Væl

Ef Benni er svona tapsár, hefði hann kannski átt að stilla upp sínu sterkasta liði í gær, því hálft a-lið og hálft b-lið Liverpool er greinilega ekki að gera sig.

Og það þó b-liðsmenn Liverpool hafi nú kostað skildinginn á sínum tíma og séu nær undantekningarlaust mjög reyndir kappar.

Greinilegt að aðeins einstaka félög geta stillt upp góðu b-liði! Því það er ekki nóg að setja þekkt nöfn á pappír. Mennirnir þurfa að geta spilað.

AÐ vísu var mótspyrnan hörð. Chelsea stillti upp næstum því sínu sterkasta liði (sem völ var á), eða jafnvel sínu sterkasta. En svona er lífið í boltanum.


mbl.is Benítez: Dómarinn átti að grípa inní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsjárhyggjan

Hér í den voru sett lög á Íslandi um, að ákveðnir einstaklingar mættu ekki eignast börn. Það var gert undir merkjum mannkynbótafræðanna og var Vilmundur landlæknir helsti forvígismaður þessa. Hann skrifaði jafnvel rit, sem fylgdi með sem útskýringakladdi fyrir þingmenn.

Þá átti semsagt að vana þá, sem væru "óhæfir", s.s. glæpamenn af slæmum toga, geðsjúka, þroskahefta og fleiri slíka, ef ég man rétt.


En nú á semsagt að hindra að feitir fái aðstoð við að eignast börn. Og næsta skrefið verður þá vísast það, að gelda þá og vana, eða hvað sem menn vilja kalla það.


Kannski ætti maður að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir og drífa sig í að unga eins og 1-2 stykkjum út, áður en mér verður það bannað?
mbl.is Feitar fá ekki tæknifrjóvgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undanúrslit ensku deildarbikarkeppninnar

Arsenal - Spurs
Chelsea - Everton


Rosalegt fjör. Heima og heiman. Rosalegir leikir. UNglingalið Arsenal gegn aðalliði Spurs. Hvernig ætli það fari.

Síðan er Chelsea - Everton.


Kannski Everton nái að stríða Chelsea, sem tók Liverpool í bakaríið í kvöld.

Hneyksli. Skandall.

Nú fær maður ekki frið á næstunni fyrir commentum frá ákafasta Stjörnumanni sem ég þekki, JHR.

Og það versta að tapa fyrir litla liðinu í bláu búningunum. W00t
mbl.is Öruggur sigur Stjörnunnar - Valur lagði HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beckham slappur

Þetta er nú lélegt. Bara 100.000 kall?? Hann hlýtur að gefa henni eins og einn Porsche í leiðinni. Þetta er svona eins og venjulegur Íslendingur með 350.000 kall á mánuði með yfirvinnu færi að gefa konunni sinni kók og prins.


En kannski ágæt gjöf fyrir svona snobbhænu.
mbl.is Árituð bók handa Viktoríu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel gert Erla Ósk

Kominn tími til að kitla risann aðeins. En hins vegar er þetta lélegt hjá bandarískum yfirvöldum, að geta ekki a.m.k. beðist afsökunar.

En eins og systemið er þarna, er þetta samt meira en ég bjóst við.

Og utanríkisráðuneytið stóð sig vel, og erindrekar þess og ráðherra, rétt eins og t.d. svipuðu máli sem kom upp fyrir nokkrum árum.

mbl.is Erla Ósk fagnar niðurstöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pútín I Rússakeisari?

En á þá ekki afkomandi hans að taka við?


Ég er alveg steinhissa á þessu. Að vísu hefur Pútín komið á ákveðnum "stöðugleika", en verðið er hátt. Frelsi afnumið og fleira í þeim dúr.


Pútin er þó ekki alslæmur, þó mér hugnist ekki stjórnarfar hans. En hann vann amk það afrek að hrekja Kasparov út stjórnmálunum.
mbl.is Time velur Pútín mann ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Viktor til Real Madrid

Jón Viktor, a.k.a. Uglan, hefur því verið keyptur til Real Madrid.

Ætli Real sé búið að stofna skákdeild?
mbl.is Ránfuglar ráðnir til Real Madrid
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsingar í Áramótaskaupi

Ok, ég þoli ekki auglýsingar í miðjum þáttum eða myndum.

En gera má undantekningu núna, því margir þurfa að komast á klóið til að kasta af sér ölinu.

En ég get þó fallist á þetta fyrir mitt leyti til að lappa aðeins upp á fjárhag RUV, þó ekki sé nema til að geta borgað köntrí-sveitinni sem styrinn mikli stendur um.
mbl.is Kvartað vegna auglýsingar í Áramótaskaupi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arsenal vs. Liverpool

3Merkileg síðan sem ég linka hér á (takk Bjössi fyrir að msn-a henni á mig) um kaup og sölur leikmanna helstu liðanna í Englandi.


Þarf varla að segja frá því, að Arsenal hefur eytt lang minnstu af stóru liðunum, jafnvel minna en SPurs, Newcastle og slík lið, of jafnvel minna en sum önnur!



Jæja, hvernig eru a-liðin hjá Liverpool og Arsenal sett saman?

Manuel Almunia 2.5 m (uppí skuld Celta vigo) 
Clichy 250.000
Sagna 6 m.
Robin van Persie 2,75 m. 
Cesc Fabregas 0
Flamini 1 m.
Adebayor 3 m.
Rosicky 6,8 m.
Hleb 9,9 m
Gallas 0
Toure  150.000

(Ef menn vilja hafa Eboue 1 milljón inni fyrir t.d. Persie, 2,75 m, er það í lagi mín vegna!).

Heildarkaupverð  a-liðs Arsenal:  32 millur

Mascherano 18 m. (til agentsins)
Gerrard 0
Arbeloa 2,6 m
Torres 26,5
Kuyt  9 m.
Reina  6 m.
Agger  5,8 m
Babel  11,5 m
Riise 4 m.
Carragher 0
Benayon 5

Heildarkaupverð c.a. a-liðs Liverpool:   88,4 millur

Hvernig er staðan í deildinni?

Og þá eru ekki tekin með ýmis "snilldarkaup" Liverpool á síðustu árum, meðan Arsenal er nánast á "sléttu", þ.e. seldir leikmenn vega nokkuð hressilega upp í kaup á nýjum.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband