Verður Rafa rekinn?

Ja, mér er spurn. Þetta lítur amk ekki vel út núna í deildinni. Liverpool er að missa Arsenal - Man Utd og Chelsea fram úr sér. Að vísu er munurinn ekki ýkja mikill, en þó!


Jæja, maður bíður spenntur....og hugsar hlýtt til Gunners, sem spila á morgun. Wink


mbl.is Reading vann góðan sigur á Liverpool, 3:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpamaður

Alveg rétt. Og þessi krimmi komst til valda með "lýðræðislegum hætti", eins og Hamas, Chavez og fleiri góðvinir/góðavinasamtök sumra Íslendinga.

En ég skil ekkert í Sveini Rúnari að hafa ekki stofnað vinasamtök Íslands og Zimbabwe? Já, og lýst yfir stuðningi við þennan rudda.

En hver veit nema SR stofni vinasamband við hvíta minnihlutann? Er hann ekki kúgaður?

mbl.is Fogh segir Mugabe glæpamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskir drykkjurútar?

OK, áfengisdrykkja hefur aukist töluvert hér á landi frá 1980, og mest allra ríkja í OECD.

 

En mig grunar að 1980 hafi Íslendingar drukkið minnst, enda var þá bjór bannaður og úrval léttvína lítið, svo drykkja fór aðallega fram á fylleríum og í bóhemisma...að því að ég best veit.

 

Drykkjusiðirnir hafa breyst. FLeiri drekka og oftar, en sennilega hlutfallslega minna í einu. Menn eru ekki á stöðugum brennivínsfylleríum.


Annars þekki ég engar tölur og tilheyri ekki þessum heimi sjálfur, en mig grunar að Íslendingar séu enn aftarlega á merinni í drykkju í löndum OECD, þó hlutfallið hafi aukist á 25 árum. Enda drekkum við aðeins 7,1 lítra á haus, miðað við 9,5 (ef ég man rétt) meðaltal OECD.

Og Írar drekka mest. Það kemur ekki á óvart!


mbl.is Áfengisdrykkja jókst mest á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barátta öryrkja

Þetta er auðvitað réttmæt krafa. Það gengur ekki að láta þúsundir manna fara í jólaköttinn í desember...og hið sama gildir auðvitað á tilkomandi mánuðum líka. Það þarf að búa sómasamlega að öryrkjum, hjálpa þeim með fé sem ekki geta unnið og hjálpa til vinnu þeim, sem eitthvað geta unnið.

En það háir hins vegar öryrkjum, að Sigursteinn Másson er formaður ÖBÍ. Mig grunar, að hann hafi frekar verið öryrkjum til trafala en hitt.
mbl.is Öryrkjar vilja aðgerðir strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hnerra kl. 18.25 á fimmtudaginn

Rétt til öryggis. Góð æfing.


mbl.is Inflúensuæfing í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snúum þessu aðeins við

Kaupmenn ráða því sjálfir, hvort þeir selji ákveðna vöru í verslunum sínum. Svo einfalt er það.

Rétt eins og ég ræði því hvort ég kaupi ákveðinn varning, tímarit eða annað.

 

Ef mér líkar ekki efni í ákveðnu tímariti, hætti ég að kaupa / lesa það.


Ef kaupmaðurinn vill ekki selja blað / tímarit með ákveðnu efni, eða ákveðnum efnistökum, hættir hann að selja það.


Og hvað er þá útgefandinn að væla? Hann getur engum öðrum kennt um en sjálfum sér.

 

Er það "tilraun til ritskoðunar" ef t.d. Hagkaup vill ekki selja Playboy?

Nei.

Það er heldur ekki tilraun til ritskoðunar ef ég kýs að lesa ekki Ísafold. Ég las eitt af fyrstu blöðunum og ákvað þá, í ljósi rangfærslna og rangsnúinnar nálgunar að efninu að mínu mati, að lesa það ekki aftur. Við það hef ég staðið.


Ég styð semsagt Kaupás í þessu. Burtu með svona drasl! Málið dautt.


mbl.is Fordæma tilraun til ritskoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súlustaður í Grindavík?

Ójá, innsiglingin!

Jæja, smá útrás, back to work!
mbl.is Súlan laus af strandstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segir Ómar Þ. við þessu?

Ætli hann hætti þessu bara ekki og fari í fjársöfnunarherferð fyrir Saudi Araba eða Emirates fursta?


mbl.is Ísland í fremstu röð í umhverfismálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðing?

Ok, svona eiga áhorfendur ekki að haga sér. En maður skilur þá svosem vel, þegar Tottenham á í hlut. Wink

En betra hefði verið að grýta Spursarana með klósettpappír, það er a.m.k. meira við hæfi. FootinMouth
mbl.is Hlutum hent í leikmenn Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott að Dóri...

... býr ekki í Súdan eða Saudi-Arabíu. Ég segi nú ekki annað.
mbl.is Nefnir gítar Múhameð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband