Svona gera stórmeistararnir

Já, Alexandra Kosteniuk, stórmeistari, er ein af þessum! Ok, leiðinleg stelpa og hrokafull, en hefur sína "kosti". En merkilegt nokk, þessar eru ekki einu sinni meðal flottustu skákstelpnanna. Hvaða "smekkmenn" settu þetta eiginlega saman?

Hvað er maðurinn að kvarta?!

Hann sem er búinn að stórgræða öll þessi ár; hefur fengið það frítt sem annar kostar stórar fúlgur.

En hvað var hann eiginlega að gera á hóruhúsinu?
mbl.is Hitti konuna í vændishúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Michael Jordan til Sundsvall?

Ja, það kæmi ekki á óvart, sér í lagi ef Jordan fréttir af átaki Sund-svall-ískra feminista.
mbl.is Sundsvall vill fá Jordan í liðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitirnar

Ég vissi ekki að bændur væri að stunda leitir svona snemma á árinu. En greinilega er slíkt viðhaft sums staðar.


Nú, síðan er spurning hvernig menn komast í leitir? Ætli inngangurinn sé vel merktur? 



Af hverju ekki bara að segja: "...hefur ekki fundist"?


mbl.is Ekki kominn í leitirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vonast til að klæðast Arsenal búningnum um helgina

Ég vona að ég hafi munað eftir að setjann í þvottavélina síðan þarna um daginn.


Þeir sem hafa áhuga á að klæðast Arsenal-búningnum geta vafalaust keypt hann hjá Jóa útherja. Ég keypti minn nú bara í Englandi!


mbl.is Anelka vonast til að klæða sig í Chelsea búninginn í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar áhyggjur af vírusunum

Ég fjárfesti í solid vírusvarnarforriti. Málið dautt.


mbl.is Árlegir vírusar og bakteríur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er þessu bíðastæði?

"Tæpur fjórðungur umferðaróhappa frá byrjun janúar til septemberloka árið 2007 átti sér á bíðastæðum Kringlunnar og Smáralindar. Þetta kemur fram í tölum frá Umferðarstofu í skýrslu sem tekin var saman fyrir umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. "


Ég spyr nú eins og álfur: "Hvar eru þessi bíðastæði"?


mbl.is Mörg umferðaróhöpp við Kringluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skandall

Það er auðvitað hneyksli  að b-lið Arsenal skuli ekki geta unnið a-lið Spurs. Skandall.


mbl.is Jafntefli hjá Arsenal og Tottenham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Shaky mynd sem mér var send

En verð nú að birta hana, þó hún sé í vafasamara taginu (og ég er ekki endilega sammála, ekki frekar en Mogginn):

Gilz2

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ok, ég varð að birta hana, en ....roar, svoldið dónó.


Einn af bröndurum Össurar

Brandarakallinn Siggi Sverris, a.k.a. Kokkurinn, emailaði mig áðan og spurði mig hvort ég búi ekki svo vel að eiga á tölvutæku formi brandarann um Össur og skjaldbökuna. Ég hafði sett hann hér á bloggið fyrir meira en ári síðan og stóðst ekki mátið að endursegja hann hér af þessu tilefni, ekki síst þar sem samstarfsfélagsar Briddskokksins koma hér við sögu:

 

Málavextir voru þeir, að Össur var víst staddur í París á umhverfisráðstefnu, í þá gömlu góðu daga. Með honum var aðstoðarmaður hans, (held það hafi verið Árni Páll síhleraði), og fóru þeir út á veitingastað á milli funda og pöntuðu sér skjaldbökusúpu. Tíminn líður og ekkert gerist, og þjóninn gefur þeim vín hússins í sárabætur fyrir töfina. En tíminn líður, og líður, og ekkert gerist. Össur sendir þá Árna fram í eldhús, að athuga hvað sé eiginlega að gerast.

Árni gengur að hurðinni og sér inn um "kýraugað" hvað kokkurinn er að reyna að hrista skjaldbökuna út úr skelinni, en ekkert gengur. Aha, þar er komin skýringin á töfinni. En Árni hefur ráð undir hverju rifi og gengur inn, réttir kokkinum saxið, leggur skjaldbökuna á borðið og biður kokksa að vera tilbúinn að höggva hausinn af skjaldbökunni. Jája, kokkurinn hlýðir þessum skrítna útlendingi.

Árni treður þvínæst puttanum á kaf í þarminn á skjaldbökunni og rekur hún þá hausinn undan skelinni og kokksi heggur hann af. Hann spyr síðan Árna, hvar hann hafi lært þetta trix. Árni tekur kokkinn með sér að dyrunum, bendir á Össur og segir:

"Sérðu þennan feita þarna með Amish skeggið?"´

"já" svarar kokksi.

"Hvernig heldurðu", bætir Árni nú við, "að ég hnýti á hann þverslaufuna?"

Ég varð bara að segja þennan. Það er auðvitað algjör snilld, að stjórnmálamaður skuli þora að segja svona um sjálfan sig! Klappbroskall fyrir húmoristann með Amish skeggið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband