Er jafnaðarmönnum treystandi?

Jájá, við í öðrum flokkum getum örugglega treyst þeim alveg ágætlega. En gallinn er, að þeir geta ekki treyst hverjir öðrum. Wink
mbl.is Þingflokksformaður jafnaðarmanna sagður hafa lekið upplýsingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær datt Rafa Benítez á hausinn?

Og hvenær lagaðist hann aftur? Hann er að nota sama liðið tvisvar í röð. Það held ég að hann hafi aldrei gert áður...eða kannski einu sinni.


Jæja, því miður gæti Liverpool farið að blanda sér í toppbaráttuna nú þegar Rafa Benítez er kominn til vits og ára.

Góðar fréttir fyrir Liverpoolara, en slæmar fréttir fyrir aðra.


mbl.is Liverpool lagði Fulham, 2:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pissaði enginn í ríkissjóð í nótt?

Það fylgir því miður ekki fréttinni, en vísast hafa einhverjir orðið dónó undir berum himni og látið gossa með det samme.

En fréttir af slíku koma vísast ekki fyrr en á mánudagsmorgun.

En hvers vegna var svona rólegt? Veðrið var með skásta móti, ekkert sérstakt að gera annars staðar.

Eða eru skemmtanafíklarnir orðnir rólegir / þreyttir / stilltir / uppteknir / búnir með Viagrað?


Æ hvað ég er feginn að lifa af og vel það án þess að taka þátt í þessum ærslagangi.
mbl.is Óvenju róleg nótt í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofmetin fyrirsæta

Í fyrsta lagi er hún ekki það flott, að útlitið réttlæti það, að hún komist upp með dópneyslu og fleira, og fái endalaus tilboð um fyrirsætustörf.

Í öðru lagi er hún greinilega ekki með mikið á milli eyrnanna. Ég meina, ungfrú Ísland veit t.d. ábyggilega hver er forystumaður stjórnarandstöðunnar.

Í þriðja lagi sé ég ekkert merkilegt við Kate Moss.
mbl.is Hélt að Cameron væri pípari að atvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður ævisaga Guðna spennandi?

Auðvitað er þetta nefnt úr ævisögu Guðna, því ævisöguritarinn er Sigmundur Ernir, sem hafði nú svosem hagsmuna að gæta í fjölmiðlamálinu.

En af hverju er ekki frekar laumað efni sem fólk hefur meiri áhuga á, s.s. samskipti Guðna við beljur og kossaflangs við eina þeirra, og þess háttar.

En mikið vona ég að í ævisögunni finnst ein merkileg saga, sem sögðu hefur verið af GUðna.

 

Málavextir voru þeir, að 17. júní fyrir nokkrum árum varð Suðurlandsskjálftinn mikli. Meðal annars hrundu veggir á Brúnastöðum, ættaróðali Guðna og systkina hans. Sagan segir, að það hafi ekki orðið vegna skjálftans, heldur hafi Guðni verið heima í heimsókn, og hallað sér að vegg, sem hrundi með det samme.

Og þegar Guðni reis upp, dustaði fötin og horfði í kringum sig, hafi hann spurt konuna sína: "Hvað gerðist, af hverju hrundi veggurinn"?

Þá á hún að hafa svarað: "Sá vægir sem vitið hefur meira."


mbl.is Guðni, Davíð og Baugur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert fer Eiður Smári?

Eða fer hann eitthvað?


Þessir kostir eru nú ekki sérlega spennandi, nema e.t.v. að vera með Egga og Bjögga eldri í Hammers.


En að fara frá Barcelona fyrir "smálið" er nú varla eftirsóknarverður kostur, amk ekki núna, þegar hann er farinn að spila aðeins.


En verði eitt af þessum þremur liðum fyrir valinu, er West Ham líklegasti kosturinn.


mbl.is Eiður orðaður við þrjú ensk félög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvala-skoðun vinsæl

Nú, jæja, ég hafði ekki áttað mig á því, að sérstök fyrirtæki hefðu verið stofnuð um lestur þessarar fátæklegu síðu minnar, http://hvala.blog.is, eða öllu heldur "skoðun" síðunnar.


Kannski eru þessi fyrirtæki á vegum óvandaðra manna, sem vilja finna eitthvað misjafnt á síðunni og skoða hana því rækilega. Eða kannski er svona mikill áhugi fyrir þessu bulli mínu, að menn hópist saman til að skoða hana.


Og eitt af þessum hvala-skoðunarfyrirtækjum hefur nú hlotið verðlaun! Sko! Glæsilegt. 


Eða kannski er ég að misskilja eitthvað hérna....Wink


mbl.is Hvalaskoðunarfyrirtæki fékk nýsköpunarverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styð kröfur stúdenta

Ég hef frá upphafi verið meðal þaulsetnustu manna á Þjóðarbókhlöðu, og það þrátt fyrir að vera búinn með námið. Ég hef bara margt að gera þarna.


Fólkið þarna er fyrsta flokks, frábært afgreiðslufólk og allt í fínu lagi, að mínu mati, nema hvað opnunartíminn er of stuttur. Alltof stuttur! Og þá er ég ekki aðeins að tala um almennt rými, heldur ekki síður Þjóðdeild.


En þetta er ekki safninu að "kenna", heldur eru fjárframlög naumt skömmtuð. Mér finnst að Ríkið ætti nú að standa almennilega að þessu og tryggja, að það sé hægt að halda safninu opnu frá 8.15-11 á virkum dögum, og 9-17 (eða 19) um helgar, og þá bæði almennt rými og Þjóðdeild.


En ég tek ofan hattinn minn fyrir starfsfólki Þjóðarbókhlöðu, jafnvel honum Eddni. :)


En ég vorkenni líka stúdentunum að þurfa að hanga þarna. Miklu betra bara að leigja sér litla skrifstofu úti í bæ, nokkrir saman. Þarf ekki að kosta mikið. 

 


mbl.is Krefjast þess að Þjóðarbókhlaðan verði opin lengur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðorð mafíunnar

Sú mafía, sem ég er einna tengdastur, kallast Hellismafían og ku víst stjórna skáklífi á Íslandi, beint eða óbeint. Mafía þessi er mjög oft nefnd á umræðuhorni skákmanna, aðallega af mönnum sem er uppsigað við Helli. Einnig nota Hellismenn þetta sjálfir, í gríni.

En nú var ég að finna hin 10 boðorð Hellismafíunnar og birti hérmeð:

 

Reglurnar 10 eru eftirfarandi:

  1. Enginn getur gengið í Hellismafíuna, nema með leyfi Don Gunzós.

     

     

  2. Aldrei horfa á eiginkonur annarra mafíósa.

     

     

  3. Aldrei láta sjá sig í návist TR-inga, nema á skákmótum.

     

     

  4. Fara sem oftast á krár og klúbba.

     

     

  5. Alltaf vera til þjónustu reiðubúinn því Hellir Nostra er skylda - jafnvel þótt eiginkonan sé í þann mund að fæða barn.

     

     

  6. Mæta verður á alla fundi sem boðað er til.

     

     

  7. Sýna verður Don Gunzó og Don Húnó virðingu.

     

     

  8. Þegar óskað er eftir teoríum verður svarið að vera sannleikanum samkvæmt.

     

     

  9. Ekki má ráðstafa peningum sem tilheyra öðrum eða öðrum taflfélögum.

     

     

  10. Fólk sem ekki getur tilheyrt Hellismafíunni: Hver sá sem á nákominn ættingja í TR, hver sá sem á náinn ættingja í briddsi, hver sá sem hegðar sér illa og virðir ekki siðareglur og gildi.

mbl.is Lögreglan finnur 10 boðorð mafíunnar á Sikiley
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TR bendlað við verðlagseftirlit!

skak-logo1Eins og ég hef áður sagt, er hið orginal TR ekki Tryggingastofnun ríkisins, þó hún hafi stolið þessari skammstöfun af Taflfélagi Reykjavíkur, sem hefur verið skammstafað TR í meira en hundrað ár.


En ég get fullvissað lesendur og skákáhugamenn um, að Taflfélag Reykjavíkur, þ.e. TR, stundar ekki verðlagseftirlit, hvorki á tannlæknum né öðrum.

mbl.is Tannlæknar sætta sig ekki við verðlagseftirlit TR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband