Föstudagur, 5. október 2007
Er ekki hægt að arrangera þessu þannig...
...að bæði liðin tapi.
Annars er jafntefli ásættanlegustu úrslitin, fyrir mig a.m.k.
![]() |
Vinnur Tottenham á Anfield í fyrsta sinn í 14 ár? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. október 2007
Dagur í Antalya
Jæja, áfram heldur systemið.
Ótrúlegt letilíf á manni í þessu veðri. Maður flatmagaði á ströndinni í morgun og synti síðan út að "bauju" og til baka. Þokkalegt, takk fyrir; eins og Rúnar Berg myndi segja.
En kjúklingarnir þorðu ekki í sjóinn.
Liðsmenn íslenska hópsins hittust í mat áðan, reyndar í tveimur hollum. Síðan fóru menn að stúdera fyrir daginn. TRingar fá Bauna á eftir, Bromann, Rodgaard og félaga, en Hellismenn fá sterka sveit frá Bosníu.
Húnninn bloggaði áðan á http://hellir.blog.is og nenni ég hreinlega ekki að segja neitt meira, en vísa á þá slóð með frekari upplýsingar.
Áfram Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. október 2007
Kemer, Antalya: 3. dagur
Jæja, þriðji dagurinn hér í Kemer er runninn upp. Og fallegur dagur, ef ég má bæta því við. Sólin skín í heiði og glampar fallega á fjallahringinn hér umhverfis, en hann ku vera hluti af Taurus fjallgarðinum. En umhverfið hér er einstaklega fagurt.
Jæja, gærdagurinn.
Yðar einlægur átti sinn erfiðasta dag hingað til. Af einhverjum ástæðum hafði það farist fyrir að tilkynna okkur TRingum, að greiða ætti hótelið fyrir kl. 20.00 í gær, að öðrum kosti yrði liðinu vikið úr mótinu. Þetta heyrði liðsstjóri fyrst fyrir 1. umferð í gær og brást fljótt við. Fór ég ófáar ferðirnar frá keppnisstað og upp í lobbí, sem er í hinum endanum á hótelsvæðinu, og eltist við leikmenn liðsins þegar þeir stóðu upp og fóru fram í vatnið, til að segja þeim fréttirnar og biðja þá að drífa sig strax eftir skák. Þegar leið á var maður orðinn verulega þreyttur á þessu öllu, og til að kóróna vitleysuna lét Hr. Myi Greni á sér kræla. Ég sem hélt ég væri laus við þann óvandaða karakter.
En þetta náðist. Síðasti keppandinn kláraði skákina 7:52 og settum við TRmet í spretthlaupum yfir hótelsvæðið og náðum á mótshaldaraborðið kl. 19:59. Málið leyst. Það var þreyttur captain sem settist að málsverði með strákunum í liðinu um hálf níu leytið. Kl.9 var maður kominn heim á herbergi og steinlá eins og ég væri að spila með KR í fótbolta.
Þegar maður rankaði loksins við úr rotinu var kl. orðin 11 og strákarnir komnir niður í útileikhús/kaffihús, þar sem við hittumst gjarnan á kvöldin, metum mótherja gærdagsins, förum yfir framvindu dagsins og rifjum upp spaugileg atvik úr fyrri ferðum. Og Kristján Eðvarðsson hefur lofað að taka skjaldbökudansinn. Ég meina, fyrir þá sjón er ferðin hingað orðin velnegld með fullnægjandi ástæðum, þ.e. vel þess virði að koma hingað þó ekki sé nema til að sjá þann viðburð.
En jæja, að umferðinni.
TRingar stóðu sig vel í gær gegn ofurstórmeistaraliði Bosníu. Ég hafði opinberlega þá stefnu að ná 2.5/5 á efstu borðunum og treysta á að Jón Viktor ynni á 6. borði. Mótherji hans hefur reyndar 2645 og er grjótharður. En undir niðri var ég þakklátur fyrir hvern punkt sem fékkst, fyrirfram amk.
Niðurstaðan var reyndar að ég er pissfúll með að fá bara tvo vinninga af sex. Fyrir umferðina hefði ég verið glaður með þetta, en eins og skákirnar tefldust, er ég það ekki. En það er ekki nóg að fá góðar stöður, því stundum fer styrkleikamunurinn að segja til sín á slíkum stundum.
Hannes hirti peð af næst stigahæsta skákmanni heims, Vassily Ivanchuk, sem er ein sérlundaðasti skákmaður heims, og er þar af nógum að taka svosem. En hann er mikill snillingur, eins og sást, þegar hann nýtti sér minnstu ónákvæmni Hannesar til sigurs. Þreytt, en Hannes hefði ekki tapað þessu gegn mörgum öðrum. Ivan sjúki hefur verið í ótrúlegu formi allt þetta ár og það síðasta, og tapar nær aldrei skák en vinnur flestar.
Nataf gerði auðvelt jafntefli gegn Almasi (2691!): Þetta var fyrsta skákin til að klárast og var þungu fargi af mér létt, því við yrðum þó amk ekki "eggjaðir", þ.e. núllaðir út.
Þröstur vann peð og síðan annað af Movsesian (2680 c.a.), sem tefldi fyrir Helli á 1. borði í síðasta Íslandsmóti skákfélaga. Þröstur hafði reyndar tvípeð og mislitir biskupar voru, og hrókur á kjaft, þegar upp var staðið. Jafntefli var samið, en að sögn Þrastar missti hann af vinningsleið í tímahrakinu. Roar.
Stefán tók Ivan grimma Sokolov í bakaríið, og það ósmurt algjörlega. Ivan var tapsár að vanda, og þegar allt stefndi í sigur Stebba þegar hann náði 40 leikja markinu, var Ivan að ganga um gólf, talandi við sjálfan sig, eða stóð úti í horni, hristi hausinn og var talandi í eigin barm, og varla fögur orð. En glæsilegur sigur hjá Stebba.
Arnar náði um það bil að jafna taflið gegn Short og var ekkert að gerast í stöðunni og allt stefndi í jafntefli þegar Addi lék þremur slæmum leikjum í röð og það er meira en má gera gegn Short. Tap var reyndin.
Jón VIktor var síðastur að klára, eða rétt fyrir átta. Staðan var í járnum lengst af en smám saman tók að halla á okkar mann. Hann átti jafnteflisleið amk einu sinni í endataflinu, en erfitt að sjá alltaf bestu leikina þegar tíminn er naumur. Tap.
Sem sagt 4-2.
Þetta var samt ágætis úrslit, ekki síst þar eð TRingar voru enn þreyttir eftir þetta langa ferðalag. Menn fóru síðan flestir snemma í háttinn í gær og koma hressir til leiks í dag. Liðsstjóri mun fara fyrir hópferð á ströndina um 10 (7 að ísl. tíma) og síðan verður tekið á Baununum í dag. Þar er Íslandsvinurinn Þorbjörg Brómann á 1. borði. En Hannes hefur lofað að væóleita hann á skákborðinu í dag. En amk, allt minna en 5-1 sigur verður talið ósigur.
Hellismenn fóru létt með afarslaka sveit Tyrkja, sem veittu aðeins mótspyrnu á 1 og 2. borði. Bragi gerði jafntefli á 1. borði, eftir langa þjáningu en mótherji hans var með einhvern kvilla í hausnum og tefldi 60 leiki fræðilega steindautt jafntefli með mislitum biskupum. Jafnvel dómararnir hristu hausinn yfir þessari vitleysu, en þetta var síðasta skákin til að klárast.
Bjössi missteig sig illilega í byrjuninni, en náði að trikka hann og vinna. Daði vann fallegan fórnarsigur. Hinir unnu líka flott.
EN þar eð ég er að verða batteríslaus verð ég að láta þetta nægja í bili.
Áfram Ísland
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 5. október 2007
Skytturnar á batavegi
EN framundan eru tveir heimaleikir gegn botnliðunum. 6 stig er krafan. Áfram Arsenal.
![]() |
Margir á batavegi hjá Arsenal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. október 2007
2. dagur framhald
Jæja, maður tók smá syrpu með þýsku ljóskunum á ströndinni, þ.e. í beinni þýðingu, maður lagði sig smá stund eftir matinn.
En hér er semsagt komið nýtt hugtak, sem varð til í eftirfarandi atviki:
A: Væri nú gaman að fara með þessum þýsku ljóskum þarna á ströndina í fyrramálið.
B: Æ, ég held ég leggi mig frekar smástund eftir matinn.
En jæja, komið hádegi hér. Ég var eitthvað svo domm áðan, svo ég skrapp í laugina, en hún var skítköld og óþægileg, og sólin ekki enn farin að skína. Ég labbaði því niðrá strönd, en þar þekkti ég enga nema Fionu, sem kom aðeins við sögu í bloggi mínu frá Lúx í sumar. Hún hefur kynnst mörgum Íslendingum og er "Íslandsvinur" á sinn einstaka hátt.
Bosnumenn stilla upp sínu sterkasta liði gegn TR, og ekki að undra. Við erum ekki í VIP álmunni fyrir ekki neitt!
Shortarinn hræðist greinilega Adda bé, en hann hefur setið hér að stúdera í nær allan morgun. Kannski hann sé að leita að svari gegn Fílagambítnum?
En jæja, menn eru misjafnlega glaðir í morgun. Púlararnir læðast hér með fram veggjum.Jæja, ágætt. Við Arsenal menn eru hins vegar brattir. "Beeeeeeeeeeeestir skiluru", eins og Bjössi segir. Taka skal fram, að hér er það refsivert að tala illa um Arsenal, en svo vill til, að báðir liðsstjórarnir eru Arsenal-menn og það í harðari og ofstækisfyllri kantinum.
Sólin er farin að skína og nú fer að vera erfðara að ganga úti. Ég var svo forsjáll að hafa með mér nægar birgðir af bolum, en það hefur gengið mjög hart á birgðirnar, svo mér sýnist allt stefna í stefnumót við dry cleaning þjónustu hótelsins.
JÆja, best að fara að koma sér heim á herbergi og hringja út liðið. Liðsfundur coming up.
Áfram Ísland.
Fimmtudagur, 4. október 2007
Kemer Antalya: 2. dagur
Jæja, þetta fór svona ok í gær.
Við T.R.ingar unnum litháískt lið 5-1, þar sem Hannes og Þröstur gerðu jafntefli, en hinir unnu. Þröstur fékk á sig "Gelfand", þ.e. óbrjótandi múr Petroff varnar og jafntefli var niðurstaðan.
Hannes vann peð, eða fékk það fórnað á sig, og var með þetta solid, þegar gaurinn trikkaði hann. Við höldum að hinn hafi nú átt easy vinningsleið, en Hannes er seigur og bjargaði sér.
Hinir unnu frekar auðveldlega. Litháirnir voru hins vegar mun betri en stigin segja til um, en þeir tefldu alveg prýðilega,flestir amk.
Þar sem ég sit hér á Lobby Cafe gengur framhjá Short kallinn: hann fær Arnar Gunnarsson í dag. Spurning hvort Addi fái sér ekki bara einn shortara í dag, dúa.
Já, T.R. fær ofursveit Bosna frá Sarajevo í dag, þar sem Nigel Short er á 5. borði. Það munar ekki um minna. Sá á 6. borði er með 2645!
Erfitt að vera liðsstjóri á svona dögum, þegar maður mun fagna hverjum punkti sem næst. Og Hannes fær Ivanchuk, næst stigahæsta skákmann heims, á 1. borði. Úff.
Hellismenn stóðu sig mjög vel í gær. Bragi tefldi vel, fórnaði skiptamun og vonaði maður að hann fengi a.m.k.hálfan út úr þessu, en Karen, Karen Asrian sveið hann að lokum. Bjössi virtist vera að taka Lputian, en Armeninn hélt jöfnu eftir mikla baráttu. RObbi átti jafntefli held ég í endatafli, en var sviðinn. SIg. Daði fékk frábæra stöðu gegn Vaganjan með svörtu og skilst mér að hann hafi átt vænleg færi um tíma, en hafi ekki ratað á rétta framhaldið. En vel teflt.
Kristján og RB töpuðu fljótlega, tiltölulega, en hinir fjórir börðust vel og eiga heiður skilinn fyrir baráttua.
Þeir fá Skottu í dag og hljóta að vinna amk 5-1, ef ekki bara 6-0. Við T.R. ingar stefnum hins vegar á, að vera ekki eggjaðir.
En jæja, ég vaknaði 6 í morgun og fór í breakfastið. Þar hitti ég hina gömlu kallana, Rúnar Berg og Róbert Bigtime. Þetta hlýtur að vera met hjá íslenskri sveit erlendis, eða sveitum, að þrír menn mæti kl. 7 í breakfast. A.m.k. verður að fara aftur til daga fjórmenningaklíkunnar til að finna annað eins.
Annars eru menn frekar þreyttir og flestir fóru mjög snemma í bælið í gærkvöldi. Unglingarnir sátu aðeins lengur, fyrst við að sjá Besiktast spila gegn Porto, og síðan sjá Liverpool tapa gegn Marseille! Við BJössi munum vísast salta aðeins Púlarana hérna, solid. Og MIlan tapaði fyrir Celtic!! Það er svona svipað og að Valur Reykjavík myndi tapa fyrir Val Reyðarfirði
En jæja, hitinn var vel yfir 20 gráður kl. í morgun. Þegar við lentum hér á miðnætti í fyrrakvöld var hitinn tæpar 30 gráður. Hér er semsagt MJÖG heitt, en loftræstingin ágæt, bæði inni á hótelinu (og á herbergjunum) og á skákstað.
Hér er semsagt allt í gúddí, gúddí. Menn hafa ekki orðið fyrir hnjaski, og Bragi hefur jafnað sig af pestinni, að mestu a.m.k. Aðstæður hér eru einfaldlega frábærar og allt vel skipulagt. Og herbergin!!
'Eg er með einskonar svítu, sem er tvisvar sinnum stærri en herbergið hjá Braga og Bjössa! Og hér er allt til alls, fjöldi sundlauga og annarrar afþreyingar. Sér heimur útaf fyrir sig. Og bara einn KRingur á svæðinu.
En jæja, best að leggja sig smástund. Síðan tekur við ferð á ströndina með Robba og þýsku ljóskunum tveimur! ok, ég varð að segja þetta! Við gömlu menninir erum greinilega ekki alveg dauðir úr öllum æðum.
En að lokum: solid hvatning frá liðsstjóra TR. Ef við vinnum Bosna mun ég þurfa að fara niður til frisörsins, snoða mig algjörlega og fara í vaxmeðferð á bringunni. Hvað maður gerir ekki fyrir liðið??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 4. október 2007
Mourinho til Fram
Jæja, það væri e.t.v. ekki svo vitlaust.
![]() |
Ólafur Þórðarson hættur sem þjálfari Fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 3. október 2007
1. umferð hafin
Jæja, héðan úr 30+ stiga svækju í Kemer, Antalyu, er svosem allt gott að frétta. Bragi hefur jafnað sig aðeins og mætir galvaskur gegn sterkum GM. Stefán hefur einnig hrist af sér slæmsku.
Aðstæður hér eru til mikillar fyrirmyndar. Hótelsvæðið er ótrúlega flott, herbergin mjög fín (amk hjá TRingum, sem eru í "VIP álmunni!") og skákstaðurinn er flottur. Ég man eiginlega ekki eftir svona snilld lengi. Hér er greinilega mikill metnaður lagður í, að gera allt sem best.
Nú, að viðureign TRinga:
Hannes er með hvítt gegn náunga með 2320. Upp kom Jaenisch/Latvian bræðingur og hef ég ekki trú á öðru en að Hannes taki þetta. En þetta er samt ekkert ljóst, svartur fær counter fyrir peð, sem mér sýndist hann vera að fórna áðan.
Nataf teflir afbrigði, sem ég held að heiti Kalashnikov, en það er Svesnikov, án þess að leika Rf6 strax, heldur 2...Rc6, 4...e5, 5...d6, þ.e. sama og Votava lék gegn mér í síðustu Deildó. Hann hefur teflt þetta mjög hratt....en hinn hugsað. Þetta er semsagt á eldhúsborðinu ennþá.
Þrölli fékk Petroff á móti sér og notaði afbrigðið, sem hefur verið í tísku, en Gelfand hefur væóleitað í skákunum á síðasta heimsmeistaramóti. Þrölli tekur hann samt, auðvitað.
Stefán er að tefla 1...Rc6, Nimzowitsch bragðið, sem hann beitti fyrst gegn mér á Skákþingi Íslands. Allt í járnum ennþá.
Addi tefldi Réti og mun smám saman kyrkja andstæðing sinn, spái ég.
Jón Viktor er að tefla drekann með svörtu. Allt í hárnum
___
Bragi teflir Najdorf gegn GManum, en Armeninn svaraði með Be3, að sjálfsögðu, en í stað Rb3, í andsvari við e5, lék hann Rf5 og síðan Rg3. Merkilegt.
Húnó er með hvítt og teflir Drottingarpeðsbyrjun.
Daði teflir Kóngsindverja gegn Vaganian. Hann teflir varíant, sem er að komast úr tísku fyrir annan, sem jafnar taflir örugglega. En Vaggi hefur teflt svona í 40 ár og kann þetta vísast. En Daði hlýtur að vera vel undirbúinn úr því hann fer í þetta svona.
Robbi tók skoska leikinn á sinn GM. Staðan í járnum.
Ítalskur leikur hjá Stjána Eðvarðs, sem hefur lofað að taka skjaldbökudansinn fræga, nái hann punkti í dag.
Rúnar Berg er að tefla "eitthvað gambítsystem", eins og hann segir gjarnan sjálfur, gegn Sikileyjarvörn.
En jæja, umferðin farin af stað. Og allt í ókídókíinu só far.
Over and át frá Tyrklandi. Áfram Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 3. október 2007
Kemer, Antalya: EM félagsliða 1. dagur
Jæja, kominn í netsamband. Loksins.
Þetta var eitt ömurlegasta ferðalag, sem við strákarnir höfum farið í og erum við þó flestir mjög reyndir í svona löguðu.
En við TR ingar látum ekki slá okkur svo auðveldlega út af laginu.
Kl.3.45 að morgni sendi ég leigara heim til Stefáns Kristjánssonar og ferðin var hafin. Já, ég er semsagt "captain" í hinu sigursæla TRliði. Þaðan var haldið áfram að pikka upp strákana og síðan mættu menn galvaskir út á völl um 5 leytið.
Þetta gekk allt vel, uns komið var til Frankfurt. Þar beið okkar löng bið á flugvellinum, en Frankfurt er ekki besti flugvöllur í heimi fyrir slíkt. Menn voru orðnir þreyttir, bæði við TRingar og Hellismenn.
Eins og jafnan áður gleymist það í þessum ferðum, að þessi tvö lið munu berjast á banaspjótum daginn eftir heimkomuna, en hér er öll dýrin í skóginum vinir.
Ferðin til Antalyu var hræðileg. Flugvélin var troðin, og aðstæður slæmar, enda lággjaldafélag í dýrari kantinum sem flaug okkur, Morozevich, Svíinum, Peter Heine og einstaka öðrum.
VIð höfðum hitt Þröst í Frankfurt, en Hannes og Nataf mættu okkur í Antalyu.
Frá Antalyu var farið með skjaldbökubílstjóra til Kemer og tók ferðin langan, langan tíma og voru menn alveg að missa sig í þröngum bussinum. Síðan voru Bragi og Stebbi orðnir lasnir, en aðrir bara aumir og þreyttir.
En ok, við komum á staðinn kl. 2.30 í nótt. Menn hittust svo yfir kaffisopa og tóku stöðuna, fundu Nataf og svo framvegis. Um 4 leytið skreið ég í bólið. Gjörsamlega búinn.
Nú kl. 8 hringdi síminn og vakti mig skv. stillingu. Fór ég skoðunarferð um þetta frábæra hótel, sem er heimur út af fyrir sig. Hitti svo Húninn í morgunmat, en hann er captain Hellisbúa og skiluðum við inn liðsmönnum dagsins, svona eins konar leikskýrsla.
Ég hvíli mig hiklaust í hverri umferð enda eru aðstæður hér hinar bestu og ég nenni ekki að tefla.
En a.m.k: ég er búinn að redda nafnspjöldunum fyrir strákana og nú er liðsfundur kl. 1 (10 að ísl. tíma), þar sem staðan er tekin.
Við TRingar fáum litháíska sveit og er krafa liðsstjóra að sigur vinnist 6-0. EKkert annað kemur til greina.
Hellismenn fá Armenanna sem eru með rosalega þétt lið, þar sem allir liðsmenn þeirra eru með um 2600 og yfir í skákstigum talið.
Markmið Húnsins liðstjóra er að verða ekki eggjaður, þ.e. að Hellismenn "grísi inn amk einu jafntefli, en annars get ég ekki hugsað um þetta fyrr en ég fæ úrslitin frá Arsenal leiknum."
Jæja, umferðin byrjar 15.00 í dag að staðartíma, eða 12 á hádegi heima á Fróni.
Áfram Ísland
Kv
Il Capitano
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 3. október 2007
Hógværð stjarnanna
Ég skal taka að mér að kenna kvenkyns stjörnum á aldrinum 20-30 ára. Ég er alkunnur fyrir hógværð.
Ég verð ekki lengi að redda þessu.
![]() |
Clooney segir að kenna þurfi frægu fólki hógværð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)