, enda líta þeir svo á, a.m.k. í teoríunni, að hinir lituðu sé annars flokks þegnar, annars flokks fólk, svona svipað og talið var í Evrópu forðum.

Fortíðin ríkir enn í þessum heimshluta. Því er nú ver og miður.
mbl.is Þrælar leystir úr ánauð í Súdan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þolinmæði á þrotum?

Nú, ég hef nú ekki séð mikla þolinmæði hingað til í þeim herbúðunum. Þeir hafa hins vegar sýnt terroristum, sjálfsmorðssprengjumönnum og öðrum slíkum óendanlega þolinmæði; og haft sérstaklega mikinn áhuga á þeim, sem hvetja til átaka og stríðs og æsa upp hatrið, oft út af litlu eða engu tilefni.
mbl.is „Þolinmæði múslíma á þrotum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villi ekki af baki dottinn

Ég fór einstaka sinnum á fótboltaleiki í Laugardalnum í fyrra. Nýja stúkan var tóm í öll skiptin og c.a. 1/3 í þeirri gömlu.

Til hvers að byggja "hringinn" um Laugardalsvöll, og eyða hundruðum milljóna króna bara fyrir max einn leik á ári, þegar hægt yrði hugsanlega að fylla stúkurnar og varla það.
mbl.is Óraunhæfar kröfur KSÍ?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dannielynn Hope erfir Önnu Nicole Smith

En spurning hvort hún erfi brjóstastærð móður sinnar?
mbl.is Dóttir Önnu Nicole Smith erfir móður sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Winner Takes It All!

iceland05Merkileg umfjöllun er komin á erlenda skáksíðu um nýafstaðið Íslandsmót skákfélaga, þar sem við strákarnir í TR unnum eftir harða baráttu við Helli.

Já, fyrirliðinn og formaðurinn þarna fremstir á mynd.

Vírus á Mogganum

Ætli þessi símavírus sé af sama meiði og stafsetningarvilluvírusinn sem hefur leikið lausum hala þarna á blaðinu á síðustu mánuðum?
mbl.is Bilun í símkerfi Morgunblaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband