Norsararnir skrifa um Eirík!

Eyjólfur Ármannsson tónlistarsérfræðingur og skákmeistari benti á þessa grein um Eirík í norskum netmiðli. Vildi bara koma þessu á framfæri!

Margir vandræðagemlingar í Liverpool!

Já, nú kemur þetta í bakið á Púlurum. Hvað er Benitez að hugsa, að safna saman vandræðagemlingum í liðið, t.d Bellamy, Pennant og svoleiðis köllum, til viðbótar við þá sem voru þar fyrir.

En síðan vil ég spyrja: hvað er golkylfa? Mér sýnist skrifarar á mbl.is vera farnir að gera óeðlilega mörg mistök. Maður er daglega að sjá asnalegar stafsetningarvillur og slæma texta. Og fyrir þetta fá þeir borgað. Ég benti á þetta síðasta vor, og fékk þá skammir í hattinn frá starfsmönnum mbl.is. En ég skil ekki í yfirmönnunum, að láta þetta viðgangast. Það getur ekki verið svo erfitt að skrifa þó ekki sé nema þokkalegan texta.


mbl.is Bellamy lamdi Riise með golkylfu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta lagið vann!

Þetta var flott hjá Eiríki. Þetta kom virkilega vel út í kvöld. Eftir flutninginn hafði ég spáð:

1. Eiríkur

2. Jónsi

3. Friðrik Ómar

 

Náði a.m.k Eika rétt. Hann á eftir að standa sig vel, en hver verður fulltrúi Íslands í þessum norræna sjónvarpsþætti? Varla Eiríkur þetta skiptið, eða hvað?


mbl.is Eiríkur Hauksson verður fulltrúi Íslands í Helsinki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ronnie the funnie?


Nú hefur Britney endanlega misst það!

Æ, greyið. Svona fer nú Hollywood-lífið með saklausar sveitastelpur! Kannski hafði Framsóknarflokkurinn rétt fyrir sér í því, að borgir og bæir væru siðspillandi. En kannski Silvía Nótt heimsæki Sigmar mjög fljótlega með sömu hárgreiðslu?


mbl.is Britney snoðklippt á húðflúrsstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggið virkar?

Já, bloggið hér hefur haft áhrif á mörgum sviðum upp á síðkastið, nú síðast sjáum við hvaða áhrif "nöldur" Friðjóns og bláu appelsínanna hafði á Icelandair. Og maður kemst varla hjá því að velta fyrir sér, hvort "nöldur" femínista eins og Sóleyjar hafi ekki komið þessu máli af stað.

En a.m.k. ég tapa engum svefni þó þessi "kaupstefna" sé haldin á Sögu, en hugmyndafræði- og siðferðislega séð verð ég að fagna því, náist að flytja þessa kaupstefnu annað. Þetta gæti orðið Íslandi og Íslendingum til álitsauka erlendis, kannski ekki síst meðal helstu stuðningsmanna Bush í Bandaríkjunum! Smile


mbl.is Lögregla rannsakar kaupstefnu fólks úr klámiðnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt fyndnasta atriði ever: Maður undir dáleiðslu


Taka svona lúða úr umferð MJÖG lengi

Þetta er farið að verða nokkuð algengt, að vitleysingar gangi lausir á götum Reykjavíkur. Sumir eru þó að minnsta kosti bláedrú, en sækjast eftir einhverju adrenalínkikki. En fullir menn, og aðrir þaðan af verri, eiga ekkert erindi á götur bæjarins.

Ég man eftir Jim Hacker, úr Yes Minister (síðasta þætti YM), þegar hann hafði farið all hressilega í jólaglöggina í ráðuneytinu og keyrði heim þannig, að hann silaðist eftir gangstéttarköntunum á gönguhraða. En hann var blindfullur kallinn og átti ekkert erindi undir stýri, þrátt fyrir það. EN hvað þá, þegar menn glanna á yfir 100 km hraða á klukkustund, blindfullir -- eða aka á ofsahraða og virða engin stöðvunarmeri, og það í annarlegu ástandi.

Svona menn á að taka úr umferð.


mbl.is Ökumaður í annarlegu ástandi skapaði stórhættu á götum Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og ég er orðinn þreyttur á Paris Hilton

En mætti ekki bjóða henni á klámþingið? Hún hefur nú "gefið út" nokkrar klámmyndir, ef ég hef skilið pressuna rétt (eða reyndar einhver gefið þær út fyrir hana!!)

En auðvitað geispaði hún: Hún þurfti nefnilega að haga sér siðmannlega, og það er víst leiðinlegt. Hún er svona Silvía Nótt þeirra Kana, nema hún er ekki að leika.


mbl.is Paris Hilton þreytt á óperudansleik í Vín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peter Sellers strikes again!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband