Groundhog Day

Maður getur aldrei séð Punsúto'ney Fil með réttum augum eftir myndina Groundhog Day.

En ég velti fyrir mér hvernig Fil getur gert sig skiljanleg við hattakallana.

Tóm della allt saman...nema hvað mig grunar að niðurstaðan sé rétt!
mbl.is Punxsutawney Phil spáir vetri enn um sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír í klefa

Er það ekki full mikið? Væri ekki betra að hafa hámark tvo saman í klefa. Það virðist full þröngt að setja þrjá saman í einn klefa. Er það ekki?
mbl.is Þrír í fangaklefa vegna óspekta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálkublettir

Ójá, minnstu ekki á þá. Ég er kominn með átta hálkubletti á bringuna, eftir að hjúkkan rakaði 8 bletti í bringuháraskóginn til að setja einhver mælitæki þar á.


Alls staðar þessir hálkublettir. Minnstu ekki á þá.
mbl.is Víða hálkublettir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu vitað

Bloggaði um þetta fyrir meira en viku...Þetta sést úr flugvél. Þau ná til ólíkra hópa og saman gætu þau sigrað Repúblikana...en sundur er það ekki svo ljóst.
mbl.is Munu Clinton og Obama bjóða fram saman?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú bregðast krosstré...

Já, Volvo bílarnir áttu alltaf að vera svo magnaðir, vel hannaðir og öruggir.

En jafnvel Volvo gerir mistök...


En úr því jafnvel Volvo gerir mistök er ekkert skrítið þó við klúðrum einstaka sinnum!
mbl.is Volvo innkallar 82 þúsund bíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvelt

Arsenal vann auðveldan og sanngjarnan útisigur á Man City, sem hefur verið firnasterkt á heimavelli sínum. Og hrikalega er Adebayor orðinn góður. Hann virðist sá eini sem geti ógnað Ronaldo á þessu keppnistímabili.

En auðveldur sigur gegn sterku liði, og það þrátt fyrir að Arsenal hafi með naumindum geta safnað í lið, án þess að grípa til unglingaliðsins, en aðeins 14 útileikmenn voru klárir í slaginn. Mikil meiðsli eiga sér stað og síðan eru 3 leikmenn í Afríkukeppninni.

Þetta gerir sigurinn enn sætari en ella.
mbl.is Arsenal í toppsætið eftir sigur á Man City, 3:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarastríð í Chad

Enn einu sinni logar Afríkuríki í átökum. Saga Afríku síðustu 60-70 árin hefur verið mörkuð af átökum, yfirleitt innanríkjaátökum, ásamt hungursneyðum og margskonar áföllum. Þessi álfa, sem er vísast ein hráefnis- og auðlindaríkasta álfa heims, hefur heldur betur tekið sinn skerf af áföllum.


Vandamál Afríku eru margskonar. Fólksfjölgunin hefur verið mun meiri en efnahagskerfi einstakra ríkja hefur þolað. Þar kemur m.a. til, að einstaka þjóðflokkar í einstaka ríkjum hafa fylgt hefðum, sem ekki hafa passað við samtímann. En það er allt önnur saga, sem ekki verður rakin hér.


En hvað snertir pólítíkina eru málin flókin. Þegar Evrópubúar fóru að skipta Afríku upp á milli sín gripu þeir þau svæði sem þeir gátu, óháð búsetu ættbálka og þjóða. Því gerðist það, að einstaka stjórnunareining var ekki byggt upp eftir þjóðernislegum forsendum, heldur hagsmunum evrópskra nýlenduherra. Því gerðist það, að á meðan Evrópu var skipt upp, að lokinni fyrri heimsstyrjöld, eftir þjóðernislínum (að minnsta kosti að nokkru leyti), var Afríku áfram skipt eftir hagsmunum Evrópumanna og pólítískum væringum.

Þetta hefur t.d. sést vel í Nígeríu, þar sem margar þjóðir og þúsundir ættbálka hafa slegist um völdin. Ekki hefur það verið viðbætandi, að auðæfi einstakra ríkja hafa ekki skipst jafnt á milli, t.d. í Nígeríu, þar sem olíuauðurinn er á svæðum sumra, meðan aðrir búa við hefðbundna starfsemi, t.d. landbúnaður og hirðingjastörf.  Og þar til viðbótar má nefna, að trúarbrögð koma til sögunnar, til dæmis þar, en sumar þjóðir/þjóðabrot eru kristin en önnur íslömsk.

Vandamálin eru víða mjög erfið, ekki síst í þeim löndum, sem skyndilega fengu sjálfstæði frá Bretum, Frökkum eða öðrum nýlenduveldum. Nefna má vandamál í Rúanda, Kongó og víðar, eins og alþekkt er.

Vandamálin í Norður-Afríku hafa verið annars eðlis. Ríkin þar eru yfirleitt algjörlega íslömsk, eins og t.d. í Chad, og lítil tungumálaaðgreining.




Chad

Chad liggur í hjarta Afríku, umlukið öðrum löndum og á því ekki land að sjó. Í norðri er Líbýa, Súdan í austri, Miðafríkuríkið í suðri og Kamerún og Nígería í suðvestri, og Níger í vestri.

Sökum fjarlægðar frá sjó er veðurlagið “eyðimerkurloftslag”, þurrt og frekar heitt. Chad er skipt niður í þrjú landfræðileg svæði: Í norðri er eyðimerkursvæðið, Sahelianbeltið er í miðju ríkinu, en hin frjósama súdanska slétta í suðri. Chadvatn er uppspretta vatns í ríkinu, en það er næststærsta vatn Afríku á eftir Viktoríuvatni. Höfuðborgin er N’Djamena.

Yfir 200 þjóðernis- eða tungumálahópar búa í Chad. Franska og arabíska eru reyndar hin opinberu tungumál landsins, en einnig eru margskonar mállýskur í gangi og fornar tungur ættbálka. Flestir íbúar Chad eru múslimar, en íbúar eru um 10 milljónir.

chadFrakkar náðu Chad á sitt vald 1920, en það hafði eiginlega ekki verið eiginlegt ríki áður, heldur landsvæði sem ættbálkar réðu sínu svæði, oft í sambandi við Osmanska (ottómanska) heimsveldið. Frakkar sameinuðu þetta svæði nærliggjandi svæðum í Frönsku Mið-Afríku, sem síðan brotnaði niður í Gabon, Chad, Miðafríkulýðveldið og Kongó (Belgíska Kongó var síðan nefnd Zaire, en er nú Kongólýðveldið). Það náði frá Sahara-eyðimörkini (Chad) til Kongó (Kongó).

Chad klofnaði frá þessari heild 1960, þegar landið klauf sig frá undir forystu Francois Tombalbaye (1918-1975), verkalýðsforingja frá Sara-ættbálknum í suðurhluta landsins. En stjórn hans vakti upp andóf í norðri meðal íslamskra íbúa landsins, enda ríkti hann sem einráður og setti t.d. af ýmsar sértækar lagasetningar, s.s. hvað snerti íslömsk sérákvæði. Borgarstríð hófst síðan 1965, en því lauk 1979, þegar uppreisnarlið múslíma í norðri náði höfuðborginni N’Djamena á sitt vald. Norðanmenn komust nú til valda, en upphófst þá valdabarátta einstakra hershöfðingja. Að lokum komst Hissene Habre til valda, en hann hrökklaðist frá 1990 eftir stjórnarbyltingu hersins.

En Chad býr yfir einum mesta óstöðugleika í allri Afríku. Í fáum ríkjum er jafn oft reynt að bylta stjórnvöldum með valdi og hefur það haft aukið vægi hin síðari ár, þegar olíuframleiðsla hefur aukist og eftir meiru að slægjast en áður. Nágrannaríkin, eins og t.d. Líbýa og Súdan, hafa stöku sinnum blandað sér í þessi átök.

 Flestir íbúarnir eru afar fátækir, enda er Chad eitt af fátækustu löndum Afríku. En olíuauðurinn færist á fáar hendur, enda er óvíða eins mikil og rótgróin spilling og þar. Og stjórnvöld ríkja í skjóli hersins, sem helst njóta góðs af spillingunni og verja því ríkjandi kerfi.

Idriss Deby hefur verið forseti frá 1990, þegar hann steypti Habre frá völdum. Hann er spilltur og hyglir ákveðnum ættbálkum í stöður og til valda. Frá 2003, þegar olíu fannst í miklu magni og hefur verið flutt út, hefur allt logað í deilum í landinu og upp úr óánægju landsmanna með misskiptingu auðs og valda, og margt fleira reyndar, hófst sú borgarastyrjöld, sem nú er farin að verða að meiri háttar átökum.

Baráttan virðist að miklu leyti vera ættbálkaerjur, þar sem sumir ættbálkar njóta góðs af stjórn landsins en aðrir ekki. Hin nýju uppreisnaröfl koma einkum frá austurhluta landsins (og eitthvað frá suðri), en þar hefur fátækt verið mest, ekki síst þar eð þangað hafa þúsundir og aftur þúsundir flóttamanna frá Darfur flúið.

Og ekki er ólíklegt, að Darfur vandamálið verði einnig vandamál í Chad, þar sem jafnvel er óttast að uppreisnar menn muni ná sér niðri á ættbálkum Debys forseta, nái þeir völdum. Ástandið gæti þá orðið eins og í Rúanda áður, eða Kenýa nú á vorum dögum.

Rætur vandans liggja hins vegar í því, að innan hvers ríkis búa margar þjóðir og fjölmargir ættbálkar. Og jafnan er, eins og víðar, að stjórnarherrarnir koma úr ákveðnum ættbálki og hygla honum. Þetta er alþekkt í Afríku.

Því er líklegt að átökin í Súdan, Kenýa, gamla Zaire, Rúanda og víðar eigi eftir að breiðast út til annarra ríkja Afríku, þar sem svipuð þjóðernisskipting er uppi á teningnum.


mbl.is Uppreisnarmenn stefna á forsetahöllina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af spjöldum sögunnar 3: Frjósami hálfmáninn (II)

Ísraelsríki hið forna

Ísraelsmenn rekja ættir sínar til ættföðurins Abrahams, sem yfirgaf heimkynni sín í borginni Úr og settist að meðal Kanaaníta. Bjó hann lengst af í Hebron, þar sem enn má finna grafhýsi hans og ættmanna hans. Sonur hans Ísak tók við húsbóndavaldi af föður sínum og enn síðar sonur hans, Jakob.

Á dögum Jakobs gerðist það, að hungursneyð varð í Kanaanslandi og fór hann með fjölskyldu sinni til Egyptalands, á dögum Hyksosa, þar sem ættmenn Jakobs fjölguðu sér. Að rúmum 400 árum liðnum yfirgáfu Hebrear, eins og Gyðingar voru þá kallaðir, Egyptaland, þar sem þeir voru þrælar Þebukonunga, red-seaog héldu yfir Sínaíeyðimörkina inn í Kanaansland undir forystu Móse og síðar Jósúa. Í Sínaíeyðimörkinni fengu Ísraelsmenn lögmálið (torah), sem inniheldur meðal annars boðorðin tíu og margskonar siðalögmál önnur. Á tíð Jósúa lögðu Hebrear undir sig stærstan hluta Kanaanlands, en mynduðu þó ekki sérstakt ríki, heldur komu á fót bandalagi 12 ættkvísla Jakobssona.


Síðar urðu svokallaðir dómarar foringjar þeirra í stríði, en Hebrear áttu lengi í átökum við sæfarendaþjóðina Filista. Samson, sá sem sterkari var en aðrir menn á sinni tíð, var þekktastur dómaranna.
  
Um 1030 f. Kr. varð Sál Kísson fyrsti konungur í Ísraelsríki hinu forna og ríkti uns hann féll í orrustu við Filista, um það bil árið 1005. Þá tók við Davíð Ísaísson og vann hann Jerúsalem árið 1000 f. Kr. og gerði hana að höfuðborg veldis, sem síðar náði allt til Efrat í austri, suður til Akabaflóa og langt norður fyrir Damaskus. Sonur hans, Salómon konungur, efldi ríkið, en varð værukær vegna velgengni sinnar og hefur einnig sennilega lítið getað sinnt konungsstörfum, þar sem hann átti samtals eitt þúsund konur og hjákonur.

Við dauða hans klofnaði Ísrael í tvö ríki, Norðurríkið Ísrael (lengst af með höfuðborg í Samaríu) og Júda (með höfuðborg í Jerúsalem). Salómon hefur þó einna helst verið minnst vegna speki sinnar og smíði musterisins í Jerúsalem, miðstöðvar trúariðkunar Gyðinga um aldir.
Norðurríkið Ísrael, sem kallað var konungsríki hinna tíu ættkvísla, aflagði að mestu þá guðsdýrkun, sem ríkt hafði meðal Ísraelsmanna frá dögum Móse.

Jeróbóam I., fyrsti konungur ríkisins, lét reisa musteri í borgunum Betel, syðst í ríkinu, og Dan, á norðurlandamærunum. Þar hóf hann til virðingar hofpresta, sem ekki voru af prestaætt levíta, og dýrkuðu þeir gullkálfa og semíska guði af ýmsum toga. Trúin á Guð Abrahams og Móse var þó áfram við lýði í Júdaríki og Jerúsalem, að minnsta kosti í orði kveðnu. Á hinum pólítíska vettvangi voru Júdamenn lengstum ofjarlar bræðra sinna í norðri, þó þeir hafi upprunalega verið færri.


Sýrlendingar herjuðu einnig á Ísrael og innlimuðu stór svæði umhverfis Galíleuvatn og fljótlega höfðu Ísraelsmenn einnig misst völd á landsvæðunum austan Jórdanar. Um 722 f. Kr. lagði Assýríukonungur síðan höfuðborg Norðurríkisins, Samaríu, í rústir og flutti eftirlifandi íbúa nauðuga í útlegð til svæðisins suðvestan Kaspíahafs, þar sem Ísraelsmenn hurfu í þjóðahafið.
Júdamenn hrundu árás Assýringa á dögum Hiskía konungs, þegar  plága lagðist yfir hersveitir Assýríukonungs, svo tugir þúsunda létust. Sjálfstæði Jerúsalem var þó sífellt ógnað, meðal annars af Egyptum og hirðingjaættkvíslum eyðimerkursvæðanna.


Júdaríki hélt velli fram til 587 f. Kr., þegar Jerúsalem féll í annað sinn fyrir herjum Nebúdadnesars Babýlonkonungs. Að þessu sinni var borgin lögð í rústir og musterið fagra, sem Salómon hafði látið reisa um 400 árum áður, var brennt. Ríki Júdamanna leið nú undir lok og stærstur hluti íbúanna fluttir herleiddur til Babýlon. Þaðan sneru þeir aftur 70 árum síðar, á ríkisárum Kýrusar Persakonungs. Hinir heimkomnu Júdamenn urðu síðan kjarni þeirrar þjóðar, sem við köllum Gyðinga.


Þótt Ísraelsríki það, sem Davíð konungur og Salómon sonur hans komu á fót, hafi liðið undir lok, tryggði tilvera þess framgang og áframhaldandi tilvist fyrstu eingyðjistrúarbragðanna, sem héldu velli í hafsjó goða og mustera fjölgyðjisdýrkunar. Það voru svo þessi sömu trúarbrögð, sem urðu að mörgu leyti grundvöllur þess vestræna samfélags, sem við búum við í dag, og kristindómsins, sem enn í dag eru fjölmennustu trúarbrögð heimsins.
  






Forn stórveldi endurvakin  


Í upphafi 9. aldar höfðu Assýringar náð sér eftir innrásir og ránsferðir nágrannaþjóðanna. Undir forystu herkonunganna Assúrnasírpals II. (883-859) og Salmanesers III. (858-824) varð Assýría stórveldi að nýju. Í styrjöldum Assúrnasírpals grimma, sem var sennilega miskunnarlausasti konungur fornaldar, mun sennilega í fyrsta skipti hafa verið framkvæmdar svokallaðar þjóðernishreinsanir og meðfylgjandi þjóðarmorð. Hér var því kominn fyrsti stríðsglæpamaður sögunnar. Hann reisti þó stórglæsilega höfuðborg í Kala, sem reist var af þrælkuðum þjóðum, sem konungurinn hertók sérstaklega til þess arna.
  


Assýringar brutu undir sig ríki Aramea, Elamíta, semískra hirðingjaþjóða, Fönikíumanna og Ísraelsmanna. Útþennsla Assýríu stöðvaðist þó á síðustu stjórnarárum Salmanesers, þegar helstu óvinaríki Assýringa, svo sem Armenar í norðri, Frýgíar í Litlu-Asíu og Egyptar, höfðu safnað liði gegn þeim. Um miðja 8. öld komst til valda konungsætt Tíglat Pílesers IV. (745 - 727), sem reyndist snjall herkonungur. Hann gjörsigraði hið armenska Úrartú-ríki í norðri á fyrstu stjórnarárum sínum, Damaskus 732 og Babýlon 729.


Salmaneser V. hélt verki föður síns áfram, en var veginn í umsátri assýríska hersins um Samaríu. Sonur hans, Sargon II. (722-705), sigraði Samaríu 722, og barði hann niður með gríðarlegri hörku uppreisnartilraunir Armena, Meda og Hetíta. Hann kórónaði verk sín með því að berja niður uppreisn Babýloníumanna og sigraði svo egypska herinn við landamæraborgina Rafah.
   Konungar þessir skildu lítið marktækt eftir sig, annað en það sem laut að hernaði.


Menning Assýringa var að grunni til súmersk, þó með síðari tíma afbrigðum. Assýringar litu á sig sem herraþjóð, sem hefði það hlutverk að ríkja yfir nágrönnum sínum. Sonur Sargons, Sennarkhíb (704-681) hélt landvinningunum áfram, en tók þó að gefa gaum að menningu og listum. Helstu afrek hans fólust í uppbyggingu Níníve, en hjarðir hertekinna óvinaþegna unnu árum saman við að gera borgina að illvinnandi vígi og fögru minnismerki um dýrð konungsins. Múrar borgarinnar voru 25 metra háir, tvöfaldir að þykkt og höfðu 15 hlið. Borgarbúar, sem munu hafa verið um 200.000, fengu vatn eftir 50 kílómetra löngum skurði, sem konungurinn lét grafa, 22 metra á breidd.


Hersigrar hans fólust helst í því að leggja Júda undir sig, en hann sneri frá umsátri um Jerúsalem vegna plágu, sem upp kom í herbúðum hans. Einnig barði hann niður enn eina uppreisn Babýlonar, en var skömmu síðar myrtur af sonum sínum. Við dauða hans háðu prinsarnir innbyrðis baráttu um völdin og tókst einum yngsta þeirra, Eserhaddon (681-669) að leggja ríkið undir sig. Hann gerði bandalag við Skýþa, voldugustu steppuþjóðina í Kákasus og náði með liðsstyrk þeirra að reka Kelta af höndum sér, en þeir höfðu sest að og komið á fót öflugu ríki í Litlu-Asíu. Einnig gjörsigraði hann Egypta og lagði undir sig Egyptaland allt suður til Núbíu.


Á dögum Eserhaddons náði Assýría meiri útþennslu, en nokkurt stórveldi í Vestur-Asíu hafði áður gert. Á dögum Assurbanapals (668–626) gengu flest herteknu ríkin undan valdi þeirra, enda hafði konungur meiri áhuga á fögrum listum en hernaði, til dæmis lét hann reisa bókasafn í Níníve, hið stærsta sinnar tegundar, með um 22.000 áletraðar steintöflur. Stöðugar árásir nágrannaþjóðanna veiktu einnig varnarmátt hersins og féll Assúr 614, Níníve 612 og Haran 608 í hendur Babýloníumanna.


Hinir nýju herrar meðhöndluðu Assýringa með „assýrísku aðferðinni”, þar sem tugþúsundum manna var slátrað. Gengu Babýloníumenn svo hart fram, að assýrísku þjóðinni var nánast útrýmt á mjög skömmum tíma. Ein uppfinninga Assýringa lifir þó góðu lífi, en þeir munu hafa verið fyrstir allra til að brugga bjór.
  Herkonungurinn Nebúkadnesar II. (604-552) gerði Babýloníu að mesta stórveldi fornaldar. Hann lét styrkja Babýlon, reisa þar fögur minnismerki, svo sem hið fagra Ishtar-hlið og hengigarðanna frægu, sem teljast meðal sjö undrs fornaldar.


Eftir dauða Nebúadnesars tók við valdabarátta meðal sona hans, uns Marduk-prestarnir hófu Nabonidus og síðar Belshassar til konungs. Árið 539 ruddust Persar að óvörum inn í Babýlon og gerðu Babýloníu að héraði í persneska ríkinu. Veldi Babýloníu var nú endanlega úr sögunni.

Ástríkur og Steinríkur

Ætli Zidane leiki ekki Galla, sem hefur það vopn, að skalla Rómverja niður?
mbl.is Schumacher og Zidane leika í Ástríksmynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Waziristan?

"Árásarmaðurinn keyrði bifreið fullri af sprengiefnum inn í öryggisklefa við  landamærin í norður Waziristan héraði."

Waziristan? Var ekki Tarzan konungur í Waziristan?
mbl.is Sjálfsmorðsárás í Pakistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband