Aha, þess vegna var fluginu aflýst!

Lifi Hafnarfjarðarbrandararnir!


mbl.is Varað við flughálku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hellisheiðargöng?

Það væri öllu nær að spara þessa 9 milljarða, sem á eða átti að spreða í Sundagöng, taka hagkvæmustu leiðina af þeim sem standa til boða og eru fýsilegar, en ekki hengja sig á ímynduð smáatriði, eins og að kalla muninn á þessu tvennu "lífsgæði". Hvílík steypa og sú steypa á að kosta 9 milljarða aukalega samkvæmt tillögum, en skv. reynslu verður um 12-15 milljarða aukakostnað.

Þennan pening mætti taka og gera Öskjuhlíðargöng...eða leggja inn á solid Hellisheiðargöng, sem myndi tengja Suðurlandið, vaxtarbrodd íslensks samfélag, við Reykjavíkursvæðið. Jafnframt myndi þá Selfoss og nágrenni verða í raun beinn hluti af höfuðborgarsvæðinu, en ekki jaðarsvæði eins og nú er.
mbl.is Fóru út af á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olsen, Olsen

Vandræðin virðast fylgja Olsen-systrum, enda gefa þær vandamálum færi á sér með framkomu sinni, rétt eins og Paris Hilton, Britney, Lohan og aðrar gelgjur á sama sviði.

En að þessu sinni ætlar Olsen, M-K, að sleppa við vandræðin, enda var hún ekki á staðnum.

En svona er frægðin.

Æ, ætli hún sé virði allra þeirra vandamála sem fylgja?
mbl.is Olsen ekki yfirheyrð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli það detti ekki bara beint

á felustað Osama bin Laden, eða kannski á Hvíta húsið. Maður veit aldrei!
mbl.is Njósnagervitungl mun hrapa til jarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættuleg íþrótt

Fyrr en varir verður bannað að skíða nema með "hjálpardekk" og þá aðeins í litlum brekkum.

Banna, banna, banna.

Er það ekki Ísland í dag?
mbl.is Skíðamenn slösuðust í Hlíðafjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekur Garrý við af Fischer?

Hér er á ferðinni tveir mestu skáksnillingar 20. aldar, báðir Gyðingar. Annar varð svoldið skringilegur í hegðun og lenti í ógöngum eftir að hann hætti að tefla, og endaði að lokum hér á landi. Hinn varð svoldið skringilegur í hegðun og lenti í ógöngum eftir að hann hætti að tefla, en mun vísast enda í fallegu gaddavírsklæddu þorpi í Síberíu,


mbl.is Fischer elskaður á Íslandi sem skákmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahahahahahahaha

Liverpool að tapa fyrir "Þrótti Vogum" 0-1 og mega þakka fyrir að vera ekki fleiri mörkum undir!

Frekari orð eru óþörf, hvernig sem leikurinn fer.

 

1-2!!!!


mbl.is Liverpool lenti í basli, Arsenal vann 3:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvorn á að styðja?

Ja, nú vandast málið. Úr því bæði liðin geta ekki tapað er sennilega skárri kostur að styðja Norðmenn, frændur okkar, en ekki "fjarskyldu ættingjanna", eins og fyrrv. forsætisráðherra Íslands, úr Framsóknarflokki, nefndi Svíana, meðan Norðmenn voru "hold af okkar holdi."


Við styðjum því hold af okkar holdi. Málið dautt. Þökk sé séra Tryggva Þórhallssyni?


mbl.is Svíar mótherjar Íslands í forkeppni ÓL
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með smá efasemdir

Ef Musharraf vill virkilega stöðva öfgahyggju og hryðjuverkastarfsemi í Pakistan ætti hann að hamla starfsemi trúarofstækisskólana. Maddressurnar í Pakistan framleiða hryðjuverkamenn á færibandi. Stöðva framleiðsluna og vandamálið verður ekki lengur jafn víðtækt.

En Musharraf dytti aldrei í hug að gera neitt til að hindra starfsemi íslömsku skólanna, enda myndi þá brjótast út borgararstyrjöld og honum þykir of vænt um völdin til að standa í slíku.

Vandamálið er, að jafnvel þó Musharraf sé enginn sérstakur pappír er hann skárri en margir aðrir og, það sem meira er, ef hann hyrfi væri óljóst hver tæki við og hvort sá yrði eitthvað skárri.

Vesturlönd eru því eiginlega nauðbeygð að viðhalda Musharraf, eins og í þeirra valdi stendur, hvort sem þeim líkar það betur eða verr.
mbl.is Musharraf aðvarar Vesturlönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, og hvellur átti að koma í gærkvöldi

En hitt er svo annað mál, að stundum er erfitt að spá fyrir með veðrið.

Afi heitinn var veðuráhugamaður og fylgdist alltaf með veðurfréttunum. Hann spáði sjálfur um veðrið og virtist amk hafa oftar réttara fyrir sér en blessaðir veðurfræðingarnir, sem hann hafði svosem ekkert of mikið álit á.

Gamla fólkið horfði bara til himins og spáði um veðrið. Í dag lesa menn í veðurtunglamyndir og hvaðeina, en eiga í mestu vandræðum með að spá.

Svona er heimurinn orðinn.
mbl.is Varað við stormi í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband