Skeiðarárhlaup hafið!

Fjórtán FH-ingar og sex KR-ingar voru að enda við að skrá sig. Búist er við fleirum.
mbl.is Skeiðarárhlaup hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegir umhverfisverndarsinnar eru það...

...sem eru að vernda umsvifamestu "veiðiþjófa" heimsins. Vita hvalirnir ekki, að fiskurinn sem þeir háma sig í tonnavís er oft á tíðum í útrýmingarhættu?


vlcsnap-3565678En það dugar ekki fyrir okkur mennina að draga úr veiðum á þorski og öðrum nytjafiskum, ef ekkert er hróflað við hvölum og selum, sem hvorir um sig virðast slá manninum við í fiskáti eða átuáti.


Niðurstaðan: meðan bannað er að veiða hvali og seli í einhverju magni, er nánast útilokað að hægt verði að rífa upp þorskstofninn svo neinu nemi.


Það er a.m.k. hvað Albert skipstjóri segir. 
mbl.is Umhverfisverndarsinnar ætla að stöðva hvalveiðiskip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld

Þetta er auðvitað algjör snilld hjá stráknum (með fyrirvara um að athæfið gæti varðað við lög eða...?).

 

Ég hef alltaf gaman að góðum strákapörum.


mbl.is Skagapiltur pantaði viðtal við Bush
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dansatriði frá árshátíð Hellismafíunnar

http://www.elfyourself.com/?id=1191002441

 

Og endilega ýtið á "watch again", en þá fer Don Gunzó hamförum.


Fangelsun blaðamanna

Mig grunar, að flestir þessara fjölmörgu blaðamanna hafi í raun ekkert sér til saka unnið, nema e.t.v. að gagnrýna stjórnvöld eða fletta ofan af þeim. En meðan saklausir blaðamenn sitja inni, ganga lausir fjölmargir blaðamenn sem hafa notfært sér stöðu sína til að troða eigin skoðunum inn í fréttir eða flytja svívirðingar um fólk. Þeir mættu alveg fara inn, amk sumir þeirra, rétt til að staðfesta, að blaðamenn eiga ekki að vera stikkfrí, ákveði þeir að fara út fyrir skyldur sínar. Þá er ég t.d. að tala um blm í einræðisríkjum sem ljúgja til að fegra ímynd Foringjans og aðrir slíkir, s.s. þeir sem reka pólítískan áróður undir yfirskini hlutleysis. Svoleiðis lýður er aumkunarverður og setur slæman blett á annars ágæta starfstétt blaðamanna.
mbl.is 127 blaðamenn sitja í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

(sjálfs?) morðtilraun

Ég heyrði nánar um þetta í útvarpinu í morgun. Nú þarf laxi aldeilis að borga fyrir glannaskapinn, sem hefði getað kostað hann, eða aðra, líf eða limi.

En það verður að fara að taka harðara á glannaakstri óvanra ökumanna sérstaklega, já, og glannaakstri almennt.

En 212 km hraði er auðvitað hrein bilun.
mbl.is Sautján ára á 212 kílómetra hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Koma svo strákar!

Nú er tækifærið hjá hinu unga liði Arsenal að krækja sér í þægilega forystu fyrir jólaösina og senda KRingaliðið frá Nýja-kastala beint í sturtu.



Áfram Arsenal


mbl.is Newcastle og Arsenal skildu jöfn, 1:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Torres og Gerrard í dýfingum

Jæja, nokkrir Liverpoolarar hafa verið að agnúast út í Chr. Ronaldo fyrir "dýfingar".

En hvað Liverpool snertir er þar potturinn aldeilis brotinn:
Þetta var Torres, og nokkrir meðfylgjandi. Hehe, myndbandið greinilega sett saman af Man Utd manni! En síðan kemur Gerrard, sem gagnrýnt hefur "dýfingar" manna mest. Hvílíkur hræsnari.

50 milljónir punda eða meira?

Ja, Barcelona mun varla selja Ronna fyrir minna en 50 milljónir punda. En það væri sniðugt, því Ronni kemst ekki lengur í liðið hjá Barcelona.
mbl.is Ronaldinho á leið til Chelsea?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðirnir eru skeggjaðir

Æjá og hananú.

En vonandi gengur þetta nú vel þarna suðurfrá. Agalegt að horfa upp á það hvernig fólkið hefurða þarna í Malaví og nágrenni, þó það sé reyndar enn verra sumsstaðar, s.s. í Sómalíu.

Við Íslendingar eru þó amk farnir að gera eitthvað af alvöru í þessum málum. Nógu lengi höfum við dregið hælana í nískukasti.

Vandamál þriðja heimsins koma okkur við. Svo einfalt er það.

 

Óska ég Stefáni góðs gengis þarna suðurfrá.


mbl.is Stefán Jón fer til Malaví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband