Beckham ekki í landsliðið!

Og af hverju ekki? Jú, hann er ekki í leikæfingu.

það hefur nú ekki stoppað enska landsliðið hingað til.


mbl.is Beckham ekki í enska landsliðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullur stuðningur við Akureyringa

skakfelaglogoJá, mér sýnist þeir vera komnir á fullu út í pólítíkina....viðskiptapólítíkina. Menn geta slegið á myndina eða hér til að sjá frekar hvað SA stendur fyrir!

150px-SA-Logo_svgEn síðan er líka hið þýska SA.
mbl.is SA vilja fjölga konum í stjórnunarstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlegið hressilega í beinni útsendingu

Og ekkert skrítið
Takk Xbiti fyrir að finna þetta.

Fischer gengur aftur

Já og það í nýrri Hollywood mynd. En vonandi verður þessi mynd til að efla skákáhugann, en því miður virðist skákin vera á undanhaldi víða um heim, ekki síst á Íslandi.
mbl.is Hollywoodmynd um Fischer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af spjöldum sögunnar 2: Fyrstu stórveldi Mesópótamíu

    Sargon I., konungur í Akkad, lagði undir sig súmersku borgríkin um 2350 f. Kr., ásamt því að þenja tjaldhæla sína í norður, svo Mesópótamía komst öll á valdi hans. Hann var fyrsti semíski konungurinn, sem eitthvað verulega kvað að, og bar hann súmerska menningu, tungumál og átrúnað út til hinna nýju þegna sinna.

Sargon var fyrsti einræðisherra sögunnar og stjórnaði með harðri hendi í krafti rúmlega 5000 manna fastahers. Akkadíski herinn virðist hafa verið frumkvöðull að eða leifturstríði, þar sem léttvopnaðar herdeildir hans æddu yfir grundir og komu andstæðingum sínum í opna skjöldu.


UR 2004Um 2100 náðu Súmerar sjálfstæði sínu til baka, þó án þess að snúa aftur til valddreifingar gamla tímans. Borgin Úr varð ráðandi að nýju, en rúmlega einni öld síðar varð síðasta sólarlag Súmera. Semískar þjóðir voru nú allsráðandi í Mesópótamíu, einkum fyrir tilverknað Babýlonar, þar sem Amorítar og skyldir ættbálkar réðu ríkjum. (Mynd: Ur, 2004)


Babýloníuríkið hið fyrra náði um tíma yfir stærsta hluta hins þekkta heims. Hammúrabi (1728 -1686 f. Kr.) er þekktastur konunga þess. Hann var í upphafi herkonungur, en þegar veldi hann var orðið traust, hóf hann að styrkja innviði ríkisins með því, að afmá sjálfsstjórn einstakra héraða, en treysta bönd þeirra með millisvæðaverslun.  Lögbókin mikla er þó frægasta afrek Hammurabis, en hún var sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum, að því að talið er.


Með henni var stjórnarfarslegum endurbótum komið á, þar sem til dæmis hið veraldlega vald var aðskilið frá hinu trúarlega. Hér kom fyrst fram reglan „auga fyrir auga, tönn fyrir tönn”, en áður höfðu fébætur verið taldar hæfileg refsing fyrir afbrot og líkamsmeiðingar. Konungurinn fékk því fullveldi utan áhrifavalds hofprestanna, sem skiptu sér lítið af stjórnmálum á tíma Hammurabis.


180px-Babylon_ishtargateHofprestarnir voru hins vegar önnum kafnir í alls kyns dulspeki, svo sem útreikningum á gangi himintunglanna og áhrifum þeirra á mannfólkið. Þeir byggðu á skilgreiningu Egypta á árinu, sem skipt var í tólf mánuði, en einnig klufu þeir mánuði í vikur og vikur í sjö daga, degi og nótt í tólf stundir hvoru fyrir sig, og hverri stund í sextíu mínútur. Menning Babyloníumanna var þó að grunni til fengin frá Súmerum, en endurbætt og lagfærð að þörfum.

Austast í frjósama hálfmánanum, við botn Persaflóa austan Tígrísfljóts, höfðu risið menningarsamfélög Elamíta og skyldra þjóða, sem sumar hverjar eru taldar hafa verið af indó-evrópskum uppruna. Elamítar voru lengst af í forystu austurbyggja og reistu veglega höfuðborg í Súsa., sem í dag liggur nánast á landamærum Írans og Íraks.

Húrríar voru indó-evrópumenn, sem settust að í norðurhluta Mesópótamíu og stofnuðu Mitanní-ríkið. Siðir þeirra voru töluvert framandi þeim, sem ráðandi voru á svæðinu, en til að mynda dýrkaði aðalsætt þeirra guðina Indra, Mitra og Varuna, sem enn lifa í hindúasið. Með Húrríum barst hesturinn til Mesópótamíu og þá jafnframt hestdregnir hervagnar. Um tíma réðu þeir svæðinu frá Kanaanslandi og allt til ríkis Kassíta, fjallafólksins sem ríkti austan Tígrisfljóts.



Einnig má nefna Aramea, semíska hirðingjaþjóð sem lengi var ráðandi í Sýrlandi og héldu höfuðborg í Damaskus. Sýrlendingar máttu löngum þola ágang og yfirráð nágrannaríkjanna, enda réðu þeir verslunarleiðunum frá Egyptalandi, til Fönikíu, og áfram til Mesópótamíu. Þeir áttu þó einstaka stórveldi, inn á milli hersetutíma erlendra ríkja.


Fönikíumenn
réðu lengi verslunarleiðum austurhluta Miðjarðarhafs og reistu fjölda verslunarhafna á strandlengjunni. Kjarni veldis þeirra var í núverandi Líbanon, en á stórveldistíma þeirra réðu þeir yfir nýlendum víða um Miðjarðarhafið, allt vestur til Spánar. Ein þekktasta borg þeirra var Karþagó. Segja má, að á miðað við tímaskeið hafi Fönikar verið mesta verslunarþjóð allra tíma.



Veldi Babýloníumanna varðist lengi vel ásókn nágrannaríkjanna, en varð að lokum að láta undan síga. Um 1530 f. Kr. réðist fjallaþjóðin Kassítar óvænt á Babýlon og steypti síðasta konungi Amoríta af stóli. Um 1160 f. Kr. hrundi veldi Kassíta, þegar Elamítar réðust á og rændu Babýlon. Stjórnarár Kassíta voru hins vegar lítið eftirminnileg, þar sem hnignun var ráðandi á flestum sviðum og voru konungar þeirra lengi vel skattþegnar Assýríu, næsta stórveldis Mesópótamíu.

Assýríumenn voru samansafn herskárra ættbálka, sem settust að í norðurhluta Mesópótamíu um það bil 2500 f. Kr., og reistu höfuðborg sína í Assúr, sem nefnd var eftir höfuðguði þeirra. Hið forn-assýríska ríki (1800–1375 f. Kr.) hófst með útþennslu Assýríukonungs í norðurhluta Babýloníu, en varð síðan skattskylt Hammurabi og síðar Húrríum. Assýríska miðríkið (1375–1047 f. Kr.) hófst þegar Assýringar náðu að hrinda oki Húrría af baki sér með hjálp Hetíta.


Næstu misserin var veldi Assýringa í blóma og reis þá borgin Níníve, sem varð upp frá því höfuðborg Assýríu, glæsilega skrýdd lágmyndum og öðrum listaverkum. Assýringar háðu mörg útþennslustríð, þar sem sigraðar þjóðir voru miskunnarlaust hnepptar í þrældóm og fluttar nauðugar frá heimkynnum sínum. Við hrun Hetítaríkisins um 1200 f. Kr. hörfuðu Assýringar aftur til assýríska heimalandsins, sem náði frá Assúr til Níníve.


Assýríska nýríkið brast á um 1100 f. Kr., þegar Tilgat Pilneser þandi veldi sitt allt norður til Armeníu, vestur til Gasa og suður eftir Mesópótamíu til Persaflóa. Um hálfri öld síðar höfðu þeir hrakist til baka og varist ásókn nágrannaríkjanna innan marka heimalandsins.



270px-Hattusa_liongateHetítar, eða Hittítar, voru lengi ráðandi á svæðinu frá vesturhluta Litlu-Asíu og niður eftir frjósama hálfmánanum, allt suður til Elam. Kjarni veldis þeirra var í Anatolíu, á hálendi núverandi Tyrklands og var höfuðborg þeirra, Hattusas (mynd af ljónahliði borgarinnar), sennilega grundvölluð um 1900 f. Kr.. Um 1800 höfðu Hetítar náð undir sig stærstum hluta Litlu-Asíu og hófu eftir það að þenja veldi sitt suður á bóginn. Mursilis I (um 1620-1590 f.Kr.) var sennilega þekktasti herkonungur Hetíta, en hann afnam veldi konungsættar Hamurabis í Babýlon.


Frá tíð Suppilulimas I. (1344 -1322) urðu Hetítar ráðandi í Miðausturlöndum, en við innrásir svokallaðra „sæfarendaþjóða” um 1250 skrapp veldi þeirra saman. Hálfri öld síðar leið Hetítaríkið endanlega undir lok, eftir 600 ára stórveldissögu. Þótt menning Hetíta hafi lifað áfram í rúm 500 ár, hélt hún aðeins velli í valdalausum og dreifðum borgríkjum.


En hver var arfleifð þessa mikla stórveldis? Hetítar höfðu rík samskipti við Mesópótamíu og þáðu þaðan ritlist, kunnáttu í stærð- og stjörnufræði, og margt fleira. Þeir endurbættu löggjöf Hammúrabis, þar sem refsingar við lögbrotum voru mildaðar og færðar aftur í það horf, sem verið hafði í Súmer, þar sem sektargreiðslur 280px-Hittite_Empirehöfðu verið ráðandi, en ekki líkamlegar refsingar. Frá upprunalegum heimkynnum sínum, rússnesku steppunum, fluttu þeir með sér margvíslega kunnáttu í hernaði, þar á meðal áherslu á hreyfanlegt og léttbúið riddaralið og með þeirri tækni sinni voru þeir ósigrandi á hátindi veldis síns, um það bil 1500–1300 f. Kr. Meðal annars voru þeir brautryðjendur í smíði og notkun stríðsvagna. Helsta framlag Hetíta til þróunar siðmenningar fólst þó í vinnslu og meðhöndlun járns, sem þótti til dæmis betra í vopnagerð en koparinn, sem þjóðir Mesópótamíu og Nílardals notuðu áður.


Hernaður skipti þá miklu og eru guðir þeirra, einkum þrumuguðinn Tesúb, til að mynda yfirleitt sýndir í fullum herklæðum, vel vopnaðir og vígalegir að sjá. Gyðjudýrkun Hetíta átti eftir að breiðast víða út um Miðausturlönd og víðar, þar sem hin mikla móðir lands og þjóðar, verndari ríkis og konungs, var tilbeðin með umfangsmeira móti, en áður hafði þekkst. Vísast hefur goðaheimur Hetíta verið kjarninn að grískri goðafræði, en leifar Hetíta fluttust vestur á bóginn og settust að á Balkanskaga c.a. 3.000 - 2.000 f. Kr., og runnu inn í grískar þjóðir, sem þar voru að koma fram.

Þessi ríki voru mjög athygli verð í ljósi sögunnar.


Heimilislæknar

Nú var heimilislæknir að gerast borgarstjóri, svo þar fækkar um einn. Nú, gamli heimilislæknirinn minn er orðinn læknir á slysó og unir sér þar betur.

Ætli heimilislæknum sé svona illa borgað, a.m.k. hlutfallslega, að þeir nenni ekki að standa í þessu og sigli á önnur mið?
mbl.is Útlit fyrir mikinn skort á heimilislæknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á mér draum...

...um straum.

En hann varð að martröð.

mbl.is Fékk í sig rafstraum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af spjöldum sögunnar 1: Súmer og upphaf borgríkja

Það svæði, sem kallað er Frjósami hálfmáninn, liggur í hálfmánalöguðum boga frá botni Persaflóa, norður núverandi Írak til Sýrlands og þaðan niður eftir strandlengju Miðjarðarhafs til Ísraels. Svæðið var afar frjósamt og auðugt, jafnvel áður en menn hófu að nýta þar jarðolíu og gas sér til framdráttar. Það var í þessum heimshluta, að siðmenningin hófst fyrir alvöru og fyrstu menningarríkin risu. Þar komu líka fram flest sumerkortþau stórveldi, sem garðu garðinn frægan hið forna, allt frá Súmerum til Persa. Í millitíðinni hafði siðmenning þróast í átt til nútíma í ríkjum Babýloníumanna og Assýringa, Föníkíumanna, Ísraelsmanna, Húrríta, Hetíta og semískra ættflokka á eyðimerkursvæðunum vestan Efratar. Fyrsta menningarþjóðin, Súmerar, voru að mörgu leyti sú hin merkilegasta þeirra. 



Súmer  ~ fyrsta menningarþjóðin

Heimildir gefa tilefni til að ætla, að skömmu eftir 4.000 f. Kr. hafi litlar borgir tekið að myndast í óshólmum stórfljóta Mesópótamíu. Það varð þó ekki fyrr en um 3.500 f. Kr., að íbúarnir, sem kölluðu land sitt Súmer, eignuðust fjölmenna borg, Úr, syðst í landinu.


Þjóðfélag Súmera var grundvallað á bandalagi borgríkja, sem höfðu í grundvallaratriðum sama tungumál, sömu menningu og stjórnskipun. Borgríkið var kjarni allrar tilveru þeirra, þar sem hvert þeirra var talið eign einhvers ákveðin guðs og þannig tilheyrðu íbúarnir guði sínum. Kjarni hverrar borgar var því musterið, sem um síðir varð einskonar pýramídi eða ziggurat, en umhverfis það á allar hliðar voru híbýli manna og dýra. Borginni tilheyrði svo ræktarland, sem hafði eigið áveitukerfi eða vatnsuppsprettur.
ziggurat

Grundvallarsamskipti almúgamanna og presta voru byggð á undirgefni hinna fyrrnefndu, sem þjóna áttu hinum síðarnefndu, sem væru fulltrúar guðanna. Hofprestarnir voru í raun ráðandi meðal Súmera, enda var musterið kjarni samfélagsins. Bændur fluttu afurðir sínar til prestanna, sem tóku af því frumgróðafórn til handa borgarguðinum, tóku svo til eigin þarfa, en deildu eftir þörfum því, sem eftir stóð, til lýðsins.


Í musterunum fór einnig fram stjórnun borgarinnar, sem í raun var undir guðræðisvaldi hofprestanna, en þar var fjárhirslan og birgðageymsla matvæla. Æðsti presturinn, svokallaður ensí, var málsvari borgarbúa og leiðtogi þeirra í stríði. Hann hafði einnig umsjón með skrifaraskóla borgarinnar, þar sem prestarnir kenndu ungum mönnum að skrifa og ólu þá upp til að fylla embættismannastétt borgríkisins. Skilin milli hins veraldlega og andlega valds voru því óglögg.
annunaki



Súmerar voru ennfremur forvígismenn spásagna og galdurs, enda var fjölkynngi eina leiðin, sem prestarnir töldu færa til að sjá fyrir komandi atburði og búa í haginn fyrir áföll, sem hugsanlega kynnu að ríða yfir. Í því skyni leituðu þeir fyrirmæla úr líffærum fórnardýra sinna, en almenningur túlkaði reykelsisreyk eða leitaði spásagnar með öðrum hætti.



Súmerar hófu jafnframt að gera tilveru sína þægilegri með margs konar uppfinningum. Þeir fundu upp hjólið, þróuðu fyrsta ritmálið, hófu leirkerasmíði og margt fleira. Flestar uppfinningar Súmera sneru að verslun þeirra við fjallaþjóðirnar, sem seldu þeim timbur og málma í stað korns og iðnvarnings. Nefna má, að hjólið var fundið upp til að eiga auðveldara með að flytja þunga vöru, sennilega timbur, á milli staða. Ritmálið kom svo til sögunnar til að skrá niður viðskiptin.


Elstu merki ritlistar Súmera sýna þó, að upphaflega hafi þeir notast við myndmál, en síðar tekið að rita með oddhvössum prikum á blaut leirbrot, sem síðar þornuðu og geymdu upp því frá hugsun ritara síns. Leturstrik þessi líktust fleygum og því er ritmál þeirra kallað fleygrúnir. Súmerar voru fyrstir til að nota segl á skipum sínum, svo vitað sé, en seglbátar þeirra sigldu eftir stórfljótunum með verslunarvarning. Þeir voru einnig fyrstir til að temja dýr í stórum stíl, bæði til manneldis og vinnu. Vitað er, að þeir notuðu asnadregna vagna til flutnings nauðsynjavarnings á milli staða og hervagna, þegar skarst í odda milli einstakra borgríkja.


Borgríki voru nær ætíð upphaf ríkjamyndunar, þar sem ein borg stóð fyrir einn guð. Konungar litu á sig sem syni eða erindreka borgarguðsins og þegar tækifæri gafst, þönndu þeir út veldi guða sinna. Þannig urðu ákveðnir guðir útbreiddastir um Miðausturlönd og tóku að mynda guðafjölskyldur.


Úr, með sína 50.000 íbúa, var um hríð voldugasta borg Súmera, en um 2800 f. Kr. tóku önnur borgríki að hefja vald sitt. En þó ákveðin tilhneiging hafi verið meðal sumra konunga til þess, að taka sér alræðisvald í landinu, var enginn þeirra var nægjanlega voldugur til að hrinda því í framkvæmd, ekki einu sinni Gilgamesh, frægasti konungur Súmera. Hann ríkti yfir um það bil 50.000 þegnum í borgríkinu Úruk, um það bil 2.700 f. Kr. og frá honum höfum við helstu heimildir okkar um samfélög Súmera. Mörg ljóð hafa verið samin um konunginn og hafa flest þeirra varðveist í samnefndum ljóðabálkum, sem enn njóta frægðar.

Ítarefni: Súmer í Wikipediu.


Sérðu ekki eftir neinu fleiru?

spearsphilEins og til dæmis líkamsræktarsvindli og fleiru svoleiðis.

Síðan er yfirvaraskegg komið úr tísku -- Tom Selleck er sá eini sem hefur leyfi tískulögga til að bera svoleiðis utanásér.
mbl.is Dr. Phil sér eftir að hafa talað um Britney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistök í símahlerunum

Jahá, nú kemur þetta allt í ljós. Þegar Árni Páll Árnason taldi síma sinn hafa verið hleraðan, var aðeins um að ræða Sorpvinnslustöð Jórvíkurskíris, sem taldi að ÁPÁ væri að urða rusl án leyfis.

Það meikar sens, er það ekki? Smile


mbl.is Bretar hlera þúsund síma á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband